Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 44
Knattspyrn
met í frjáls
Evrópuleiki
er auðvitað
Jón Oddsson
Okkar litla land hefur jafnan
átt stóran hóp afreksmanna sem
með frammistöðu sinni í íþrótt-
um, listum eða á annan hátt
hafa yakið aðdáun samborgara
sinna og sumir náð langt erlend-
is á sínu sviði og þar með verið
góð auglýsing fyrir land og þjóð.
íþróttamenn þeir sem fram úr
skara hafa oftast sérhæft sig í
einni íþróttagrein, þó dæmi séu
um menn og komur sem náð
hafa góðum árangri og verið
valin í úrvalslið landsins í
tveimur eða fleiri íþróttagrein-
um. Sem dæmi má nefna Her-
mann Gunnarsson, Gunnar
Gíslason, Guðríði Guðjónsdótt-
ur og fleiri. Einn er sá íþrótta-
maður íslenskur sem virðist
vera sá fjölhæfasti hér á iandi
um þessar mundir og það er ís-
firðingurinn Jón Oddsson.
Óvenjuleg fjölhæfni —
Iþróttamaður af Guðs náð.
Afrekaskrá Jóns Oddssonar er
bæði löng og fjölbreytileg á að
líta. Flestir þeir sem með ís-
lenskum íþróttum fylgjast vita
að Jón er einn fljótasti knatt-
spyrnumaður landsins og mað-
urinn hefur á stundum tekið
þátt í frjálsíþróttakeppni og náð
góðum árangri í langstökki.
Færri vita að Jón hefur leikið
körfuknattleik í úrvalsdeildinni,
og á að baki tvo Evrópuleiki í
þeirri íþróttagrein gegn ekki
ómerkari andstæðingum en
Barcelona. En það er ekki allt
upp talið. Jón hefur tekið þátt í
sundmótum, leikið handknatt-
leik og svo var hann í fimleika-
flokki á menntaskólaárum sín-
um. Sannarlega ótrúleg fjöl-
hæfni og ekki síður í Ijósi þess
að Jón fékk litla tilsögn í íþrótt-
um fyrr en hann flutti til
Reykjavíkur, tvítugur að aldri.
Að vísu fékk Jón ásamt jafn-
öldrunum þjálfun í knattspyrn-
unni, í yngri flokkunum, en það
var ekki algilt og hann lærði
mest eftir að hann varð fullorð-
inn.
Þessa fjölhæfni sína og þann
árangur sem hann hefur náð á
íþróttasviðinu, getur Jón því
ekki þakkað markvissri þjálfun
um árabil heldur virðist sem um
allt að því meðfædda hæfileika
sé að ræða. Hann er mjög vel
byggður og hefur gott jafnvægi,
er nánast fæddur íþróttamaður.
Samt hefur Jón ekki náð þeim
árangri sem í honum býr, og er
það vegna þess hversu seint
hann komst í hendur þjálfara og
einnig er fjölhæfnin honum fjöt-
ur um fót, því með því að skipta
sér milli íþróttagreina eins og
Jón hefur gert, minnkar mögu-
leikinn á að ná toppárangri í
einni grein. En það er þó fyrst
og fremst aðstöðuleysið á ísa-
firði og skortur á góðri þjálfun á
yngri árum sem komið hefur í
veg fyrir að Jón Oddsson hafi
náð árangri í samræmi við hæfi-
leika. Hann er þó aðeins 25 ára
gamall og á margt ógert á
íþróttasviðinu. Við skulum þó
láta framtíðina bíða en líta til
baka og rifja upp með Jóni það
helsta sem á daga hans sem
44