Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 28

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 28
Róbert er ánægður með TWINGÓINN! - FLESTIR LANDSLIÐSMENNIRNIR AKA UM Á RENAULT TWINGO Róbert á Renault Twingo! Bílaumboðið, sem nú heyrir undir Bifreiðar og Landbúnaðarvélar, styrkti landsliðsmenn íslands í hand- knattleik á afar myndarlegan hátt með því að veita þeim góðan afslátt af Renault Twingo bifreiðum. Leik- mennirnir fóru sjálfir á stúfana til að leita eftir stuðningi og gerðu góðan samning án þess að HSÍ eða lands- liðsnefndin kæmi þar nokkuð að máli. RÓBERT SIGHVATSSON, leik- maður Aftureldingar og einn af fram- tíðarlandsliðsmönnum íslands, fjár- festi í RenaultTwingo sem og15 aðrir leikmenn. „Mér skilst að við höfum fengið um 40% afsláttaf bifreiðunum en þær kostuðu okkur um 550.000 krónur. Ég er mjög ánægður með Twingóinn því hann er afskaplega lipur, sparneytinn og þægilegur í alla staði. Hann virkar lítill en er í raun mjög rúmgóður og gott rými fyrir fjóra fullorðna í honum. Hann hefur þá sérstöðu að bekkurinn aftur í er færanlegur. Svo má ekki gleyma því að við fengum vetrardekk að auki þannigað um verulegan stuðning við okkur er að ræða. Hver bíll er merktur með nafni eigandans auk þess sem við seld- um Þvottastöðinni auglýsingu aftan á hann og Sólningu á hurðarnar." — Er það rétt að einhverjir bílar hafa verið skemmdir? „Já, Twingóinn hans Gunnars Beinteinssonar var gjöreyðilagður fyrir utan Kaplakrikann í vetur og svo hafa nokkrirbílarverið rispaðir. Okk- ur dettur einna helst í hug að það hafi farið í pirrurnar á fólki að bílarnir skuli vera merktir." Róbert, sem er 22 ára og lærður smiður, starfar nú í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ en við íþróttavöllinn á sumrin. Ætli hann hafi búist við því að komast í landsliðhópinn? „Ég gerði mérvitanlega voniren égtel að ég hafi þurft að hafa töluvert fyrir því." — Var einhver titringur í mannskapnum þegar fækkað var um þrjá í hópnum? „Ég held að það hafi myndast tölu- verð pressa á þeim sem eru í áhættu- hópnum. Enn á eftir að fækka um einn eða tvo í hópnum en éger alveg rólegur enn sem komið er." — Hvernig er stemmningin í hópnum? „Mjög góð, í rauninni alveg frá- bær. Mér sýnist allir hafa afskaplega gaman af því, sem þeir eru að gera, og ætla að leggja sig alla fram. Ég er bjartsýnn á að við náum að tryggja okkur 6. sætið á mótinu." — Nú ert þú alinn upp í Víkingi en hefur leikið í þrjú ár með Aftureld- ingu. Verður þú áfram í Mosfells- bænum? „Það á eftir að koma í Ijós því mað- ur veit aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sér." 28

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.