Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 6
Ekki er ljóst hvernig skýrsluhöfundar komast að niðurstöðu um að samfélagið verði fyrir „neikvæðum áhrifum“ ef ekki komi til uppbyggingar á fiskeldi. Úr umsögn Ísafjarðarbæjar um áform Artic Sea Farm Það sést glöggt af þessari kröfu þeirra hversu dýrt það getur verið að leita réttar síns. Jóhann Helgason, tónlistarmaður Í mars tilkynnti Bols­ onaro að ef hann fengi veiruna myndi hann hrista hana af sér auðveldlega vegna þess að hann væri svo heilshraustur. Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski... STÓRUM HUMRI!! Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa. Einnig má finna vörur Norðanfisks í neytendapakkningum í verslunum Bónus um land allt. Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700 BRASILÍA Jair Bol sonaro, for seti Brasilíu, til kynnti í gær í beinni útsendingu að hann væri með kór­ ónaveiruna. The Guardian skýrir frá. Bol sonaro, sem er 65 ára, hefur í tr ekað gert lítið úr far aldrinum og virt fjar lægðar tak markanir að vett­ ugi, jafn vel þótt að Brasilía sé með næst flest tilfelli kóróna veiru smits í heiminum. Alls hafa 65.000 manns látist í far aldrinum í Brasilíu og þá hafa 1,6 milljónir smits verið stað­ fest. Í mars, skömmu eftir að fyrsti Brasilíu maðurinn lést úr CO VID­ 19, til kynnti Bol sonaro í sjón varps­ ræðu að ef hann  fengi veiruna myndi hann hrista hana af sér auð veld lega vegna þess að hann væri svo heilsuhraustur, einkum vegna bakgrunns í íþróttum. Síðan þá hefur Bol sonaro í trekað mætt á opin bera við burði og oftar en ekki án and lits grímu. Grunur um að Bol sonaro væri með CO VID­19 vaknaði á mánu dag þegar fjöl miðlar í Brasilíu til kynntu að for setinn væri með hita og stöð ­ ugan hósta. Tölvu sneið mynd var tekin af lungum Bol sonaro, sem sýndi að þau væru í góðu lagi. Sem fyrr segir hefur Bol sonaro í trekað gert lítið úr hættum CO VID­ 19 og hvatt Brasilíu menn til að snúa aftur til starfa til að minnka efna­ hags leg á hrif veirunnar. Við brögð hans við far aldrinum hafa verið harð lega gagn rýnd, bæði heima fyrir og á al þjóð legum vett vangi. – mhj Bolsonaro var greindur með veiruna Alls hafa 65.000 manns látist í faraldrinum í landinu. MYND/GETTY DÓMSTÓLAR Dómari í Los Angeles hefur hafnað kröfu tónlistarrisanna Universal og Warner um að Jóhann Helgason greiði 323 þúsund dollara málskostnað þeirra í lagastuldar­ málinu um lögin Söknuð og You Raise Me Up. „Þetta er ákveðinn léttir og nú getum við einbeitt okkur að áfrýj­ uninni,“ segir Jóhann. Miðað við fyrri úrskurði hafi dómarinn komið á óvart og séð að sér, í ljósi gagna sem lögmaður hans hafi getað sent inn síðan málinu var vísað frá. Dómarinn sagði að þrátt fyrir að hann hafi vísað málinu frá, að kröfu Warner og Universal, gæti Jóhann ekki talist hafa stefnt í vondri trú. Málinu hafi verið vísað frá vegna þess að lögmenn andstæðinga hans hafi sýnt fram á að bæði Söknuður og You Raise Me Up, byggðu á írska þjóðlaginu Danny Boy og þess að tónlistarsérfræðingur Jóhanns hafi að sama skapi litið fram hjá því að skoða þann þátt ofan í kjölinn. „Hvorki var málsóknin í vondri trú né getur dómurinn komist að þeirri niðurstöðu að hún hafi verið tilhæfulaus,“ segir dómarinn. Jóhann freistar þess nú fyrir áfrýjunardómstóli að fá ákvörðun dómarans um að vísa málinu frá, hnekkt. Þar ganga hlutir hægt fyrir sig og mun lögmaður Jóhanns hafa búið hann undir að málið teygi sig þar að minnsta kosti fram á árið 2022. Jóhann segir gagnrýni dómarans á  vinnu tónlistarsér­ fræðings óverðskuldaða. „Nú getum við notað tímann til að byggja undir áfrýjunina og koma einhverju fyrir augu og eyru dómaranna sem sannfærir þá um gildi þessa máls. Vonandi verða að minnsta kosti tveir af þremur dóm­ urum okkur hliðhollir,“ segir hann. Warner og Universal hafa ekki tækifæri til að áfrýja niðurstöðunni varðandi málskostnaðinn, þann­ ig að Jóhann er því sloppinn fyrir horn hvað þá kröfu snertir. Krafan hljóðaði upp á jafnvirði 45 milljóna króna á gengi dagsins. Málskostn­ aður Jóhanns heldur hins vegar áfram að hlaðast, eftir því sem mál­ inu vindur fram. „Það sést glöggt af þessari kröfu þeirra hversu dýrt það getur verið að leita réttar síns,“ bendir Jóhann á. Sjálfur hafi hann meðal ann­ ars  eytt höfundarréttarlaunum sínum nokkur ár fram í tímann til að standa straum af kostnaðinum. Jóhann kveðst afar þakklátur tónlistarmönnunum Eyþóri Gunn­ arssyni, Björgvini Halldórssyni og Jakobi Magnússyni og fleirum fyrir stuðning að undanförnu, til dæmis með hugmyndum um að halda styrktartónleika auk þess að koma málinu á framfæri með ýmsum hætti. „Slíkir tónleikar myndu auð­ vitað hjálpa mér mjög mikið.“ segir Jóhann Helgason. gar@frettabladid.is Dómarinn hafnar tugmilljóna króna kröfu á hendur Jóhanni Að sögn Jóhanns Helgasonar er það léttir að dómari í Los Angeles varð ekki við kröfu andstæðinga hans í Söknuðarmálinu um að hann greiddi 323 þúsund dollara lögmannskostnað þeirra. Málið heldur áfram fyrir áfrýjunardómstóli þar ytra og vonast Jóhann eftir að meirihluti dómara þar verði honum hliðhollir. Jóhann Helgason í sumarnóttinni í Garði í fyrrakvöld. MYND/HILMAR FOSS SKIPULAGSMÁL „Dæmi er um að fjörutíu einstaklingar séu skráðir til lögheimilis í tvíbýlishúsi,“ segir í fundargerð skipulagsráðs Kópavogs sem kveðst við meðferð mála hafa rekist á tilvik þar sem margir ein­ staklingar séu skráðir á sama heim­ ilisfang. „Á þetta bæði við húsnæði sem er í fasteignaskrá skráð sem íbúðar­ húsnæði og atvinnuhúsnæði,“ segir skipulagsráðið, sem kveðst að gefnu tilefni leggja áherslu á og hvetja hlut­ aðeigandi eftirlitsaðila til að vinna náið saman. Þeir eigi að leita „leiða til að auka öryggi og bæta aðbúnað fólks sem býr við slíkar aðstæður, sem eru oft á tíðum afar bágar,“ eins og segir í fundargerðinni þar sem lagt er til að umhverfissvið bæjarins hefji vinnu við skoðun á verkferlum vegna lögheimilisskráninga. – gar Fjörutíu skráðir í eitt tvíbýlishús Í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM UMHVERFISMÁL Gerðar eru ýmsar athugasemdir við frummatsskýrslu Arctic Sea Farm vegna áforma um átta þúsund tonna sjókvíaeldi á laxi eða silungi í Ísafjarðardjúpi, í umsögn Ísafjarðarbæjar til Skipu­ lagsstofnunar. „Umhverfisáhrifum eru gerð góð skil svo og mótvægisaðgerðum og vöktun,“ segir í umsögninni. Bær­ inn leggi áherslu á að áætlanir um rannsóknir og vöktun séu árlegar og fylgi viðeigandi stöðlum. „Það er grundvöllur að því að hægt sé að endurmeta, með rauntölum, burð­ arþol Ísafjarðardjúps til fiskeldis.“ Þá segir  Ísafjarðarbær að ekki sé gerð grein fyrir aðgerðaáætlun ef upp komi neyðartilvik. Ekki sé talað um hvers konar aðstöðu Arctic Sea Farm sé með á Flateyri og ekki um hvers konar aðstöðu fyrirtækið fyrirhugi á lóð sem það hafi sótt um á Ísafirði. „Ekki kemur fram í skýrslunni hvort vinnsla á afurðum verður á norðanverðum Vestfjörðum eða ekki. Ekki er ljóst hvernig skýrslu­ höfundar komast að niðurstöðu um að samfélagið verði fyrir „nei­ kvæðum áhrifum“ ef ekki komi til uppbyggingar á fiskeldi eða hvaða rannsóknir liggja þar að baki.“ – gar Telja óljóst hvort Arctic Sea Farm verði með vinnslu á Vestfjörðum Frá Ísafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR SKIPULAGSMÁL  Skipulagsstofnun hefur gef ið álit sitt um mat á umhverf isáhrifum virkjunar í Hverfisf ljóti í Skaftárhreppi. Bent er á í álitinu að stofnunin telji ekki sýnt fram á brýna nauðsyn þeirrar röskunar sem virkjunin mun valda í Skaftáreldahrauni. Framkvæmd­ irnar séu innan Kötlu jarðvangs sem UNESCO hefur viðurkennt. Þá séu mannvirki fá á svæðinu og lítil sem engin ummerki af manna völdum. Þá sé framkvæmdin líkleg til að hafa neikvæð áhrif á útivist og ferðaþjónustu á svæðinu. – jþ Neikvæð áhrif á Skaftáreldahraun 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.