Íþróttablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 24
— íþróttaferðir á
vegum Úrvals Útsýnar
njóta stöðugt meiri
vinsælda
HÖRÐUR HILMARSSON og
ÞÓRIR JÓNSSON, sem sjá alfarið
um íþróttaferðir hjá Úrval Útsýn,
njóta stöðugt meiri virðingar sem
„ferðafrömuðir" og úrvals skipu-
leggjendur og hafa umsvif þeirra
Hörður Hilmarsson (tv) og Þórir Jónsson.
FAGMENNSKA
í FYRIRRtJMI!
aukist jafnt og þétt undanfarin ár.
íþróttafélög og hópar leita í auknum
mæli til Harðar og Þóris þegar halda
þarf út fyrir landsteinana því fátt er
mikilvægara en hafa alla hluti á
hreinu í slíkum ferðum.
íþróttafélög, sem hafa farið út á
eigin vegum til að spara sér nokkra
hundraðkalla, hafa lent í því að æfa
við slæmar aðstæður, keppa við
firmalið, búa við bága gistiaðstöðu
og svo mætti lengi telja en það heyrir
til algjörrar undantekningar ef brest-
ur kemur í skipulagningu á vegum
íþróttaferða Úrvals Útsýnar. „Okkar
starf felst í því að þjóna íþróttafélög á
þann hátt sem óskað er eftir — ekki
eingöngu hvað varðar flug og gist-
ingu heldur sömuleiðis með að út-
vega verðuga andstæðinga í keppni
og allt það sem viðkemur góðri
keppnis- eða æfingaferð. Þetta léttir
mikið á stjórnarmönnum félaganna,"
segja Hörður og Þórir sem hafa verið
í framvarðasveit knattspyrnuforkólfa
í rúma tvo áratugi og þekkja því af
eigin raun þarfir og óskir íþróttafólks.
„Ferðir knattspyrnuhópa fyrir ís-
landsmótið hafa verið veigamikill
þáttur í starfsemi okkar og eru mögu-
leikarnir nánast óþrjótandi. Fyrir sex
árum komum við á fót Knattspyrnu-
skóla KB í Belgíu ásamt Kristjáni
Bernburg og þangað fer stór hópur
íslenskra drengja árlega. Það er
ánægjulegt að sjá hversu margir
þeirra hafa skilað sér í drengja- og
unglingalandsliðin. Unglingahópar í
knattspyrnu, handknattleik, sundi
Frá ferð knattspyrnuþjálfara á vegum íþróttaferða Úrvals (Jtsýnar á námskeið
í Hollandi. Frá vinstri: Óskar Ingimundarson, Marteinn Geirsson, Pétur Arn-
þórsson, Ólafur Jóhannesson, Hörður Hilmarsson, Ingvar Jónsson, Nói
Björnsson og Grace Butterfield frá Jamaica.
o.fl. eru stór hluti viðskiptavina okk-
ar.
Við erum með mjög góð sambönd
víða um heim og getum þar af leið-
andi boðið upp á fjölbreyttar ferðir
þar sem hægt er að æfa við bestu
aðstæður. Knattspyrnumenn hafa
notið góðs af þessu, sömuleiðis frjáls-
íþróttafólk, handboltalið, sundiðk-
endur, tennisleikarar og fleiri. Annars
er mesti vaxtabroddurinn í því að
flytja íþróttahópa til íslands því hér
eru fjölmargir möguleikar í boði í
flestum íþróttagreinum. Við höfum
einnig séð um ferðir kóra og annarra
tónlistarhópa bæði til og frá landinu
þannig að umsvifin aukast jafnt og
þétt."
Arnar Þór Viðarsson (tv) og Árni Ingi
Pjétursson hafa báðir sótt Knatt-
spyrnuskóla KB í Belgíu undanfarin
ár og verið útnefndir „Leikmenn
skólans“. Þeir eru meðal efnilegustu
knattspyrnumanna landsins.