Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hún er sannarlega þreytandi sú lenska stjórnmála- manna að svara kröfum um úrbætur alltaf með steypu. Það er verk að vinna og af nágrönnum okkar getum við margt lært. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Ný tvöföld virkni sem veitir hraða og langvarandi vörn gegn tannkuli. Á lokadegi Alþingis var samþykkt þingsálykt-unartillaga Samfylkingarinnar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu, en fyrsti f lutningsmaður er greinarhöfundur. Á Íslandi hafa aldrei verið fleiri innflytjendur en nú um þessar mundir og hefur fjölgað býsna hratt undanfarin ár, þótt eðlilega sé eitthvert uppihald á þeirri þróun eins og nú hagar til um gervallan heiminn. Við eigum langt í land með að geta sagst standa framarlega í móttöku innflytjenda og þeir standa hér höllum fæti eins og víða í öðrum löndum. Við sjáum það á vinnumarkaðnum. Atvinnuleysi er til dæmis meira hér meðal innflytjenda en innfæddra. Reynsla annarra þjóða sýnir einnig að launakjör innflytjenda eru lakari en innfæddra. Samkvæmt úttektum nemur það allt að 20-30 prósent í sambæri- legum starfsgreinum. Þá eiga innflytjendur á brattann að sækja á hús- næðismarkaði og við þekkjum mörg nöturleg dæmi þess sem ratað hafa í fjölmiðla. Mun færri hefja framhaldsnám og enn færri ljúka framhaldsnámi en innfæddir, hátt brottfall er stað- reynd og það er takmarkaður stuðningur í skóla- kerfinu. Við metum með ófullnægjandi hætti menntun inn flytjenda og viðurkennum ekki vel fagleg rétt- indi. Í Evrópu er sem dæmi áætlað að 22 prósent inn- flytjenda hafi menntun umfram það sem krafist er í viðkomandi starfi, á móti 13 prósentum innfæddra. Fjölgun innflytjenda hefur verið mikil hjá okkur á allra síðustu árum, miðað við nágrannalöndin og við höfum stutta reynslu á þessu sviði. Svíar og Kanada- menn hafa til dæmis þróað með sér kerfi í sinni innflytjendastefnu og njóta þess í betri þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu. Það er verk að vinna og af nágrönnum okkar getum við margt lært. Við skulum vinna að því, og gera það hluta af samfélagssáttmála okkar, að vera þjóðin sem veit og skilur hvað innflytjendur skipta miklu máli. Langt í land Guðjón S. Brjánsson þingmaður Sam- fylkingarinnar Sérstaðan Framsóknarf lokkurinn, einn af átta f lokkum sem eiga sæti á Alþingi, hefur átt erfitt með að mynda sér sérstöðu. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, stefn- ir að því að taka við f lokknum á næstunni. Hefur hún þegar haf- ist handa við að marka f lokkn- um sérstöðu með því að vera sá f lokkur sem raðar f lokks- mönnum á ríkisjötuna. Getur þá almenningur gengið að því vísu að þeirra atkvæði tryggi Framsóknarmönnum vinnu. Það er voða erfitt að túlka skipun Framsóknaroddvitans Lárusar Sigurðar Lárussonar í stól stjórnarformanns MSN, hið nýja LÍN, með öðrum hætti. Máttarstólpi Það má segja að landið skiptist nú í tvo f lokka, Ríkisstjórnar- liðið og Kárafylkinguna. Báðar hreyfingar hafa mikið til síns máls. Það er makalaust að það taki ríkið marga mánuði að gera það sem Kárafólkið gerði á nokkrum dögum. Á móti kemur að það þarf að ráða verkefna- stjóra til að gera hlutina faglega, einhvern máttarstólpa sem hefur mikla þekkingu á mál- inu og hefur traust þjóðarinnar sér að baki. Það er augljóst að Björn Ingi Hrafnsson á að taka við því verkefni. Hann er meira að segja með Framsóknarteng- ingar ef það lætur einhverjum líða betur. Kári Stefánsson veit best sjálfur hvaða bakland hann hefur þegar hann gerir kröfur í þágu íslensks heilbrigðiskerfis, en það hafa því miður orðið örlög hans helstu hugðarefna að þeir sem hann beinir máli sínu til bregðast við eins og uppgefnir foreldrar fremur en finnendur fjársjóðs. Þegar Vigdís Hauksdóttir, þá formaður fjárlaganefndar, sakaði Pál Matthíasson forstjóra Landspítalans um and- legt ofbeldi, var Kára Stefánssyni nóg boðið. Árið var 2015 og Páll hafði talað máli veikra og meiddra skjólstæðinga spítala síns fyrir daufum eyrum fjárlaganefndar sem hafði fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar til meðferðar. Í grein sem Kári birti í Fréttablaðinu 10. desember 2015 er dapurlegri stöðu heilbrigðiskerfisins lýst: „Það hefur ekki fylgt framþróun í læknisfræði, hvorki hvað snertir notkun á tækjabúnaði né bestu lyfjum og helstu stofnanir þess eru hýstar á þann veg að það kemur í veg fyrir að hægt sé að veita nægilega mikla og góða þjónustu. Hnignun heilbrigðiskerfisins hefur að mestu leyti verið óháð því hvaða stjórnmálaflokkar hafa verið við völd, vegna þess að hún hefur verið stöðug og samfelld.“ Svo hafði Kári í hótunum við háttvirta fjárlaganefnd: „Ef hún breytir ekki frumvarpinu á þann veg að mun meira fari til Landspítalans, munum við nokkrir félagar safna 100.000 undirskriftum undir plagg sem hvetur landsmenn til þess að kjósa aldrei aftur þá stjórn- málaflokka sem standa að þessari ríkisstjórn, vegna þess kulda og afskiptaleysis sem hún sýnir sjúkum og meiddum í okkar samfélagi. Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ skrifaði Kári og þjóðin staðfesti það með undirskrift sinni. Á þremur mánuðum sló Kári Íslandsmet með söfnun 85 þúsund undirskrifta undir þá kröfu að Alþingi verji árlega 11 prósentum af vergri landsframleiðslu til reksturs heilbrigðiskerfisins. Alþingi hefur ekki sýnt kröfu Kára og þjóðarinnar minnsta áhuga, en rúmum tveimur árum síðar var fyrsta skóflustunga nýs þjóðarsjúkrahúss þó tekin. Fram- kvæmdin á auðvitað lengri aðdraganda og enginn efast lengur um mikilvægi verksins, þótt menn þvaðri enn um staðsetninguna í þágu pólitískra hagsmuna. En hún er sannarlega þreytandi sú lenska stjórnmálamanna að svara kröfum um úrbætur alltaf með steypu. Nú býðst Kári til að hýsa nýja faraldsfræðistofnun, sem hann telur brýnt að sett verði á fót undir stjórn sóttvarna- læknis. Boðið er afþakkað, en steypuvinnan sett á fullt á hriplekri veirufræðideild Landspítalans. Heilbrigðiskerfið verður ekki eitt fyrir barðinu á steypunni, heldur er þetta útbreitt vandamál í ríkis- rekstrinum. Þegar búið var að byggja vígalegt öryggis- fangelsi að bandarískri fyrirmynd á Hólmsheiði, kom í ljós að ekki var til fjármagn til að reka það. Vandamálið var ekki skortur á steypu, heldur hafði rekstur íslenskra fangelsa verið fjársveltur um árabil og er enn. Í sparnaðar- skyni þarf nú að loka fangelsinu á Akureyri, því fangelsi sem fangarnir sjálfir hafa helst talið sæmilega vandað og mannbætandi. Orð Kára falla í sama grýtta jarðveg og kröfur íslensku glæpamannastéttarinnar og við höldum áfram að fara á mis við þá fjársjóði sem eru kunnátta, hugvit og vönduð, fullfjármögnuð þjónusta. Steypa 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.