Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 33
ÞAÐ ER MIKIL PÓLAR- ISERING Í GANGI OG ÞÁ ER SPURNING HVORT TÓN- LISTIN EIGI HUGSANLEGA AÐ TAKA AFSTÖÐU Í UMRÆÐUNNI HVERJU SINNI, OG EF HÚN TEKUR AFSTÖÐU HVERNIG Á HÚN ÞÁ AÐ GERA ÞAÐ? VERTU Í RÉTTA PAKKANUM Í SUMAR! N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Norrænir músíkdagar verða haldnir í Reykjavík 21.-23. október 2021. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um þátttöku í hátíðinni, en hægt er sækja um til 17. júlí næstkomandi. Undirbúningur fyrir hátíðina er í fullum gangi, en Tinna Þor- steinsdóttir er listrænn stjórnandi hennar. „Norrænir músíkdagar er ein af elstu, samfelldu klassísku tónlist- arhátíðum í heimi, var fyrst haldin árið 1888. Stundum hafa liðið nokk- ur ár á milli þess sem hún hefur verið haldin. Hún skipar veiga- mikinn sess í tónlistarsamfélagi Norðurlandanna og er mikilvæg, bæði fyrir tónskáld að fá verkin sín f lutt og fyrir tónlistarf lytjendur. Eigi ómerkari tónskáld en Sibelius og Nielsen hafa stjórnað verkum sínum á hátíðinni. Norðurlandaráð tónskálda stendur fyrir hátíðinni, en Tónskáldafélag Íslands sér um alla skipulagningu fyrir Íslands hönd. Norðurlöndin fimm skiptast á að halda hana og hún fer fram á fimm ára fresti á Íslandi. Fyrst var hún haldin hér á landi árið 1954,“ segir Tinna. „Áherslan er á sam- tímatónlist í klassíska geiranum, en þar hafa í gegnum tíðina verið alls kyns straumar og stefnur. Hátíðin leitast við að endurspegla hvað er að gerast hverju sinni og miðlar því til samfélagsins.“ Tónlistin bregst við Þema hátíðarinnar er Impact – áhrif. „Ég ákvað að hafa þema um það Tónlistarhátíð um áhrif Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í Norrænum músíkdögum í Reykjavík á næsta ári. Áhersla á frumflutt verk. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is „Tónlistin hefur alltaf tekið afstöðu,“ segir Tinna sem er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir hádegistón-leikum með íslenskum organ- istum alla fimmtudaga í sumar til 20. ágúst. Á tónleikum fimmtudaginn 9. júlí kl. 12.30 leikur Kári Þormar, organ- isti í Dómkirkjunni, Mars og úr Plánetunum eftir G. Holst, Adagio í C-dúr eftir W.A. Mozart, Prelúdíu og fúgu í G-dúr og Vater unser in Himmelreich eftir Böhm, verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og Finale úr 6. sinfóníu Ch.M. Widor. Ef tir píanónám hjá Jónasi Ingimundar syni og orgelnám hjá Herði Áskelssyni, hélt Kári Þormar í framhaldsnám til Þýskalands, þar sem hann lauk A-kirkjutónlistar- námi frá Robert Schumann háskól- anum í Düsseldorf með 1. einkunn. Kári hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi sem organisti, píanókennari og kórstjóri, en á þeim vettvangi var hann tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna með Kór Áskirkju fyrir geisladisk- inn Það er óskaland íslenskt. Kári tók við stöðu dómorganista árið 2010. Kári leikur í Hallgrímskirkju Hádegistónleikar eru á fimmtu- dögum í Hallgrímskirkju. hvernig tónlistin getur tekist á við það sem er að gerast í heiminum í dag. Það er mikil pólarisering í gangi og þá er spurning hvort tónlistin eigi hugsanlega að taka afstöðu í umræðunni hverju sinni, og ef hún tekur afstöðu hvernig á hún þá að gera það?“ segir Tinna. „Tón- listin hefur alltaf tekið afstöðu, sem dæmi má taka 68-kynslóðina. Tón- listin hefur líka risið upp gegn því sem hefur verið stefna þá stundina. Þannig hefur tónlistin brugðist við því sem er að gerast hverju sinni.“ Hátíðin stendur í þrjá daga og fjöldi erlends tónlistarfólks mun mæta á hátíðina, auk íslenskra listamanna. Tinna segir að sérstök áhersla verði á frumflutt verk. „Við reiknum með að um 100 tónskáld eigi verk á hátíðinni og það verður krökkt af tónleikum. Við erum líka að vinna með ungu fólki sem ekki hefur samið tónverk áður og fáum það til að semja.“ Meðal f lytjenda á Norrænum músíkdögum á næsta ári má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Schola Cantorum, Ensemble Adapter og Caput. Orgel Hallgrímskirkju með midi-útbúnaði kemur við sögu á hátíðinni, en Tinna segir það bjóða upp á óendanlega möguleika til f lutnings. Hljóðfærasýning verður í Hörpu með nýjum hljóðfærum, á þremur hæðum. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 8 . J Ú L Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.