Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 39

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Page 39
árið 1982. Sömuleiðis Júgóslavar, 1986 og Rússar 1993. Þrisvar sinnum hafa gestgjafarnir orðið heimsmeist- arar; Þjóðverjar árið 1938, Svíar árið 1954 og Rúmenar 1974." — Bengt Johanson, þjálfari Svía, sagði í viðtali ekki alls fyrir löngu að ekkert í leik íslenska liðsins kæmi honum á óvart. Er það ekki slæmt? „Ég hef sagt að heimsmeistara- keppnin á íslandi geti staðið og fallið með frammistöðu Héðins Gilssonar og hafa margir verið ósáttir við þau ummæli. Við eigum engan miðju- mann í líkingu við SIGURÐ GUNN- ARSSON þegar hann var upp á sitt besta en sá sem kemst næst honum er JÓN KRISTJÁNSSON. Hann hefur bara ekki fengið að spreyta sig nógu mikið. DAGUR SIGURÐSSON er of ungur þótt hann geti auðvitað blómstrað en ég er sammála því að fátt eigi eftir að koma á óvart í leik íslenska liðsins. Það sem á eftir að koma mest á óvart eru áhorfendur og ég hef trú á því að þeir verði einn sterkasti leikmaður Islands." — Hverju spáirðu um gengi lands- Iiðsins? „Ég vil vera mjög varkár í spádóm- um en ég spái okkur einu af 8 efstu sætunum. Allt þar fyrir ofan yrði frá- bært. Ég get ekki séð okkur vinna Dani í undanúrslitum þótt við séum á heimavelli. Við erum reyndar búnir að vinna þá tvívegis naumlega en í bæði skiptin vantaði þá góða leik- menn á borð við Jakobsen og voru því minni máttar. Og það voru þeir sem lærðu á þeim leikjum en ekki við. Danir eru það lið sem á eftir að koma hvað mest á óvart, að mínu mati." Flestir hallast að því að Pelle Carlén, fyrirliði Svía, muni hampa heims- meistarabikarnum. Heimsmeistara- s keppnin á Islandi gæti staðið og fallið með frammistöðu Héðins Gilssonar — Við hverju má búast við af ís- landi í riðlakeppninni? „Okkur hefur yfirleitt gengið illa með SVISS og það er algengur mis- skilningur hér heima að við séum sterkari en Svisslendingar á alþjóða- vettvangi. Það er rangt. Ég minni á að þeir urðu í 4. sæti í heimsmeistara- keppninni í Svíþjóð árið 1993. Þeir spila fremur leiðinlegan, en að sama skapi árangursríkan, handbolta. Við unnum UNGVERJA í Svíþjóð árið 1993 en þá var talað um að þeir væru með eitt efnilegasta lið heims. Síðan eru liðin tvö ár og ég er ansi hræddur um að þeir séu ekki lengur efnilegir. Þeir eru því að vissu leyti óþekkt stærð fyrir okkur og gengur oft illa á útivöllum en það er ekkert sem segir að við sigrum þá. íslendingar verða í baráttu um 1. sætið í riðlinum því við eigum að vinna TÚNIS og BANDARÍKIN auðveldlega en svo er það spurning hvort KÓREA eigi eftir að koma mönnum í opna skjöldu. Leikstíll Kóreu hefur ætíð hentað okkur illa og við vorum heppnir á Ólympíuleikunum 1992 hversu seint í keppninni við lékum við þá. Það skiptir mjög miklu fyrir Islendinga að lenda í 1. eða 2. sæti í riðlinum. Menn hafa gælt við það að við vinn- um riðilinn, leikum viðTékklendinga í 16 liða úrslitum og síðan við Dani eða Þjóðverja í 8 liða úrslitum." Heimsmeistarar í handknattleik frá upphafi: 1938 V-Þjóðverjar 1954 Svíþjóð 1958 Svíþjóð 1961 Rúmenía 1964 Rúmenía 1967 Tékkóslóvakía 1970 Rúmenar 1974 Rúmenar 1978 V-Þjóðverjar 1982 Sóvétríkin 1986 Júgóslavía 1990 Svíþjóð 1993 Rússland ✓ ^ Afram Island n SPARISJOÐUR HAFNARFJARÐAR i

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.