Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 72
AFRIKUBUAR
— ætla sér stóran hlut á Ólympíuleikunum
í Los Angeles næsta sumar
ekki haft efni á því að kaupa
sér skó og vanist því að
hlaupa berfættur.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan Bikila sleit mark-
snúru maraþonhlaupsins í Róm
og síðan hefur hver stórhlaupar-
inn af öðrum komið frá Afríku-
ríkjum, flestir þó frá Kenía þar
sem virðist vera uppeldisstöð
fyrir langhlaupara. Afríkuhlaup-
ararnir hafa sett hvert heimsmet-
ið af öðru og unnið frækna sigra,
aldrei þó eins og á Ólympíuleik-
unum í Mexikó árið 1968, þegar
þeir voru nær einráðir í löngu
hlaupunum. Þá sigraði Moham-
ed Gammoudi frá Túnis í 5000
metra hlaupinu og varð þriðji í
10.000 metra hlaupinu. Land-
arnir Kipchoge Keino og Naftali
Temu frá Kenía urðu í öðru og
þriðja sæti í 5000 metra hlaupinu.
Temu sigraði í 10.000 metra
hlaupi og Mamo Wolde frá Eþi-
ópíu varð í öðru sæti og í 3000
metra hindrunarhlaupi urðu
Afríkubúar í tveimur fyrstu sæt-
unum. Amos Biwott frá Kenía
sigraði og Benjamin Kogo landi
hans varð í öðru sæti. Til að
kóróna allt saman varð svo
Mamo Wolde frá Eþiópíu sigur-
vegari í maraþonhlaupi.
Síðan þá hafa komið fram
fjölmargir hlauparar frá Afríku
sem unnið hafa frækileg afrek.
Mörg nöfn mætti nefna, eins og
t.d. Mike Boit, Henry Rono,
Kiprotich Rono Richard Tuwei
að ógleymdum Miruta Yifter sem
á að baki langan og glæsilegan
hlaupaferil. Yifter sem veit ekki
einu sinni sjálfur hvað hann er
Keppni í maraþonhlaupi á
Ólympíuleikunum í Róm
markar á vissan hátt tíma-
mót í sögu frjálsra íþrótta.
Sigurvegari í hlaupinu var
lítið þekktur Eþiópíumaður,
Abebe Bikila, á 2:15,16,2
klst. og var hann fyrsti en
ekki síðasti langhlauparinn
frá Afríku sem átti eftir að
láta að sér kveða á hlaupa-
brautunum. Það sem vakti
hvað mesta athygli við sigur
Bikila í Róm var þó það að
hann hljóp berfættur alla
leið. Var sú saga sögð, hvort
sem sönn er eða ekki, að
þegar Bikila hóf hlaupa-
æfingar, þá hafi hann verið
svo fátækur að hann hafi
Eþíópíumaðurinn Abebe Bikila. Sigurvegari í maraþonhlaupi á Ól-
ympíuleikunum í Róm árið 1960 — fyrsti þeldökki stórhlauparinn frá
Afríku, en ekki sá síðasti.
72