Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 64

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 64
ViLL ÍÞRÓTTAHREYFINGIN TÓBAK? Flestir eru sammála um að íþróttaiðkun sé af hinu góða og undanfarinn ára- tug hefur vitund fólks um tengsl lífernis og heilsu far- ið mjög vaxandi. Sífellt fleiri stunda einhvers konar íþrótt sér til ánægju og heilsubótar. Einnig eigum við stóran hóp fólks sem stundar keppnisíþróttir og þar á meðal margt afreks- fólk á heimsmælikvarða. Við tengjum íþróttir gjarnan við hollustu og góðan íþróttamann við sjálfsaga og hreysti. Al- kunna er að æska landsins horfir á afreksfólk íþrótt- anna með aðdáun og virð- ingu. Mjög margt af þessu fólki er ungmennunum góð fyrirmynd, ekki bara vegna íþróttar sinnar heldur sök- um lífernis að öðru leyti, t.d. bindindis á áfengi og tóbak. Gott dæmi um slík- an afreksmann er Magnús Scheving. í vitund okkar eru íþróttafélögin og íþrótta- hreyfingin í heild, ekki síð- ur en einstakir íþróttamenn, ímynd margra góðra lífsgilda. En stendur íþróttahreyfingin undir þeim vænt- ingum sem til hennar eru gerðar í þessu sambandi? Á sumum sviðum getur hún a.m.k. gert betur. Tóbaksnotkun er oft gróflega blandað saman við íþróttaiðkun. Sumir íþróttamenn og þjálfarar leyfa sér að reykja á æfinga- og keppnis- svæðum og enginn virðist hafa neitt við það að athuga. Nýjasti óþverrinn í tóbaksfjölskyldunni, snuffið, er einnig talsvert algengt í hópi íþrótta- manna. Fyrir þá sem ekki vita er þetta snuff fínkornótt tóbak til ítroðslu í nasir og á bak við varir. Þessi óþverri veldur nikótínfíkn og margir neyt- endur hans fara síðar að reykja. Þar að auki er þetta form tóbaks einkar vel fallið til myndunar krabbameins í nefi, munni og nálægum líffærum. íþróttamenn og þjálfarar nota tó- bak oft fyrir framan unga aðdáend- ur. Það er í hróplegri andstöðu við þá ímynd sem íþróttamenn og íþróttahreyfingin eiga að hafa og vilja áreiðanlega hafa. í raun er þetta óbein op mjög öflug auglýsing á tó- baki. Obein auglýsing þar sem íþróttamennirnir fá ekki greitt fyrir sitt framlag og öflug vegna þess að þeir tengja notkun tóbaks við hollustu og hreysti. í þessu samhengi má líka nefna þá ömurlega stað- reynd að á nýafstöðnu þingi var það einn af æðri mönnum íþróttal ífsins í landinu sem átti drjúgan þátt í að koma í veg fyrir að ný tóbaksvarnarlög næðu fram að ganga. Maðurinn er sonur mikils íþrótta- manns, íþróttamaður sjálf- ur og aukin heldur formað- ur íþróttanefndar ríkisins. Það er erfitt að sjá að þessi afstaða INGA BJÖRNS AL- BERTSSONAR sé í þágu æsku landsins og íþrótt- anna en tóbaksiðnaðurinn má vel við una og hlýtur að telja sig eiga þarna hauk í horni. Það er kominn tími til að íþróttahreyfingin hafi ekki bara skoðun á þessum mál- um á tyllidögum, heldur marki sér eigin stefnu í tó- baksvarnarmálum. Nær- tækt og sjálfsagt markmið slíkrar stefnu ætti að vera það að íþróttamenn lýsi öll sín vígi, þ.e. íþróttamannvirki, hvort sem er úti eða inni, tóbakslaus. Einn- ig að gera þá kröfu til íþróttaþjálfara að þeir noti ekki tóbak í vinnutíman- um. Þá mættu skipulagðar tóbaks-, áfengis- og aðrar vímuefnavarnir oftar vera hluti af starfi þjálfara. Við útfærslu slíkrar stefnu hlýtur hreyf- ingin einnig að gera þá kröfu til tals- manna íþróttamála í landinu að þeir séu ætíð minnugir ábyrgðar sinnar gagnvart æsku landsins og hugsjón íþróttanna. PÉTUR HEIMISSON, LÆKNIR EGILSSTÖÐUM 64

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.