Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 37
Nýi heimsmeistarinn í einliðaleik
karla: lcuk Sugiarto frá Indónesíu.
Lene Köppen var búin að vera á
toppnum í rösklega tíu ár, vann
t.d. einliðaleik kvenna í „All Eng-
!and“ mótinu árið 1972, en það
mót var lengi vel óopinber
heimsmeistarakeppni. Þá varð
hún heimsmeistari í einliðaleik
kvenna á fyrsta opinbera heims-
meistaramótinu sem haldið var.
Snemma í keppninni í Kaup-
mannahöfn mætti Köppen
kóreönsku stúlkunni Yun Ja
Kom og tapaði 11-3, 5-11 og
7-11. Köppen þótti ekki sjálfri
sér lík í leiknum, skorti greinilega
hraða og snerpu og auk þess
virtist áhuginn takmarkaður
þegar illa tók að ganga. „Ætli ég
snúi mér ekki að því að leika
tennis í framtíðinni, svona rétt til
þess að halda mér í formi,“ sagði
Köppen á blaðamannafundinum
eftir keppnina.
Morten Frost. Þoldi ekki álagið í keppninni og sýndi ekki sínar bestu
hliðar.
átti von á því að hann
hreppti heimsmeistaratitil-
inn, jafnvel þótt hann væri
talinn fjórði besti badmin-
tonleikari í heimi fyrir
keppnina.
Morten Frost tók greinilega
nærri sér að ná ekki lengra í
keppnini en raun bar vitni. Hann
sagði á blaðamannafundi eftir
tapið gegn Sugiarto að hann
hefði einfaldlega verið þreyttur
og illa upp lagður og því hefði
hann tapað leiknum. „En ég á
eftir að ná mér á strik aftur“,
sagði Frost „og þá vinn ég þá
alla“.
Dönsku blöðin voru söm við
sig og fljót að finna skýringu á því
af hverju Frost gekk ekki betur í
keppninni. Gerðu þau mikið úr
tíðum klósettferðum Frost á
meðan á keppninni stóð og lögðu
saman tvo og tvo. Hann hafi
auðvitað verið slæmur í magan-
um, og því ekki von á góðu.
Danir urðu einnig fyrir von-
brigðum með frammistöðu bad-
mintondrottningar sinnar, Lenu
Köppen. Fyrirfram hafði hún
lýst yfir því að þetta yrði hennar
síðasta keppni, en Köppen átti
þrítugsafmæli meðan á keppn-
inni stóð og taldi að tími væri
korninn fyrir sig að hætta keppni.
37