Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Þótt maður hafi stundum lent í veðrum á haustin við hvalveið- arnar þá slapp allt fyrir horn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skafti Þórisson Skólabraut 15, Reykjanesbæ, lést á heimili sínu, mánudaginn 29. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 10. júlí kl. 11. Jónína Helga Skaftadóttir Karl Heiðar Brynleifsson Einar Þórir Skaftason Sjöfn Þórgrímsdóttir afabörn og langafabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og vinur, Sölvi Steinn Ólason Austurvegi 6, Þórshöfn, varð bráðkvaddur á heimili sínu að morgni 26. júní síðastliðins. Útför hans fer fram í Bústaðakirkju, föstudaginn 10. júlí, kl. 11.00. Sérstakar þakkir færum við viðbragðsaðilum á Þórshöfn, sem og þeim sem hafa sýnt okkur samúð og hlýhug. Eva Björk Maciek Jablonski Kristín Láretta Elvar Árni Grettisson Sara Lind Guðmundur Jónsson Hjördís Anna Bjarki Freyr Hauksson Helgi Snær Margrét Steinunn Pálsdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Jörundsdóttir frá Hrísey, lést á Hrafnistu, miðvikudaginn 24. júní sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á styrk til Sumarbúða Reykjadals, kt. 630269-0248. Banki 301-26-53. María Aldís Kristinsdóttir Haraldur G. Blöndal Friðgeir Sv. Kristinsson Aðalheiður S. Jörgensen Jörundur Kristinsson Hafdís Þorsteinsdóttir Jóhannes Kári Kristinsson Ragný Þóra Guðjohnsen barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegi, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kári Pálsson Þormar rafeindavirkjameistari, lést 30. júní á Vífilsstaðaspítala. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju á morgun, fimmtudaginn 9. júlí, klukkan 15. Helga Rósa Þormar Jóhannes Þormar Margrét Hilmisdóttir Páll Þormar Elín Guðmundsdóttir Sigurveig Þormar Njáll Jóhannesson Sigfríð Þormar Svanur Stefánsson Kári Þormar Sveinbjörg Halldórsdóttir börn og langafabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Frank Norman Benediktsson lést á Landspítalanum í Fossvogi, föstudaginn 22. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju, föstudaginn 10. júlí, kl. 13. Marie Hovdenak Siv H. Franksdóttir Þór Daníelsson Freyr Franksson Eyþór Árni Franksson Katrin Sande barnabörn og barnabarnabörn. Jú, þetta er stóri smellurinn, en veiran truflar allar okkar áætl-anir um almennileg veisluhöld, lýsir Halldór Friðrik Olesen vél-stjóri, inntur eftir hátíðahöldum í tilefni sjötíu og fimm ára afmæl- isins sem er í dag. Þegar viðtalið er tekið  er hann staddur með frúnni í sumar- bústað ofarlega í Grímsnesinu. „Birkið syngur allt af lúsmýi hér en við látum það ekkert truf la okkur,“ segir hann hress. Annars kveðst hann vera Kópa- vogsbúi. „En ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík, nánar tiltekið í Vogahverf- inu, innan um skáldin og nefndu það – en þegar ég fór að búa þá færði ég mig í Kópavoginn.“ Spurður út í helstu viðfangsefni á ævinni kveðst Halldór hafa valið fyrst iðnnám í rennismíði, en dokað stutt við í því fagi og farið í Vélskólann. „Eftir útskrift þar 1969 fór ég  beint á hval- veiðar og var á þeim meðan þær voru og hétu fyrir alvöru. Kunni því vel og hef farið í afleysingar eftir að þeim var startað aftur. 1975 fór ég að kenna við Vélskólann, það átti vel við mig en babb kom  í bátinn þegar áfangakerfið  tók gildi  í Sjómannaskólanum af fullum þunga, þá urðum við að fara burtu nokkuð margir kennarar, en ég fékk starf í Slysavarnaskóla sjómanna sem þá var verið að starta. Var þar í ellefu ár á gömlu Sæbjörginni og með námskeiða- hald allt í kringum landið, þangað til aftur losnaði pláss fyrir mig í Vélskól- anum. Þeir hafa ekkert verið margir húsbændurnir.“ Halldór er líka einn af hollvinum hins sextuga varðskips Óðins. „Við erum sex vélstjórar sem höfum sett fastan punkt í tilveruna og hist á mánudagsmorgnum í Óðni vestur á Granda. Erum búnir að vera að klappa vélunum þar í nokkur ár og náðum að gera þær gangfærar á ný, eftir langa stöðu og fórum prufutúr um daginn. Mánaðarlega mæta líka f leiri sem tengjast skipinu og fá sér kaffi- sopa með okkur, svo það er heilmikill klúbbur í kringum Óðin.“ Vélar um borð hafa breyst mikið frá því  Halldór byrjaði sem vélstjóri, að hans sögn. „Hvalveiðibátarnir eru einu skipin í dag með gufuvélar, en nýju skip- in ganga fyrir dísil og ýmislegt er fjar- stýrt. Maður þarf auðvitað að kunna á hlutina, en með allt öðrum hætti en var. Það er óhætt að segja að maður hoppi aftur í tímann í Óðni.“ En hefur hann komist í hann krappan á sjó? „Nei, ekki get ég sagt það, þótt maður hafi stund- um lent í veðrum á haustin við hvalveið- arnar þá slapp allt fyrir horn.“ Svo er það afatitillinn – tímabært að forvitnast um fjölskylduna. „Konan mín heitir Guðný Helga Þorsteinsdóttir og er úr Keflavík. Börnin okkar voru fjögur en við misstum dóttur okkar á besta aldri, það var mikið högg. Afa- og ömmubörn- in eru átta, og langafa- og -ömmugrisl- ingarnir tveir. Við vorum búin að stíla upp á að hitta allt þetta góða fólk um helgina í Grímsborgum hjá honum Ólafi Laufdal, en veiran er að eyðileggja það. Við hjónin ætlum bara að verja afmælis- deginum í Stykkishólmi – við sjóinn!“ gun@frettabladid.is Veiran truflar áætlanir um almennileg veisluhöld Halldór Friðrik Olesen er sjötíu og fimm ára í dag. Hann er vélfræðingur, renni- smiður, hvalveiðimaður og kennari, en kynnir sig í símaskránni sem vélfræðing og afa. Hann er hollvinur hins sextuga skips Óðins og átti þátt í að koma því í gang nýlega. Halldór Friðrik hefur smekk fyrir fallegum bílum og er í fornbílaklúbbnum, hér við Rover 100 af árgerð 1961. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Merkisatburðir 1362 Grimmilegur bardagi er háður á Grund í Eyjafirði, þar fara Eyfirðingar að Smiði Andréssyni hirðstjóra og mönnum hans og drepa þá. 1497 Vasco da Gama heldur í fyrsta leiðangur sinn til Ind- lands, umhverfis Afríku. 1903 Þessi dagur er talinn marka upphaf síldarsöltunar á Siglufirði og þar með síldarævintýrsins mikla. 1922 Ingibjörg H. Bjarnason er kjörin á þing fyrst kvenna á Ís- landi og tekur hún sæti á Alþingi 15. febrúar 1923. 1926 Ríkisstjórn undir forsæti Jóns Þorláks- sonar tekur til starfa. 1987 Ríkisstjórn undir forsæti Þorsteins Páls- sonar sest að völdum. Jóhanna Sigurðardóttir á sæti í stjórninni og er þriðja konan til að gegna ráðherraembætti á Íslandi. 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.