Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 46

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 46
Ólafur Schram formaður HSÍ. Ólafur B. Schram hefur verið afar farsæll í starfi formanns Handknatt- leikssambands íslands sem hann hef- ur gegnt í rúm tvö ár. Það hefur varla verið öfundsvert að taka að sér for- mennsku í sérsambandi sem var í startholunum með að undirbúa stærsta og viðamesta íþróttaviðburð sem hefur farið fram hér á landi. Síðustu mánuðir hafa án efa tekið verulega á taugarnar því klukkan tif- ar og þegar þetta er skrifað er ná- kvæmlega mánuður þar til flautan gellur í fyrst leik. Veglegt blað kemur út á vegum HSÍ fyrir HM og verður því dreift á hverteinasta heimili á landinu. Blað- inu fylgir happdrættismiði og verður dregið úr seldum miðum bæði fyrir og eftir heimsmeistarakeppnina. „Við bindum töluverðar vonir við að landsmenn styðji við bakið á okkur með því að greiða happdrættismið- ana en síðast þegar við gáfum út miða seldust aðeins 6% þeirra. Tekjumöguleikar HSÍ liggja í happ- drættismiðunum, aðgöngumiðum á leikina og ef að líkum lætur verður fjárhagsstaða sambandsins komin upp fyrir núllið eftir HM." — Með hvaða hætti hefur verið grynnkað á skuldunum sem námu um 74 milljónum fyrir nokkrum ár- um? „Við sömdum við lánadrottna og sluppum þannig við dráttarvexti og lögfræðikostnað. í dag skuldar HSÍ * Kostaði 35 milljónir að fá að halda HM? * Voru atkvæði keypt til að fá HM til íslands? * Verður Þorbergur Aðalsteinsson endurráðinn? * Verður næsta stórverkefni landsliðsins árið 1999? Alþjóðahreyfing á brauðfótum! Texti: Þorgrímur Þráinsson um 8 milljónir í Landsbankanum og er með langtímaskuldir upp á 6 millj- ónir — alls um 14 milljónir nettó. Við stefnum að 2-4 milljón króna hagn- aði á þessu rekstrarári. Með því að eiga lausafé hefur okkur tekist að fá góðan afslátt á því sem við höfum þurft að kaupa og það hefur mikið að segja." — Hver var ástæða mjög slæmrar skuldastöðu HSÍ fyrir nokkrum ár- um? Menn hafa talað um að Jón H. Magnússon, fyrrum formaður HSI, hafi farið frjálslega með Visakortið. „Vissulega var Jón með kort en til þess að eiga möguleika á að fá heimsmeistarakeppnina til íslands þurfti að leggja út ígríðarlegan kostn- að. Líklega hefur það kostað sam- bandið um 35 milljónir að fá HM til íslands. Undirbúningsvinnan hófst strax árið 1986 og þurfti Jón Hjaltalín og HSÍ forystan að heimsækja fjölda ríkja, í Austur-Evrópu, Afríku og Asíu, og í raun að „kaupa" menn. Þeir gerðu það sem þurfti til að tryggja stöðu íslands og ég hefði án gefa gert slíkt hið sama hefði ég verið í þeirra sporum. Skafmiðaævintýrið Mark og mát sem HSÍ stóð að mislukkaðist algjör- lega og kostaði sambandið um 30 milljónir." — Er það rétt að sumar þjóðir hafi hreinlega verið keyptar til að greiða íslandi atkvæði sitt? „Ég gæti trúað því. Fulltrúar — segir ÓLAFUR B. SCHRAM, FORMAÐUR HSÍ, um handknattleiks- forystuna í Evrópu margra atkvæðisbærra þjóða mæta nánast mállausir á ársþingin og eru yfirleitt sammála síðasta ræðumanni. Með réttum aðferðum er hægt að hafa áhrif á slíka menn." — Hvað hefur komið þér mest á óvart eftir að hafa fengið að halda HM? „Að ekki var hægt að treysta um- mælum eins valdamesta starfsmanns IHF (Alþjóða handknattleikssam- bandsins) í þrígang, þess efnis að ís- land þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af sjónarpsútsendingar- kostnaði. Þegar hann sat síðan við hlið Erwins Lanc, forseta IHF, kann- aðist hann ekki við ummæli sín. í kjölfar þess var okkur stillt upp við vegg með að greiða 56 milljónir eða missa keppnina úr landi og þá til Spánar. Niðurstaðan varð sú að við þurftum að borga um 42 milljónir fyrir sjónvarpsútsendingarnar og sú upphæð greiðist að hluta með þeim peningum sem HSÍ fær frá IHF fyrir sjónvarpsréttinn. Við þurfum því að færa hagnaðarvonina yfir á miðasöl- una." — Hvernig verður launamálum leikmanna háttað á HM? 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.