Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 45
faidlega verið ávísun á kiúður. Á ís-
landi eru engar hefðir fyrir móti af
þessari stærðargráðu og í raun er um
frumraun að ræða. Ég held að íslend-
ingar hafi ekki enn áttað sig á þvf um
hversu mikinn viðburð er að ræða.
Þótt handbolti sé tiltölulega lítil
flokkaíþrótt á heimsvísu er ísland
stórþjóð í greininni og við megum
ekki vanmeta það. Hér á landi eru
um 6.700 skráðir handboltaiðkend-
ur, í Noregi eru þeir um 250.000, í
Danmörku um 280.000 og í Þýska-
landi um 3 milljónir. Ef við vinnum
ekki þessar þjóðir, að okkar mati, er-
um við lélegir. Svona er metnaðurinn
á íslandi. Og hann hefur fleytt okkur
langt."
— Þurfið þið að geta boðið kepp-
endum, gestum og blaðamönnum
upp á einhverja tilbreytingu á milli
leikja?
„Á öllum keppnisstöðum verður
upplýsingamiðstöð þar sem verða
fyrirliggjandi upplýsingar um það
sem í boði er. Leikmenn og nánustu
aðstandendur liðanna munu vænt-
anlega einbeita sér að æfingum og
leikjum en blaðamenn og gestir
munu án efa hafa áhuga á að kynna
sér betur land og þjóð. Við munum
gefa út blað á degi hverjum þar sem
úrslit verða tíunduð, helstu fréttir frá
íslandi og umheiminum og það sem í
boði verður."
— Geturðu metið þann fjárhags-
legaávinningsem ísland mun hafaaf
mótinu?
„Hann mun áreiðanlega nema
hundruðum milljóna króna fyrir utan
ómetanlega kynningu á landi og
þjóð. Leikjunum verður sjónvarpað
til 28 landaog þaðererfittaðmeta þá
kynningu til fjár þegar tugir milljóna
munu horfa á leiki frá íslandi."
Hákon segir að takist íslendingum
vel upp með framkvæmd heims-
meistaramótsins muni það án efa
opna ýmsa möguleika fyrir frekara
mótshald hér á landi þótt ólíklegt
verði aðteljastað annað heimsmeist-
aramót af þessari stærðargráðu verði
haldið hér landi á næsta árhundraði.
„í þessu samhengi dettur mér í hug
sagan frá síðustu öld af unga sveinin-
um í Borgarfirði sem vildi bjóða
heimasætunni á næsta bæ á alda-
mótafagnaðinn. Hún var eitthvað
Ólafur Stefánsson, leikmaður Vals
sem hér sækir að japönum í lands-
leik á dögunum, verður að teljast
arftaki Sigurðar Sveinssonar í lands-
liðinu en mikið mun mæða á þá báð-
um á HM '95.
óákveðin, hummaði út undan sér dá-
lítið feimin en sagði loksins: „Nei,
takk, ætli ég fari bara ekki næst."
/M íþi'óttagallar
öcj biminga sett
O Barna og fiillordins
i stærdir (114 - XXL)
UliUF"
G/æsibæ• 812922
{taöö ;oslk ÖÖ(t W _ Hi á v,
1; S nR> -t Jfm |p:i
k St mamm, JBI' fgg] HP i;a ý Iwywl ~5j 1 SjMnHTH
45