Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 71
Frá úthlutun úr Ferðasjóði Flugleiða og ÍSÍ. Úr stjórn sjóðsins: Kolbeinn
Pálsson. Þórður Þorkelsson og Alfreð Þorsteinsson og fulltrúar þeirra
sérsambanda sem úthlutun fengu.
FYRSTA ÚTHLUTUN
ÚR FERÐASJÓÐI
FLUGLEIÐA OG ÍSÍ
erindi Reynis vel tekið, enda
um mikið hagsmunamál
íþróttasamtakanna að ræða
og einnig þeirra einstaklinga
sem námið stunda.
3. Lagt var fram álit tölvu-
nefndar en hún hefur unnið
að athugun á því hvort tíma-
bært sé fyrir íþróttasamtökin
aðtaka í notkun þessa nýju
tækni. Haldið verður áfram
athugun á þessu máli.
4. Alfreð Þorsteinsson ritari ÍSÍ
hafði framsögu um skipulag
almenningsíþrótta. Taldi
hann nauðsynlegt að
íþróttasamtökin efldu þenn-
an þátt starfsins og kæmu á
betri skipulagningu á þessu
sviði. Samþykkt var eftirfar-
andi tillaga um þetta efni:
„Sambandsstjórnarfundur
ÍSÍ haldinn 16. apríl 1983,
fagnar þeim mikla vexti, sem
orðið hefur í almennings-
íþróttum og telur að íþrótta-
samtökin eigi í enn frekari
mæli að gefa þessum þætti
íþróttaiðkana gaum en verið
hefur, með því m.a. að
skipuleggja á einn eða annan
veg þessa fjöldahreyfingu
sem almenningsíþróttir eru
orðnar. Því samþykkir fund-
urinn að kjósa fimm manna
nefnd, er athugi mál þetta og
geri tillögur um hvort, og þá
á hvern veg, almennings-
íþróttir verði skipulagðar
með það í huga að auka þær
og að almenningsíþróttir
verði innan ramma íþrótta-
samtakanna, t.d. með stofn-
un sérsambands. Nefnd þessi
skili áliti sínu og tillögum til
framkvæmdastjórnar ÍSÍ eigi
síðar en í febrúarmánuði
1984.“
Kosið var í umrædda
nefnd en formaður hennar er
Alfreð Þorsteinsson.
5. Samþykkt var tillaga um að
íþrótta- og ungmennafélög
sinni betur íslensku glímunni
Framhald á bls. 86
Hinn 7. febrúar sl. var stofn-
aður Ferðasjóður Flugleiða hf.,
og íþróttasambands íslands. í
reglugerð sjóðsins segir m.a. um
markmið, tekjur, úthlutun o.fl.
Markmið:
Tilgangur sjóðsins er að greiða
fyrir ferðalögum íþróttafólks
bæði vegna æfinga og keppni.
Tekjur sjóðsins:
Framlög til sjóðsins skulu
koma frá Flugleiðum hf. og
íþróttasambandi íslands og er
framlag Flugleiða ákveðið %
hlutar af heildarframlagi til
sjóðsins á hverju ári, en íþrótta-
samband íslands leggur fram Vi
hluta.
Úthlutun:
Úthlutun er í höndum sjóðs-
stjómar, en hana skipa: Alfreð
Þorsteinsson og Þórður Þorkels-
son frá ÍSÍ, og Karl Sigurhjartar-
son og Kolbeinn Pálsson frá
Flugleiðum hf.
Stjómin hafði til úthlutunar kr.
300.000,- og á fundi sínum 8.
apríl sl. úthlutaði stjórnin samtals
kr. 256.500,- til 43 aðila innan
íþróttasambands íslands. Meðal
styrkhafa voru eftirtalin sam-
bönd og félög:
Frjálsíþróttasamb. íslands kr. 33.250,-
Knattspyrnufélagið Þróttur 14.250,-
Glímufélagið Ármann 13.750,-
Ungmennafélagið Breiðablik 12.250,-
Körfuknattleiks- samb. íslands 10.250,-
Badmintonsamband íslands 10.000,-
Framhald á bls. 86
71