Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 22
Forstjórar Hertz og Höldurs, sem eru á meðal stærstu bílaleiga lands- ins, segja að fyrirtækin hafi ekki þurft sértækar aðgerðir í lánamál- um í tengslum við COVID-19 aðrar en að fresta greiðslu lána, eins og öðrum fyrirtækjum hafi staðið til boða. Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri Hertz, segir í samtali við Markaðinn að það varpi ljósi á það traust sem lánveitandi bílaleigunnar hafi á fyrirtækinu, að hann hafi nýverið lánað fyrir kaupum á tæplega 400 bílum. Efnahagsreikningur bílaleiga er stór og kaup á bílum eru fjár- mögnuð með aðstoð lánastofnana. Árið 2018 námu eignir Höldurs, sem starfar undir merkjum Europcar og Bílaleigu Akureyrar, 14,6 milljörð- um króna og vaxtaberandi skuldir voru tæplega 13 milljarðar. Sama ár námu eignir Hertz 5,6 milljörðum króna og skuldir voru tæpir fjórir milljarðar króna. Um er að ræða nýjustu opinbera ársreikninga fyrirtækjanna. Steingrímur Birgisson, forstjóri Höldurs, segir í samtali við Markað- inn að fyrirtækið, sem hefur verið í rekstri frá árinu 1966, hafi sterka stöðu á innanlandsmarkaði. „Það hjálpar okkur,“ segir hann. Á heima- markaði sé mikið um skammtíma- leigu, langtímaleigu og auk þess hafi Höldur samning við Ríkiskaup. Að hans sögn hafi aðalmálið í rekstrinum að undanförnu lotið að því að semja við bílaumboðin, um að þurfa ekki að kaupa 1.300 bíla sem Höldur hafði pantað en hafði ekki not fyrir, vegna breyttra aðstæðna í kjölfar COVID-19. Ásamt því að starfsmannafjöldi taki mið af breyttu umfangi. Steingrímur segir að í ljósi þess að bílaleigubílunum verði ekið minna, sé handhægt að lengja í lánunum, enda mun endingartími bílanna lengjast að sama skapi. Höldur rekur einnig bílasölu, bílaverkstæði, dekkjaverkstæði og er í fasteignarekstri. Mestu umsvif- in eru hjá bílaleigunni. Sigfús Bjarni segir að Hertz sé stöndug bílaleiga, sem hafi verið í rekstri í 48 ár. Bankinn hafi sýnt því skilning að lítið verði um ferða- menn á næstunni. „Bankinn hefur veitt okkur, eins og mörgum öðrum, greiðslufrest,“ segir hann. Hann segir að Hertz hafi gengið vel að selja notaða bíla úr flotanum að undanförnu og að meiri ásókn sé í langtímaleigu en áður, enda séu fleiri Íslendingar á landinu en alla jafna. Sigfús segir að Hertz hafi pantað tæplega þúsund bíla. en eftir að COVID-19 braust út, var samið við bílaumboðin um að kaupa þess í stað 400 bíla í ár. Þar spili inn í að bílaframleiðendur lokuðu verk- smiðjum um tíma og gátu því ekki afhent bíla. helgivifill@frettabladid.is Stórar bílaleigur hafa ekki þurft sértækar aðgerðir í lánamálum Fáir ferðamenn eru á Íslandi, vegna COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Samfara miklu uppnámi í f lugsamgöngum, en ekki síður breyttu eftirspurn-armynstri, hafa íslenskir f iskútf lytjendur dregið úr sölu á ferskum sjávaraf- urðum til útlanda. Veitingastaðir og hótel hafa dregið mjög úr kaupum á ferskum afurðum og erlendar mat- vöruverslanir hafa í einhverjum tilfellum lokað fiskborðum með fersku sjávarfangi. Samdráttur í sölu ferskra sjávar- afurða kann að ganga til baka að einhverju leyti þegar flugsamgöng- ur komast í eðlilegra horf og aðgerð- um stjórnvalda víða um heim vegna kórónaveirunnar verður aflétt, en varanleg breyting á neyslumynstri í þessum efnum kynni þó einnig að vera í kortunum, segja viðmæl- endur Markaðarins. Vesturströndin lokar „Sala á ferskum fiski hefur dregist mikið saman í Evrópu, en minna í Bandaríkjunum. Icelandair hefur haldið flugleiðinni til Boston gang- andi og því hefur verið hægt að koma afurðum til austurstrandar Bandaríkjanna,“ segir Kjartan Ólafsson, sölustjóri frystra afurða hjá sölufyrirtækinu Bacco. Öðru máli gegnir hins vegar um vesturströnd Bandaríkjanna. Útf lutningur var þá þegar orðinn erfiðari við gjaldþrot WOW í lok mars 2019, en engu að síður höfðu íslensk fyrirtæki náð að byggja upp markaði, til dæmis í stórborg- inni Los Angeles. Eitt þeirra fyrirtækja er Nice- land sem sérhæfir sig í sölu ferskra sjávarafurða undir eigin vörumerki. Helstu viðskiptavinir Niceland á austurströndinni eru veitingahús og matvöruverslanir. Veitingahúsa- markaðurinn hvarf eins og dögg fyrir sólu í mars og apríl, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Heiðu Kristínar Helgadóttur. „Veitingastaðir í Los Angeles, svo dæmi sé tekið, hafa margir hverjir ekki opnað aftur. Einnig ber á því nú að þeir sem kaupa inn í þessum fyrirtækjum, vilja heldur kaupa ferskan fisk sem er veiddur í banda- rískri eða kanadískri lögsögu, þar sem þeir telja afhendingaröryggið meira þannig,“ segir Heiða Kristín. Niceland hefur á síðustu vikum stóraukið vöruframboð sitt af frystum afurðum, til að bregðast við ríkjandi aðstæðum. Sindri Már Atlason, sölustjóri ferskra afurða hjá Brimi, segir að veitingastaðakeðja sem sérhæfi sig Dregur úr útflutningi á ferskum fiski Fiskútflytjendur bregðast við breyttum markaðsaðstæðum með aukinni sölu á frystum afurðum. Matvöruverslanir í Bandaríkj- unum og Bretlandi hafa margar lokað fiskborðum. Erfitt að koma ferskum afurðum lengra en til austurstrandar Bandaríkjanna. Minna magn flutt út Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs dróst útflutt magn sjávaraf- urða saman um 18%, miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands. Útflutningsverðmæti dróst þó ekki jafn mikið saman í krónum talið, eða um um 7%. Má að ein- hverju leyti rekja það til veikara gengis krónunnar, en að sama skapi hærra afurðaverðs. Mælt í erlendri mynt, fékkst að meðal- tali 5% hærra verð fyrir útfluttar sjávarafurðir á fyrstu fimm mánuðum ársins, samkvæmt greiningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Tilraunir íslenskra útflytjenda til að koma ferskum afurðum lengra innanlands í Bandaríkjunum með kælitrukkum, hafa gengið upp og ofan. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þórður Gunnarsson thg@frettabladid.is í sjávarfangi og kaupi jafnan tölu- vert af fiski hjá Brimi, hafi aðeins að hluta opnað aftur eftir að lokað var í apríl og starfi nú aðeins á hálfum afköstum. Sindri segir að ýmislegt hafi verið reynt meðal íslenskra útflytj- enda til að halda markaðshlutdeild þeirra utan vesturstrandar Banda- ríkjanna: „Einhverjir hafa verið að reyna að fljúga ferskum fiski til Boston og keyra hann svo áfram í kælitrukkum til fjarlægari áfanga- staða.“ „Bandaríkin eru bara svo stór að slíkt getur verið mjög kostn- aðarsamt. Þetta er allt orðið dýrara og erfiðara. Svo hafa tilraunir til að tengja saman fraktf lutninga með tveimur f lugfélögum reynst áhættusamar, þar sem flugum var mikið aflýst þegar faraldurinn stóð sem hæst. Ferskt sjávarfang er ekki lengi að skemmast þegar það situr í sumarsólinni úti á f lugvelli,“ segir hann. Fiskborðin skella í lás Aðgerðir stjórnvalda til að hamla útbreiðslu kórónaveirunnar sneru meðal annars að því að tryggja fjarlægð milli fólks, til að draga úr líkum á snertismiti. Það dró dilk á eftir sér við rekstur matvöruversl- ana. Víða voru miklar takmarkanir á því hversu oft fólki var leyft að yfirgefa heimili sitt til að versla inn mat fyrir heimilið og hömlur á sam- skiptum starfsfólks verslana og við- skiptavina höfðu sitt að segja. „Í Bretlandi sjáum við til dæmis að mikið af dagvöruverslunum hafa hreinlega lokað fiskborðunum hjá sér. Sainsbury‘s hafa til dæmis gert það,“ segir Kjartan. Sainsbury‘s voru með ríf lega 15% markaðs- hlutdeild á dagvörumarkaði á Bret- landseyjum árið 2019. Sama var uppi á teningnum víða í Bandaríkjunum, að sögn Heiðu Kristínar, en matvöruverslanir á austurströnd Bandaríkjanna hafa lokað fiskborðum sínum í stórum stíl. Fiskborð eru þó áfram opin í Frakklandi, að sögn Sindra. Þar hefur sala að mestu haldist í horfinu. Minna fer af frosnum ufsa Þrátt fyrir að höggið sem íslenskir útf lytjendur hafi orðið fyrir sé einna helst í ferskum afurðum, er einnig dæmi um minni eftirspurn ákveðinna frystra afurða. Eitt slíkt dæmi er frosinn ufsi. Bacco er með sterka stöðu í sölu á frosnum ufsa til hótelkeðja á Spáni og Kanaríeyjum, sem og til Tyrk- lands og Grikklands. Verð hefur fallið um 25-30% og salan gengur hægt, enda fáir ferðamenn á þessum stöðum. „Á sama tíma sjáum við að aðeins um helmingur ufsakvótans hefur verið veiddur á Íslandi og nýtt kvótaár hefst eftir tvo mánuði,“ segir Kjartan hjá Bacco. Kvikur bransi „Margir hafa dregið úr framleiðslu á ferskum afurðum og skipt yfir í frystar eins og hægt er og aðrir hafa dregið úr af köstum,“ segir Sindri hjá Brimi. Það er þó lán í óláni fyrir Brim, að um þessar mundir er aðal- fiskvinnsla félagsins við Norður- garð ekki starfrækt vegna endurnýj- unar á tækjakosti, sem hafði verið ákveðin löngu áður: „Íslenskur sjávarútvegur hefur sýnt fram á það nú sem áður, að greinin býr yfir mikilli aðlögunarhæfni og þannig hafa vinnslur getað aukið hlutdeild frystingar á kostnað ferskvinnslu eftir þörfum. Að sama skapi verður hægt að sinna ferskfiskmörkuðum aftur eins og aðstæður leyfa hverju sinni,“ segir Sindri. 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.