Fréttablaðið - 04.08.2020, Síða 12

Fréttablaðið - 04.08.2020, Síða 12
FÓTBOLTI Ciro Immobile, leikmað- ur Lazio, varð markahæsti leik- maður ítölsku deildarinnar með 36 mörk og fær hann gullskó Evrópu. Lionel Messi hafði unnið gullskó- inn þrjú ár í röð og reyndar hafa hann og Cristiano Ronaldo skipt gullskónum bróðurlega á milli sín undanfarinn áratug. Aðeins Luis Suárez hefur skipt sér af málum en hann vann hann með Ronaldo árið 2014 og svo aftur með Barce- lona 2016. Immobile kom til Lazio frá Dort- mund árið 2016 og kostaði innan við 10 milljónir evra. Ferillinn var svona frekar á leið niður á við og það var ekkert búist við sérstak- lega miklu. Hann skoraði jú aðeins þrjú mörk fyrir Dortmund og var lánaður til Sevilla sem skilaði honum eftir sex mánuði. Hjá Dort- mund var Jurgen nokkur Klopp við stjórnvölinn og sá kann nú að ná því besta út úr sínum leik- mönnum. Dortmund leyfði honum að fara til Lazio þar sem Simeone Inzaghi var mættur til að taka við Rómarliðinu. Þar var spilaður fót- bolti sem smellpassaði Immobile. Hann hefur varla getað reimt á sig takkaskóna án þess að skora fyrir Lazio og er kominn með 103 mörk í 142 leikjum. Immobile jafnaði markamet Gonz alo Higuain um helgina sem hann setti fyrir f jórum árum. Séu markametin skoðuð sést að Higuain skoraði þrjú mörk úr vítaspyrnum en Immobile hefur skorað 14. Ekki að það geri lítið úr afrekinu – það þarf jú að skora úr þessum vítaspyrnum. Immobile er fæddur við rætur Vesúvíus-eldfjallsins. Hann sló í gegn með unglingaliðinu Sorrento Calcio þar sem hann skoraði 30 mörk. Gamli varnarjaxl Juventus, Ciro Ferrara, sá hann í einum leik og mælti með honum við félag- ið sem stökk á pilt og borgaði 80 þúsund evrur fyrir þjónustu hans. Hann byrjaði í U-19 ára liðinu og skoraði töluvert fyrir liðið. Hann fékk smjörþefinn af aðalliðinu árið 2009 þegar hann kom inn á fyrir sjálfan Alessandro Del Piero. Hann gekk þessa hefðbundu leið ungra leikmanna og fór í lán til Siena, Grosseto og Pescara í Seríu B. Hjá Pescara fann hann marka- skóna og skoraði 28 mörk og endaði markahæstur í deildinni. Genoa keypti piltinn en þar gekk illa og endaði hann ári síðar hjá Tórinó – þar sem hann var í eitt ár og raðaði inn mörkum og endaði marka- hæstur í Seríu A með 22 mörk. Jurgen Klopp sá gæðin og keypti hann í framlínuna fyrir 18 milljón- ir evra. Það gekk ekki eins og fyrr segir en um leið og hann fór í bláa búning Lazio gengu hlutirnir vel og mörkin hafa varla hætt að koma. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2007 sem gullskór Evrópu endar á Ítalíu en þá vann Fransesco Totti þennan margfræga skó. Pólverjinn Robert Lewandowski, hjá FC Bayern varð annar og Ronaldo fékk bronsskó- inn. Lionel Messi skoraði „aðeins“ 25 mörk þetta árið sem dugði þó til að verða markahæstur í Spánar- sparki. benediktboas@frettabladid.is Gullskór Evrópu endaði á Ítalíu í fyrsta sinn í þrettán ár Ciro Immobile fékk gullskó Evrópu fyrir mörkin sín 36 í Seríu A. Hann rauf þar með einokun Lionel Messi og Ronaldo sem hafa verið fastir áskrifendur að skónum gyllta. Immobile hefur skorað 103 mörk í 142 leikjum fyrir Lazio, en hann kostaði aðeins átta milljónir evra þegar hann kom frá Dortmund 2016. Gamli varnarjaxl Juventus, Ciro Ferrara, sá hann í einum leik og mælti með honum við félagið sem stökk á pilt og borgaði 80 þúsund evrur fyrir þjónustu hans. 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Íslands fundar með yfirvöldum í dag og mun stjórn sambandsins funda í kjölfarið. Eftir fundinn mun sambandið svo upplýsa frekar um stöðu mála. KSÍ frestaði öllum sínum leikjum til 5. ágúst en í svari Þórólfs Guðnasonar sóttvarna- læknis til ÍSÍ var ákveðið að fresta öllum æfingum og keppnum til 13. ágúst. Á morgun ætti að skýrast hvort knattspyrnufólk geti hafið æfingar og keppni að nýju. Guðni Bergsson formaður KSÍ sagði í útvarpsþættinum Fótbolta. net að hann væri bjartsýnn á að hægt yrði að klára Íslandsmótið. „Við erum búin að gefa út reglugerð þar sem við kveðum á um að við ætlum að gefa okkur allavega til 1. desember til að klára mótið ef við þurfum á að halda. Ef okkur seinkar um eina til tvær vikur þá gerir það okkur erfiðara fyrir en við höfum tíma upp á að hlaupa,“ sagði Guðni í þættinum. Flest liðin hafa spilað átta eða níu leiki nema Stjarnan sem hefur aðeins leikið sex leiki. Sjöundi leikur Stjörnunnar í fyrra var 3. júní gegn Val. Næsta umferð efstu deildar karla er áætluð 9. ágúst. Það skýrist á morgun hvort það þurfi að blása þá umferð af eins og þá sem átti að hefjast í dag með leik KA og HK. Samkvæmt sérstakri reglugerð sem stjórn KSÍ samþykkti í júlí er nóg að spila tvo þriðju af mótinu til að krýna meistara og skera úr um hvaða lið falla eða fara upp um deildir. „Ég er bjartsýnn á að við klárum mótið,“ sagði formaðurinn og bætti við að 1. desember væri viðmið. „Við vildum ekki alveg fara fram að jólum eða inn í næsta ár. Við töldum að 1. desember væri gott viðmið. Við viljum allavega klára tvo þriðju leikja svo að mótin verði í raun og veru gild. Ég held að það hafi verið gott að vera búin að setja þessa reglugerð,“ sagði Guðni. – bb Upplýsingar um framhald fótboltans berast eftir fund stjórnar KSÍ Blikakonur eru efstar í Pepsi-deild kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Samkvæmt sérstakri reglugerð sem stjórn KSÍ samþykkti í júlí er nóg að spila tvo þriðju af mótinu til að krýna meistara og skera úr um hvaða lið falla eða fara upp um deildir. Immobile ásamt Cristiano Ronaldo leikmanni Juventus sem endaði þriðji markahæsti í Evrópu en hann hefur unnið gullskóinn fjórum sinnum á ferlinum. Immobile skoraði eitt mark í lokaumferðinni á laugardag. MYND/GETTY Þetta er í fyrsta sinn sem leikmaður Lazio vinnur gullskóinn. Immobile hefur verið magnaður fyrir félagið síðan hann kom á klink frá Dortmund. FÓTBOLTI Liverpool hefur lagt fram tilboð í Alsíringinn Aissa Mandi sem spilar með Real Betis. Mandi er með 25 milljóna punda klásúlu í samningnum sínum en Liverpool vonast til að fá hann ódýrar þar sem hann er að renna út af samn- ingi. Enskir miðlar greina frá því að tilboð Liverpool hafi verið níu milljónir punda og er þar fullyrt að Jurgen Klopp sjái Mandi sem leikmann sem gæti fyllt skarð Dejan Lovren sem fór til Zenit í Rússlandi. Mandi yrði annar Alsíringurinn í enska boltanum en R iyad Mahrez, l e i k m a ð u r M a n c h e s t e r City, er sá eini eins og staðan er núna. – bb  Klopp vill fá Mandi í liðið Jurgen Klopp stjóri Liver- pool. FÓTBOLTI Didier Drogba vill verða forseti knattspyrnusambands Fíla- beinsstrandarinnar en kosið verður fimmta september. Þrír aðrir eru í kjöri. „Það er ekkert leyndarmál að fótboltinn í landinu er ekki á góðum stað. Þess vegna vil ég – og mitt lið á bak við kjörið, snúa blaðinu við,“ sagði Drogba við blaðamenn en þúsundir manna fylgdu honum síð- asta spölinn að húsi knattspyrnu- sambandsins þar sem hann skilaði framboði sínu. Drogba er gífurlega vinsæll í heimalandinu enda spilaði hann þrisvar á HM fyrir Fílabeins- ströndina, tvisvar kom hann liðinu í úrslit Afríkukeppninnar og vann fjölda titla með Chelsea. – bb Drogba vill verða forseti í heimalandinu Didier Drogba í þá gömlu góðu daga með Chelsea. MYND/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.