Íþróttablaðið - 01.04.1995, Síða 35
— Varstu svekktur að hafa ekki veriö
valinn í landsliðið?
Já, ég var það."
— Bjóstu við að vera valinn?
„Umræðan um það hvort ég ætti
heima í landsliðinu kom svo snöggt
upp á að ég var ekki farinn að vélta
því fyrir mér. Ég er eiginlega svekkt-
astur með að hafa ekki fengið að
spreyta migmeð liðinu fyrirnokkrum
mánuðum f Ijósi þess að menn voru
ekki að leika vel t þessari stöðu. Ég
hef veriö í hópnum, á 5 landsleiki að
þaki en aöeins 4 mfnútur í leik þann-
ig að það hefði verið gaman að fá
tækifæri til áð sanna sig."
Páll Þórólfsson er án efa framtíðar-
landsliðsmaður íslands.
— Ertu betri en þeir hornamenn
sem voru valdir?
;||| ég teldi mig ekki vera það get
:ég ekki búist við að aðrir telji mig
vera betri með fullri virðingu fyrir
þeim sem voru valdir. Þeir eru báðir
mjög góðir handknattleiksmenn."
— Við hverju býstu af Iandslið-
inu?
„Ég á von á þvf að það standi sig
vel og hafni í 6. sætí." ||j
— Ertu nokkuð búinn að útiloka
sæti f landsliðinu í framtíðinni?
„Þetta er enginn endapunktur fyrir
mig þvf ég ætla að sanna mig enn
frekar næsta vetu r og tryggja mér sæti
í hópnum fyrir Ólympíuleikana."
— Varstu sáttur við gengi Aftur-
eldingar?
„Mjög svo. Vilanlega sé ég eftir
Guðmundi þjálfara en éghlakka hins
yegar til að vinna með Einari Þor-
varðarsyni, verði hann ráðinn."
— Varstu svekktur yfir því að hafa
ekki verið valinn í landsliðshópinn
fyrir HM?
„Nei, því ég bjóst aldrei við að
vera valinn."
— Hvers vegna?
„Annars vegar vegna þess að það
hafa verið samstarfsörðugleikar milli
mín og Þorbergs, sem ég vil ekki
ræða því það heyrir sögunni til, og
hins vegar eru Bjarki Sigurðsson og
Valdimar Grímsson góðir leikmenn."
— Ert þú ekki betri en þeir?
„Ég er öðruvísi leikmaður en þeir.
Ég hef ákveðna kosti umfram þá og
sömuleiðis ókosti þannig að þetta er
alltaf matsatriði. Bjarki spilaði vel í
síðustu Heimsmeistarakeppni og
Valdimar á síðustu Ólympíuleikum
þannig að mér finnst eðlilegt að þeir
séu í liðinu. Hins vegar er spurning
hvort það hefði verið ákjósanlegt að
hafa þrjá menn í þessari stöðu."
— Hvað áttu marga landsleiki að
baki?
„Þaðeru nú einhverjarvöflurá því
eins og svo mörgu hjá HSI. I bókinni
Strákarnir okkar er ég skráður með
sex landsleiki og 7 mörk og það er
líklega nærri lagi."
— Hvernig heldur þú að lands-
liðið standi sig á HM?
„Mér finnst það ekki kunna góðri
lukku að stýra þegar við íslendingar
erum farnir að tala um verðlauna-
SIGUROUR SVEINSSONHF b
sæti. Slíkt er ekki raunhæft og ég er
hræddur um að við höfnum í 6. sæti,
plús eða mínus eitt sæti."
— Ætlar þú að leika áfram með
FH?
„Ég hef verið í samningaviðræðum
við önnur lið en ég er orðinn svo
mikill FH-ingur að ég sé ekki fram á
að breyta til."
— Gerirðu þér enn vonir um að
komast í landsliðið?
„Já, því líklega verður ráðinn nýr
landsliðsþjálfari eftir HM. Ég hef
verið að bíða eftir því að Þorbjörn
Jensson verði ráðinn en mér finnst
Kristján Arason og Guðmundur
Guðmundsson líka koma til greina í
stöðuna."
I
35