Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 12
8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Það hefur gengið brösuglega hjá Aston Villa að hala inn stig í ensku úrvals- deildinni á leiktíðinni. Slæmt gengi Villa-manna fór í fínustu taugar Tyrone Mings og Anwar El Ghazi, sem rifust eins og hundur og köttur í leik Aston Villa á móti West Ham. Liðsfélagar þeirra náðu þó að skakka leikinn. Joe Gomez, varnarmaður Liverpool, og Raheem Sterling, sóknarmaður Manchester City, háðu harða rimmu í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Erjur þeirra héldu áfram á æfingu enska landsliðsins skömmu síðar, sem varð til þess að Sterling var hent úr enska landsliðshópnum í einn leik. Eftir að hafa skipst á orðum í hálfleik í leik Tottenham Hotspur og Everton, náðu Hugo Lloris og Son Heung-Min, samherjarnir hjá Tottenham Hotspur sáttum að leik loknum. Mynd/Getty Enski pörupilt- urinn Lee Bow- yer og Kieron Dyer, sem léku með Newcastle, fengu nóg af hvorum öðrum og lentu í áflog- um. Greame Souness, stjóri liðsins, sektaði lærisveina sína. Craig Bellamy var ekki sáttur við að John Arne Riise rifi í mikrófóninn þegar leikmenn Liverpool skelltu sér í karókí í æfingaferð liðsins í Portúgal. Bel- lamy lét ekki staðar numið við að uppnefna Riise á karókíbarnum. Þegar á hótelið var komið réðist Walesverjinn að Norðmanninum með golfkylfu. ENSKI BOLTINN Hugo Lloris, mark- verði og f yrirliða Tottenham Hotspur, lenti saman við samherja sinn, Son Heung-Min, sóknarmann Lundúnaliðsins, í leik liðsins gegn Everton í 33. umferð ensku úrvals- deildarinnar í knattspyrnu karla fyrr í vikunni. Franski markvörðurinn var ekki sáttur við varnarvinnu Suður-Kór- eumannsins og lét hann heyra það á leið þeirra inn í búningsklefa í hálf- leik. Tottenham Hotspur bar hins vegar sigur úr býtum í leiknum og allt féll í ljúfa löð á milli leikmann- anna að leik loknum. José Mourinho, knattspyrnu- stjóri Tottenham Hotspur, tók sök- ina á kýtingi leikmanna sinna á sig, og sagði þetta sýna að leikmönnum væri ekki sama um frammistöðu hvers annars. Þetta gleddi sig hins vegar, frekar en að angra. Fréttablaðið tók saman erjur nokkurra núverandi og fyrrver- andi samherja í enska boltanum í gegnum tíðina og má sjá þær á myndunum hér til hliðar. Slagsmál sundraðra samherja Fótboltamenn eru margir hverjir miklar tilfinningaverur og það gerist við og við að þeim hleypur kapp í kinn. Endrum og eins beinist reiði þeirra að samherja og dæmi um slíkt tilvik átti sér stað nú í vikunni. FÓTBOLTI Víkingur mætir til leiks án þriggja lykilleikmanna þegar liðið fær Val í heimsókn, í fimmtu umferð Íslandsmótsins í knatt- spyrnu karla á heimavelli hamingj- unnar í kvöld.  F o s s v o g s p i l t a r   v e r ð a án  þriggja  manna varnarlínu sinn ar  úr leiknum gegn KR í síð- ustu umferð, en þeim Kára Árna- syni,  Sölva Geir Ottesen og Hall- dóri Smára Sigurðarsyni var vísað af velli með rauðu spjaldi í þeim leik og eru þar af leiðandi í leikbanni.   Valsmenn mæta hins vegar særðir til leiks, eftir að hafa fengið skell  á móti Skagamönnum um síðustu helgi. Valur er með sex stig eftir fjóra leiki en Víkingur fimm. Breiðablik, sem trónir á toppi deildarinnar með 10 stig, etur kappi við FH, sem hefur líkt og fjögur önnur lið sex stig um miðja deild. Gísli Eyjólfsson fór meiddur af velli hjá Breiðabliki þegar topp- liðið gerði jafntefli við KA í síðustu umferð og hann verður líklega fjarri góðu gamni í þessum leik. FH-ingar vonast til þess að Guð- mann Þórisson og Pétur Viðarsson verði klárir í slaginn í vörn þeirra, sem var vængbrotin í tapinu gegn Víkingi í síðasta deildarleik Hafn- arfjarðarliðsins. Logi Tómasson, sem kom til FH sem lánsmaður frá Víkingi í lok júní, gæti komið inn í varnarlínuna í þessum leik. Þá leiða ÍA  og  HK saman hesta sína  á  Akranesi, en Skagamenn eru eitt þeirra fimm liða sem hafa sex stig og HK-ingar eru með fjög- ur. Nýliðarnir sem sitja í botnsæt- unum með eitt stig hvort lið, berjast um mikilvæg stig í Grafarvogi. – hó   Vængbrotnir Víkingar mæta Valsmönnum FÓTBOLTI Ögmundur Kristinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, mun skipta um vinnustað í Grikk- landi eftir að yfirstandandi leiktíð lýkur þar í landi. Ögmundur hefur leikið með gríska liðinu Larissa frá því árið 2018, en liðið hefur bjargað sér frá falli, eftir harða fallbaráttu á keppn- istímabilinu sem senn fer að ljúka. Þessi 31 árs gamli markvörður hefur skrifað undir samning við Olympiacos, sem hefur nú þegar tryggt sér gríska meistaratitilinn í 45. skipti í sögu félagsins. Liðið er það sigursælasta í sögu grísku efstu deildarinnar. – hó Ögmundur færir sig um set í Grikklandi Blikinn Viktor Karl Einarsson. Ögmundur verður leikmaður Olympiacos á næstu leiktíð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.