Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 19

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 19
í stað mjólkursýru en við gerum hvorutveggja. Mæling á súrefnisupp- töku segir okkur hins vegar bara hversu mikið súrefni leikmenn geta tekið inn. Mjólkursýrumælingarnar sýna mun meira og t.d. líka hvernig líkaminn notar súrefnið. í Þýskalandi var gerð tilraun með súrefnisupptöku og mjólkursýru- mælingu á leikmönnum í Bundeslig- unni og næstu deild fyrir neðan. Margir leikmenn í neðri deildinni voru með mun betri súrefnisupptöku en leikmenn í Bundesligunni en þegar mjólkursýran var mæld var enginn betri. Hjá Lilleström eru þvíallaræfingar byggðar upp út frá niðurstöðum rannsókna og af þeim sökum er mis- mikið lagt á hvern og einn. í MÍNUM HUGA ER EKKERT TIL SEM HEITIR OFPJÁLFUN — Nú hafa sænskir og hollenskir sérfræðingar sagt að knattspyrnu- menn þoli varla meira en 9 klukku- tíma í æfingar á viku. Það stangast á við það sem þú ert að gera. „Til þess að hægt sé að leggja mik- ið á leikmenn þurfa þeir að vera í góðri æfingu. í mínum huga er ekkert til sem heitir ofþjálfun en hins vegar er hægt að þjálfa á rangan máta. Það er hægt að þjálfa of mikið miðað við ástand líkamans. Mataræði, hvíld og svefn skiptir gríðarlega miklu máli í þessu sambandi og við leggjum mik- ið upp úr þeim þáttum. Menn sem sofa í 5 klukkutíma á sólarhring hafa ekki burði til að æfa tvisvar á dag. Miðað við æfingaálagið hjá Lille- ström þurfa menn lágmark 8 tíma svefn þótt það sé ávallt persónu- bundið. Við förum ekki fram á að leik- mennirnir breyti miklu íhefðbundnu mataræði og hámi eingöngu í sigein- hverjar heilsuvörur en við leggjum áherslu á að þeir borði mikið. Sömu- leiðis er þeim fyrirskipað að borða fisk tvisvar til þrisvar í viku og það sama gildir um kolvetnisríka fæðu. Á hverju einasta kvöldi, áður en þeir fa ra að sofa, bo rða þe i r ko rn, svokö 11 - uð blönduð morgunkorn með höfr- um, trefjum ogfleiru. Þaðerekki gott fyrir þá sem æfa lítið að borða á kvöldin en íþróttamenn, sem æfa mikið, verða að gera það. Fæstir íþróttamenn ná að borða það mikið yfir daginn að það samsvari þeirri brennslu sem á sér stað þegar þeir æfa og í kjölfar þess getur ofþjálfun átt sér stað sem margir vilja kenna æfingaálagi um. Ofþjálfun er ekkert annað en skortur á fæðu og hvíld. Strákarnir okkar borða allan daginn og fara nánast í einu og öllu að okkar ráðum. Þetta lærðum við af skauta- „Hvíta" perlan og „dökka" perlan á góðri stund á Kýpur í mars síðast- liðnum. Hörður Hilmarsson, þjálfari Vals, og Teitur skrafa í sólbaði. LEIKMENNIRNIR BORÐA FISKIMJÖL í TÖFLUFORMI hlaupurunum sem eru búnir að ná frábærum árangri. Einn fremsti skautahlaupari Norðmanna, sem var þekktur fyrir að æfa mikið, sagðist ekki geta bætt við sig æfingum því líkaminn gæti ekki tekið við meiri næringarefnum en hann gerði þá þegar." — Hvað viltu að menn borði á milli mála? „Mikið af ávöxtum, brauði og rús- ínum svo eitthvað sé nefnt. Við tök- um brauð með sultu og hunangi með okkur f alla leiki þvf Ifkaminn er svo fljótur að vinna úr svo léttri fæðu. Menn verða að borða strax eftir leiki því annars missir Ifkaminn af dýr- mætum tíma til að undirbúa sig sem best fyrir næstu átök. En það er stað- reynd að menn þurfa að þjálfa sig upp í að borða bæði vel og „rétt", ef svo mætti að orði komast, og sumir eru nokkur ár að venjast því að borða mikið. Ég þekki keppanda f róðri sem var sjö ár að æfa sig í að borða nógu mikið miðað við æfingamagn sitt." — Nota leikmenn eitthvað af bætiefnum þegar þeir borða svona mikið og „rétt"? „Þeir borða fiskimjöl í töfluformi en töflurnar eru unnar úr fiski sem hefur verið malaður f heilu lagi og er þar af leiðandi ríkur af vítamínum og steinefnum sem eru góð bætiefni. Fiskimjölið er ekki framleitt ein- göngu fyrir okkur heldur fyrir alla sem vilja bæta við sig vítamínum og steinefnum." — Hversu mikið magn af vatni er æskilegt að menn drekki á degi hverjum? IÞROTTALINAN OIOÍO 19

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.