Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 2
Í stærstu sveitarfélög-
unum eru laun fram-
kvæmdastjóra allt að 2.100
þúsund á mánuði.
Veður
Vestan og norðvestan 5-10 m/s í
dag. Víða þurrt og bjart veður, en
stöku síðdegisskúrir á sunnan-
verðu landinu. Hiti 10 til 18 stig,
hlýjast sunnantil. SJÁ SÍÐU 16
Ánægð á Íslandi
Vinirnir Barbara, Przemek, Emilia og Ursula, sem hafa verið ferðamenn á Íslandi frá 29. júní, spókuðu sig í Bankastrætinu í gær. Þau halda heim til
Póllands í dag og segja Íslandsheimsóknina hafa verið skemmtilega og veðrið gott. Öll voru þau skimuð fyrir COVID-19 við komuna og sögðu það
hafa verið óþægilegt en að sama skapi hafi verið léttir að fá þau svör fimm til sjö klukkustundum síðar að þau væru ekki smituð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Brúðkaupsskreytingar
• Veisluskreytingar
• Bílaskreytingar
• Sápukúlur
• Confetti sprengjur
• Nammibarir
• Myndabásar
• Kortakassar
Finndu okkur á
GARÐABÆR Talsvert hefur borið á
því að sílamávar valdi usla í Garða-
bæ með ágengni sinni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa fjölmargar kvartanir
borist í þjónustuver bæjarins – bæði
vegna loftárása fuglanna á gangandi
vegfarendur, sem og tilkynningar
um að að mávarnir spilli varpi ann-
arra fugla með því éta ungviði
þeirra. Þá eiga fuglarnir einnig til
að valda óþægindum með driti.
Ástandið er sérstaklega slæmt í
Sjálandshverfi en þar er ágangurinn
talsverður. Meðal annars hafa íbúar
á hjúkrunarheimilinu Ísafold orðið
fyrir miklu ónæði vegna fuglanna.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, verk-
efnastjóri hjá umhverf isnefnd
Garðabæjar, staðfestir að sambýli
manna og máva hafi gengið erfið-
lega í bænum undanfarin misseri.
„Þetta hefur verið vandamál und-
anfarin ár, en eitthvað sem er erfitt
fyrir okkur að bregðast við. Það eru
stór varplönd sílamávs í grennd við
nokkur hverfi bæjarins og þau eru
friðuð,“ segir Guðbjörg.
Málið hafi verið unnið í samstarfi
við Náttúrufræðistofnun Íslands og
Umhverfisstofnun Íslands. Þar sem
ekki megi grípa til aðgerða innan
varplanda þá hafi aðgerðir bæjarins
takmarkast við það að bæjarstarfs-
menn hafi stungið á egg sílamáva
utan hinna skilgreindu svæða.
Gunnar Þór Hallgrímsson, pró-
fessor við líffræðideild Háskóla
Íslands, segir sílamávi ekki hafa
fjölgað undanfarin ár. Vandamálið
með árekstra fuglanna við íbúa í
Garðabæ sé ekki nýtt af nálinni og
snúist fyrst og fremst um nálægð
bæjarins við stór varpsvæði.
Að sögn Gunnars Þórs er skiljan-
legt að fólki verði hverft við þegar
fuglarnir láti til sín taka enda séu
þeir engin smásmíði.
„Sílamávur ver einfaldlega varpið
sitt eins og margir aðrir fuglar.
Hann gerir það með talsverðum
látum þó en það heyrir til undan-
tekninga að þeir snerti fólk,“ segir
Gunnar Þór. Hann bendir á að
slíkt hafi sárasjaldan hent sig, þó
að hann hafi um árabil starfað í
grennd við varplönd sílamávs. „Ég
hef meira að segja orðið fyrir árás
skógarþrastar. Þetta atferli þekkist
því hjá mörgum fuglategundum.“
Að hans sögn hafi sílamávar
slæmt orð á sér og það sé vegna
atferlis þess hluta stofnsins sem
hefur aðlagast lífi í þéttbýli. Síla-
mávurinn sé sjófugl og fæðuöflun
hans fari fyrst og fremst fram á hafi
úti.
„Þetta eru tækifærissinnar og
sumir sækja í það sem fellur til í
þéttbýli og ungviði annarra fugla,“
segir Gunnar Þór. Að hans mati er
ekki um alvarlegt vandamál að
ræða, heldur sé mikilvægt að fólk
taki tillit til fuglanna á meðan á
varptíma þeirra standi.
bjornth@frettabladid.is
Sílamávar valda usla
við hjúkrunarheimili
Til vandræða horfir í Garðabæ vegna ágangs sílamáva. Á hjúkrunarheimilinu
Ísafold í Sjálandshverfi hafa íbúar ekki farið varhluta af þessum óvelkomna
gestagangi. Fjölmargar kvartanir víðar úr bænum hafa borist í þjónustuver.
Stærsta varp sílamáfa á höfuðborgarsvæðinu er nærri Garðabæ, að sögn
Gunnars Þórs Hallgrímssonar, prófessors í líffræði í HÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það eru hins vegar
alltaf einhverjir
tækifærissinnar
Gunnar Þór
Hallgrímsson,
prófessor
VI ÐSKIPTI Domino’s á Íslandi
hyggst í haust opna nýjan útsölu-
stað í Vallahverfinu í Hafnarfirði.
Þá er í undirbúningi að opna aftur
tvo veitingastaði sem lokuðu tíma-
bundið á meðan kórónaveirufar-
aldurinn var í hámarki.
„Við lokuðum þremur stöðum
á meðan verst lét. Við höfum
þegar opnað einn þeirra aftur, en
bíðum færis að opna aftur staðina
í Gnoðarvogi og í Reykjanesbæ,“
segir Birgir Örn Birgisson, forstjóri
Domino’s á Íslandi.
Umtalsverðar sviptingar hafa
verið á f latbökumarkaðinum hér á
landi undanfarin misseri, þar spilar
kórónaveirufaldurinn stórt hlut-
verk og ekki síður tilkoma Spaðans
á Dalvegi.
Birgir segir að Domino’s á Íslandi
láti þó engan bilbug á sér finna og
enginn samdráttur sé í spilunum.
„Við teljum okkur sjá spennandi
tækifæri á Völlunum,“ segir Birgir
Örn. – bþ
Domino’s mun
stefna á vöxt
SVEITARFÉLÖG Í könnun sem Sam-
band íslenskra sveitarfélaga gerði
á starfskjörum sveitarstjórnarfólks,
kemur fram að mánaðarlaun fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaga, það er
stjórnenda sveitarfélaga, eru mishá
og ráðast oft af stærð og umfangi
sveitarfélaga. Greint er frá könnun-
inni á vef sambandsins.
Árið 2019 var algengast að laun
framkvæmdastjóra væru á bilinu
1.101 til 1.700 þúsund krónur á
mánuði. Auk launagreiðslna fá
framkvæmdastjórar einnig starfs-
tengdar greiðslur og var algengast
að þær næmu lægri fjárhæð en 50
þúsund krónum á mánuði.
Í stærstu sveitarfélögunum, með
f leiri en 5.000 íbúa, eru mánaðar-
laun framkvæmdastjóra, laun og
föst yfirvinna á bilinu 1.501-2.100
þúsund krónur. Í fimm tilvikum
er framkvæmdastjóri með sex
mánaða biðlaunarétt. Í einu er bið-
launarétturinn fjórir mánuðir og
í tveimur er hann þrír mánuðir.
Hlunnindi framkvæmdastjóra í
þessum sveitarfélögum er frá undir
50 þúsund krónum á mánuði í 199
þúsund.
Alls bárust svör frá 58 sveitar-
félögum af þeim 72 sem eru í land-
inu. – jþ
Könnuðu kjör í
sveitarstjórnum
Laun í sveitarstjórnum eru misjöfn.
8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð