Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 34
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ hafði samband við þrjá leikmenn sem voru líklega á
þröskuldi þess aö vera valdir í landsliðið fyrir HM. Ætli þeir hafi verið
svekktir?
— Varstu svekktur yfir því að hafa
ekki verið valinn í landsliðshópinn?
„Vissulega, það hefði verið mikill
heiður að fá að vera í hópnum úr því
leikið er á íslandi. Ég veit satt að segja
ekki hvort ég bjóst við að vera valinn.
Éggafekki kost á mér f landsliðiðfyrir
Norðurlandamótið um jólin, tók próf
í lögfræðinni fram yfir og það hefur
ekki hjálpað mér þegar endanlegt val
fyrir HM fór fram."
— Ertu lakari en þeir leikmenn
sem voru valdir í þína stöðu?
„Ég hef verið í hlutverki skyttu í
vetur og á því við toppmenn að etja í
samkeppni um að komast í lands-
liðið. Ég hefði ekki verið svekktur
þótt ég kæmist ekki í 12 manna leik-
mannahópinn en það hefði verið
gaman að komast í undirbúnings-
hópinn."
— Við hverju býstu af landsliðinu
á HM?
„Við erum með sterkan leik-
mannahóp og eigum að geta komist í
verðlaunasæti ef allt gengur upp.
Annars er fyrirkomulagið með þeim
hætti að það getur unnið gegn okkur.
í 16 liða úrslitum detta lið út viðfyrsta
tapleik og við þekkjum það á svona
stórmótum að landsliðið getur átt
toppleik en slæman strax á eftir. Það
gæti orðið afdrifaríkt."
— Ertu nokkuð búinn að útiloka
landsliðssæti í framtíðinni?
„Alls ekki. Ég held bara áfram að
æfa og reyna að gera mitt besta. Mér
finnst mig skorta dálítið meira sjálfs-
traust eftir að ég jafnaði mig af
meiðslunum en er engu að síður
bjartsýnn á framhaldið."
— Heldurðu að
nýr landsliðsþjálf-
ari taki við eftir
HM?
„Það veltur lík-
lega á gengi lands-
liðsins en ég átti allt
eins von á að það
væri búið að skipta
því Þorbergur er
búinn að vera svo
lengi með landslið-
ið. Já, mér finnst
vera kominn tími á
breytingar og í raun
koma margir þjálf-
arartil greina í stöð-
una."
— Verður þú
áfram með Stjörn-
unni?
„Já, eins og stað-
an er í dag. Það hef-
ur ekkert félag sett
sig í samband við
mig."
— Varstu sáttur
við gengi Stjörn-
unnar í vetur?
„Alls ekki. Við
höfum aldrei fengið
eins mörg stig í
deildarkeppninni
og það hefði átt að
gefa okkur byr und-
ir báða vængi í úr-
slitakeppninni. Það
var svekkjandi að
tapa fyrir KA en við
mætum öflugir til
leiks næsta vetur."
34