Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 26
Fram lag Íslenskr ar erfðagrein ing­ ar í bar átt unni við COVID­19 er ómet an­ legt. Það vit um við öll og það verður seint fullþakkað. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.   06.07.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 8. júlí 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | samflot Laugarnar í Reykjavík w w w. i t r. i s Miðvikudagskvöld í sumar kl. 20–21 Grafarvogslaug Flot með jóga Sundhöll Tónleikaflot með neðansjávartónlist Árbæjarlaug Flot með tónheilun Vesturbæjarlaug Vatnadans og flot Breiðholtslaug Flot með jóga Ylströnd Rósabað og samflot 8. júlí 15. júlí 22. júlí 29. júlí 5. ágúst 15. ágúst Nú þegar Íslensk erfðagrein­ing hefur sagt sig frá þátt­töku í kórónaveiruskimun komufarþega á Keflavíkurflug­ velli, hefur ekki staðið á fyrirsjáan­ legri hneykslun ákveðinna hópa samfélagsins. Ekki leið á löngu þar til Kára Stefánssyni var lýst sem „freka kallinum“ á samfélags­ miðlum, en það er staðlaður frasi sem er einkum notaður af karl­ mönnum með lítið sjálfstraust, til að lýsa vanþóknun á kynbræðrum sínum – þeim sem hafa til dæmis notið fjárhagslegrar velgengni, þeim sem hika ekki við að lýsa skoðunum sínum á afdráttarlaus­ an hátt eða þeim sem dirfast að gæta viðskiptahagsmuna sinna. Allt þrennt á við Kára Stefánsson og því liggur hann vel við höggi hneykslunarhersins á netinu. Framlag Íslenskrar erfða­ greiningar, ÍE, í baráttunni gegn faraldrinum, er vart hægt að meta sem skyldi. Fram kom í viðtali Bylgjunnar við Sigurð Guðmunds­ son, fyrrverandi landlækni, að kostnaður við skimun komufar­ þega á Keflavíkurflugvelli hefði líklegast kostað um 350­400 milljónir hingað til – „að vísu borgað af ÍE að mestu leyti,“ sagði landlæknir emeritus. Ef litið er til heildarumfangs framlags ÍE frá upphafi aðgerða í mars, væri það varfærnislega ályktað að kostnaður fyrirtækisins sé vel á annan milljarð króna. En nú þegar stjórnendur fyrirtækisins telja það ótækt að taka frekari þátt í skimuninni í Keflavík, vegna þess að hefðbundinn rekstur ÍE hefur setið á hakanum mánuðum saman, er það frekja og eigingirni? Sökin liggur bara hjá stjórnvöldum að vera ekki löngu búin að gera þjónustusamning við ÍE. Einnig hefur verið nefnt að brotthvarf ÍE frá Keflavík sýni að ótækt sé að einkaaðilar eigi aðild að rekstri heilbrigðismála. Rangt. Aðkoma ÍE sýnir að einkaaðilar eru betur í stakk búnir til að bregð­ ast við aðstæðum sem þessum. Það þarf ekki að líta á annað en tölfræði skimana, þar sem kemur í ljós að ÍE tók og greindi marg­ falt f leiri sýni en veirufræðideild Landspítalans. Er það þó ekki sagt til að kasta rýrð á heilbrigðisstarfs­ fólk á vegum hins opinbera, sem gerir auðvitað alltaf sitt besta eftir því sem mannafli og vinnuað­ stæður bjóða upp á. Raunar má segja að ákvörðun ÍE, að hætta skimun í Keflavík, sé holl lexía fyrir stjórnvöld. Nú þarf að bregðast hratt við og þá duga engir starfshópar, verkefnastjórar eða stýrinefndir til. Þaðan af síður vettlingatök. Og svo því sé til haga haldið, þá er alveg öruggt að þegar saga kórónaveirufaraldursins á Íslandi verður skrifuð, mun þáttur Kára Stefánssonar og Íslenskrar erfða­ greiningar reynast ómetanlegur – jafnvel fordæmalaus. Freki kallinn Kári Stefáns? Þórður Gunnarsson SKOÐUN Hagnaður Ísfélags Vestmannaeyja var ríf lega 10 milljónir dalir á síðasta ári, samkvæmt nýbirtu uppgjöri félagsins. Þrátt fyrir loðnubrest síðasta árs dróst hagnaður félagsins saman um aðeins 1,7 prósent milli ára. Ísfélagið á fimmtung aflamarks loðnu. Sé litið til rekstrartekna Ísfélagsins eru ummerki loðnubrests síðasta árs augljós. Rekstrartekjur drógust saman um 28 pró­ sent og námu 67,8 milljónum dali á síðasta ári. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjár­ magnsliði og skatta dróst saman um 16 pró­ sent milli ára, en hlutfall rekstrarhagnaðar af heildartekjum hækkaði þó milli ára og hljóðaði upp á 25,5 prósent, samanborið við 21,9 prósent á árinu 2018. Eigið fé Ísfélagsins í árslok var 143,7 millj­ ónir dala og eiginfjárhlutfall rúmlega 50%. Bókfært virði aflaheimilda Ísfélagssam­ stæðunnar var metið 125,6 milljónir dala í árslok 2019. – thg Óbreyttur hagnaður þrátt fyrir loðnubrest Guðbjörg Matthíasdóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.