Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 37
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Eftir örfáa daga hefst heimsmeist-
arakeppnin í handknattleik þar sem
tæplega 400 af bestu handknatt-
leiksmönnum heims frá 24 þátttöku-
þjóðum munu etja kappi í 60 leikjum
í riðlakeppninni á aðeins 8 dögum.
Leikirnir verða 89 í heildina og eins
og gengur munu augu almennings
fyrst og fremst beinast að þeim leik-
mönnum sem skara fram úr á ein-
hvern hátt. íslendingar verða undir
mikilli pressu og leikmennirnir
munu án efa selja sig dýrt til að vera
landi og þjóð til sóma.
Það er nánast vonlaust, nema fyrir
þá sem hafa ekkert annað að gera, að
Mark Baumgartner frá Sviss verður án efa ein af stjörnum HM. Hann hóf ekki
að leika handbolta fyrr en 15 ára gamall en áður stundaði hann júdó, fótbolta
og tennis. Hann varð markahæsti leikmaður HM '93 í Svíþjóð.
U STJÖRNURNAR Á
— ÍÞRÓTTABLAÐIÐ skyggnist yfir landamærin
ásamt GUÐJÓNIGUÐMUNDSSYNI,
íþróttafréttamanni Stöðvar 2 og Bylgjunnar, og
kíkir á þá leikmenn sem eru líklegastir til að vera
mest áberandi á HM ’95.
Guðjón Guðmundsson íþrótta-
fréttamaður á Stöð 2.
leggja nöfn tæplega 400 leikmanna á
minnið og því fékk ÍÞRÓTTABLAÐ-
IÐ Guðjón Guðmundsson, íþrótta-
fréttamann og fyrrum aðstoðar-
landsliðsþjálfara, til að spá fyrir um
hvaða leikmenn muni að öllum lík-
indum vera mest áberandi í keppn-
inni og við hverju megi búast af ís-
lensku leikmönnunum.
„Fyrstan skal nefna Danann
NICOLAIJAKOBSEN en hann leikur
með GOG í Danmörku. Hann hefur
verið að skora 10-15 mörk í leik með
GOG og töluvert með landsliðinu.
Jakobsen virkar dálítið óagaður en
hann er afskaplega flinkur leikmaður
með fjölbreyttan skotstíl. Hann lék
ekki á Reykjavíkurleikunum í lok síð-
astliðins árs en á örugglega eftir að
verða mjög áberandi á HM.
í landsliði Króatíu eru nokkrir
mjög athygl isverðir leikmenn.
IZTOK PUC er tæplega þrítug skytta,
fyrrum landsliðsmaður Júgóslavíu.
Hann er þungur en rosalega skotfast-
urogfylginn sér. IRFAN SMAJLAGIC
er afar fjölhæfur hornamaður, fljótur
í hraðaupphlaupum og góður í gegn-
umbrotum. PATRIK CAVAR er mjög
útsjónarsamur og hefur skorað 256
mörk í 44 leikjum. ZLATKO SARA-
CEVIC er íslendingum að góðu kunn-
ur og þekktasti leikmaður Króatíu en
hann lét mjög að sér kveða þegar
hann lék með fyrrum Júgóslavíu.
Hann leikur með US Creteil í París.
37