Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 43
Hort Hrubesch eróvenjulega stórog þrekvaxinn af knattspyrnumanniað
vera. Hann vegur88 kíló og er1,88 metrará hæð. Hér gengur hann útaf
leikvangi Hamburger SV ísíðasta sinn sem leikmaður féiagsins og veifar
til áhorfenda og áhangenda sinna og þakkar þeim samvistirnar. Næsta
keppnistímabil mun Hrubesch leika með Standard Liege — gamla fé-
laginu hans Ásgeirs Sigurvinssonar.
fljótur og þó umfram allt hafi
hann haft „yfirnáttúrulegan
skotkraft“ — tvöfaldan á við
Hansa Schmith, segja þeir, en
Hansi þessi var þó talin ein
besta handknattleiksskytta
heimsins á tímabili.
Árið 1978 fór Hort Hrubesch
frá Rot-Weiss Essen til
Hamburger Sport Verein, og upp
frá því má segja að frægðarferill
hans hefjist fyrir alvöru. Þegar
hann gekk út af leikvangi Ham-
burger í síðasta sinn sem leik-
maður félagsins 3. júní s.l. hafði
hann fimm sinnum orðið þýskur
meistari með félaginu, Evrópu-
meistaratitil hafði hann hlotið,
og landsleikirnir fyrir Þýskaland
voru orðnir 21.
Þegar það fréttist að Gúnther
Netzer vildi losa sig við Hrubesch
varð uppi fótur og fit hjá mörgum
liðum, sem gjarnan vildu fá
kappann í sinn hóp. Hvert til-
boðið af öðru barst, en sennilega
hefur þó Hrubesch orðið fyrir
vonbrigðum þar sem enginn
bauð verulega háa upphæð í
hann. Belgíska félagið Standard
Liege (gamla félagið hans Ás-
geirs Sigurvinssonar) varð fyrir
valinu og með því mun hann
leika á næsta keppnistímabili.
— Þetta verður allt í lagi hjá
mér, sagði Hort Hrubesch þegar
hann hafði gengið frá samn-
ingum við Standard Liege. — Ég
er svo sem ekki á neinu nástrái,
hef haft það sérlega gott hjá
Hamburger SV og fjárfest skyn-
samlega. Ég ætla mér að lifa
náðugu lífi á því sem knatt-
spyrnan hefur fært mér, þegar ég
neyðist til þess að leggja skóna á
hilluna. Hann bætti því síðan við
að þótt peningamir væru góðir
hefði hann alltaf haft mikinn
metnað, ekki verið sama með
hvaða félagi hann lék. „Standard
Liege,er gott félag og vel rekið og
því valdi ég það, þótt ég hefði
jafnvel getað fengið meira annars
staðar.“
Hrubesch segist ekki sjá eftir
því að hafa ekki byrjað í at-
vinnuknattspyrnu fyrr. Hann
hafi getað einbeitt sér að því sem
hann var að gera, en margir ungir
knattspyrnumenn eigi eftir að
rasa út, þegar þeir fari í atvinnu-
knattspyrnuna, og séu haldnir
þeirri áráttu að telja grasið á
hinum bakkanum alltaf grænna,
þ.e. að þeir geti haft það betra
annars staðar.
Hort Hrubesch mun ekki leika
fleiri landsleiki fyrir Þýskaland.
Þá ákvörðun tók hann eftir
heimsmeistarakeppnina á Spáni í
fyrra, enda kom honum ekkert
alltof vel saman við landsliðs-
þjálfarann Jupp Derwall. Hru-
besch segir að ekki sé nógu mikil
festa í aðgerðum Derwall, hann
hringli alltof mikið með menn. —
Það heyrði til undantekninga hér
áður fyrr að meira en 4—5 nýir
leikmenn kæmu inn í landsliðið á
sama keppnistímabilinu. Nú eru
þeir venjulega 12-15. Það gefur
auga leið að slíkt er ekki vænlegt
til árangurs sagði Hrubesch.
43