Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Birgitta Saga Jónsdóttir er 25 ára Kópavogsmær sem er að hefja síðustu önnina í meistaranámi í lögfræði og rekur Instagram-síðuna Heimilisplöntur, sem samkvæmt lýsingunni er „plöntusíða fyrir plöntuperra og þá sem vilja fræðast um þær heim- ilisplöntur sem fást á íslenskum markaði“. Birgitta býr í 30 fermetra íbúð með kærastanum sínum, hundi og um 60 heimilisplöntum. Hún segir að sér líði vel þegar hún hugsar um plönturnar og fylgist með þeim vaxa og blómstra og að þetta sé bæði skemmtilegt áhuga- mál og góð leið til að hugsa um sjálfan sig. Birgitta segir að kærastanum finnist plönturnar stundum vera að taka yfir. „En það skiptir ekki máli. Við nýtum plássið vel. Það verður líka að taka það með í reikninginn að margar af þessum plöntum eru bara litlar, það telur,“ segir hún létt. Birgitta hafði lengi engan áhuga á plöntum, þrátt fyrir að alast upp í kringum fólk með græna fingur. „Ég var alveg svona plastblóma- týpan og skildi ekki af hverju fólk vildi eiga plöntur,“ segir hún. „En mamma og pabbi voru alltaf með rosa mikið af plöntum og ég ólst upp með tveggja metra háan kaktus í stofunni sem pabbi minn hafði átt síðan hann var 15 ára og sá vel um. Einu sinni datt þessi kaktus næstum á stóru systur mína þegar hún var barn, en pabbi náði að grípa hann áður og fékk nálar í sig allan. En hann hefur samt alltaf fylgt okkur,“ segir Birgitta. „Núna skil ég þetta. Hann var búinn að hugsa um þennan kaktus og fylgjast með honum vaxa og við það myndast ákveðin tengsl.“ Áhuginn óx hratt „Ég byrjaði að hafa áhuga á plöntum fyrir tveimur til þremur árum og þá heltók áhuginn mig. Ég byrjaði með nokkrar plöntur, en það gekk auðvitað ekki alltaf fyrst, þegar ég var að læra,“ segir Birgitta. „Tengdaforeldrar systur minnar reka blómabúðina Auði í Garðabæ og ég byrjaði að fara þangað, sem mér finnst rosa gott. Eftir að ég fór að vera umkringd áhugafólki um plöntur byrjaði áhuginn að aukast og ég fór að sanka að mér plöntum hægt og rólega. Fljótlega varð þetta svona eins og að safna Pokémon, „Gotta Catch ‘Em All!,““ segir Birgitta í gríni. „Það er kannski ekki alveg raunsætt, að minnsta kosti ekki í þessari íbúð sem ég er í núna. Ég byrjaði líka að sanka að mér fróðleik og kaupa fullt af bókum. Núna er ég með svona tíu bækur um plöntur og umhirðu þeirra, því ég vil auðvitað að þær séu hamingjusamar hjá mér.“ Gerir heimili heimilislegri Birgitta segir að það sé gefandi og gott dundur að sjá um eitthvað og horfa á það vaxa. „Plöntunum fylgir auðvitað umhirða en það er tími fyrir sjálfa mig. Ég tek alltaf laugar- daga í að labba um stofuna og tékka á öllum plöntunum og sinna þeim,“ segir hún. „Mér líður vel þegar ég er að hugsa um plönturnar mínar og sé eitthvað blómstra. Ég á til dæmis loftplöntu sem er að blómstra núna og þær blómstra bara einu sinni á lífsleiðinni. Það er æðislegt að fylgjast með kraftaverki náttúr- unnar gerast heima hjá þér.“ Birgitta er óvirkur alkóhólisti og segir að allur peningurinn sem hún hefði eytt í áfengi og leigubíla fari núna í plönturnar í staðinn. „Ég hef glímt við kvíða og þung- lyndi síðan ég var 12 ára, en hef verið rosa góð á þessu ári og þetta hjálpar rosalega mikið,“ segir hún. „Þetta er leið fyrir mig til að ná mér niður og núllstilla mig. Þannig að þetta er bæði áhugamál og líka leið til að hugsa um sjálfan sig. Plönturnar hjálpa líka við að hreinsa loftið, þó að þær séu fyrst og fremst augnayndi, og mér finnst heimili verða heimilislegri með plöntum,“ segir Birgitta. Þetta vantaði á Instagram „Ég byrjaði að pósta mikið um plöntur á mína eigin Instagram- síðu, en vinkonurnar sýndu því ekki mikinn áhuga. Ég sá hins vegar að það var ekkert íslenskt Instagram að tala um plöntur og umhirðu þeirra á markvissan og aðgengilegan hátt, þó að það væri til stórt og gott samfélag kringum þetta á Facebook,“ segir Birgitta. „Mig langaði að fylla í þetta skarð og þar sem ég hef líka áhuga á ljós- myndun byrjaði ég að taka myndir af plöntunum mínum, segja hvernig á að hugsa um þær og dreifa því. Viðbrögðin hafa verið mjög góð og ég er búin að eignast vinkonur í gegnum þetta sem deila sama áhugamáli. Samfélagið í kringum þetta er miklu stærra en maður býst við. Mér finnst þetta yndislegt og ég er búin að eignast mjög yndislega vinkonu í gegnum þetta, hana Silju Hönnu. Maður kynnist fólki út frá þessu sameiginlega áhugamáli og það gerir rosa mikið fyrir mann, það vilja nefnilega ekki allir spjalla við mann um plöntur. Þar sem ég er komin með yfir 1000 fylgjendur ætla ég að fara í gjafaleik og gefa plöntu. Ég ætla líka að vera duglegri að pósta og ég held líka að það gæti verið gaman að leyfa öðru áhugafólki að taka yfir Instagrammið,“ segir Birgitta. Þar sem hún hefur enga menntun sem við kemur plönturækt býður Birgitta einfaldlega upp á ráðlegg- ingar. „Mér finnst ég ekki geta sett mig á stall. Þetta er líka pínu loðið, því þetta er allt breytilegt eftir aðstæðum. Í fyrsta lagi eru allar plöntur mismunandi og svo skapa ólíkar aðstæður ólíkar þarfir,“ segir hún. „En ég gef upplýsingar um æskilega birtu og æskilega vökvun miðað við þá birtu og reyni að vera dugleg að taka fram hvaða plöntur er barnvænar og dýravænar.“ Birgitta segir að aðrir sem séu fróðari en hún geti gefið fólki leiðbeiningar. „Til dæmis hann Haf- steinn Hafliðason inni á Facebook hópnum „Stofublóm inniblóm pottablóm“, hann er algjört plöntu- séní. Svo eru líka aðrar stelpur á Instagram, til dæmis Ingibjörg Andrea, sem er meira að segja með heimagerða mold og alls konar, og Arna Sif Eirberg, sem safnar fágætum plöntum. Þær eru báðar stjórnendur í hóp á Facebook sem heitir Sjaldgæfar/Exotic Plöntur Íslands.“ Margt í boði fyrir byrjendur Birgitta segir að henni sýnist Monstera Deliciosa vinsælasta heimilisplantan um þessar mundir. „Reyndar eru flestar Monstera- plöntur á Íslandi Monstera Bors- igiana, sem eru aðeins öðruvísi og það hefur verið umræða um það,“ segir hún. „Það er líka mikil eftir- spurn eftir Variegated Monstera Deliciosa, sem er með hvítar skellur á laufunum. Svo eru Hoya- plöntur líka mjög vinsælar, sem og Gyðing- urinn gangandi, sem er til í mörgum litaafbrigðum. Fyrir þá sem eru að byrja með heimilisplöntur eru Monstera og Mánagull góð byrjun, sem og Sansevieria, sem heitir tannhvöss tengdamamma á íslensku. Það eru plöntur sem þarf voða lítið að hugsa um eða vökva. Fyrir þá sem vilja vökva og finnast eins og þeir séu að sinna þeim meira eru kólusar sniðugir og þeir eru til í mörgum fallegum litum. Ég held að ég eigi svona tíu afbrigði, það er enda- laust úrval. Það er líka hægt að fá afleggjara á netinu í Facebook-hóp- unum Afleggjarar og Markaðstorg inniplantna.“ Græddi ömmu í faraldrinum „Ég held að mín uppáhalds planta sé Hoya-plantan sem ég var með í glugganum á meðan ég vann í meistararitgerðinni minni hjá ömmu þegar COVID-faraldurinn fór af stað, en þá vantaði mig sama- stað til að vinna. Amma sá um hana fyrir mig og hún byrjaði að spretta eins og hún sé tryllt,“ segir Birgitta. „Hún minnir mig alltaf á ömmu, en mér þykir mjög vænt um hana. Við náðum mjög vel saman á meðan ég var að vinna heima hjá henni, en höfðum ekki verið mjög nánar fyrir það, og ég tileinkaði henni ritgerð- ina. Ég held að það besta sem kom út úr COVID fyrir mig hafi verið að fá ömmu mína.“ Birgitta hafði lengi engan áhuga á plöntum, en þegar hann vaknaði óx hann hratt. Fljótlega fór hún að sanka að sér plöntum og bókum um umhirðu þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Birgitta hefur fengið frábær viðbrögð við síðunni og eignast góða vini sem deila áhugamálinu með henni. Birgitta segir að það sé stórt og gott samfélag í kringum heimilisplöntur á Facebook en það hafi vantað íslenskt Instagram sem talaði um plöntur og umhirðu þeirra á markvissan og aðgengilegan hátt og hún vildi bæta þar úr. Þetta er leið fyrir mig til að ná mér niður og núllstilla mig. Þannig að þetta er bæði áhugamál og líka leið til að hugsa um sjálfan sig. Framhald af forsíðu ➛ Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Birgitta deilir 30 fermetra íbúð með kærastanum sínum, hundi og um 60 heimilisplöntum. Kærastanum finnst plönturnar stundum vera að taka yfir en Birgitta segir að þau nýti plássið vel og margar af plöntunum séu litlar. Á Instagram-síðunni Heimilisplöntur veitir Birgitta alls kyns ráðleggingar varðandi umhirðu heimilisplantna. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.