Fréttablaðið - 04.08.2020, Side 16

Fréttablaðið - 04.08.2020, Side 16
Fisker tilkynnti nýlega að merkið væri að ganga frá samningi við Volkswagen um að nota MEB- undirvagninn fyrir nýja Ocean- raf bílinn. Með tilkynningunni fylgdi mynd sem að sýnir að merkið ætli sér að framleiða fleiri bíla, en stofnandi fyrirtæksins, Henry Fisker sér fyrir sér að Fisker bjóði upp á fjórar gerðir bíla árið 2025. Ocean-bíllinn er svipaður að stærð og Ford Mustang Mach-E og fer hann í framleiðslu á næsta ári. Næsti bíll er fjögurra dyra sportbíll sem byggir á Emotion- hugmyndabílnum og á eflaust að keppa við Porsche Taycan og Tesla Model S. Síðan kemur sportlegur jepplingur sem keppir við BMW iX4 og loks er einnig von á pallbíl frá Fisker, nema hvað? Fisker með fjóra bíla árið 2025 GMC hefur í nýju myndbandi sýnt bestu mynd hingað til af nýjum Hummer-rafjeppa og einnig til- greint að hann verði frumsýndur í haust. Einnig kemur fram að fram- leiðsla hefjist haustið 2021 og að væntanlegir kaupendur geti farið að forpanta bílinn. Bíllinn kemur í tveimur útgáfum, sem jeppi og pallbíll sem stuttum palli. Dekkin eru vel sýnileg og gefa sterklega til kynna að bíllinn verði torfæru- tæki. Einnig eru akstursstillingar eins og Gra-b Mode og Adrenalin Mode nefnd á nafn en ekkert útskýrt frekar hvað er átt við. Á mynd af jeppanum á hönnunar- stofu má sjá sterkbyggða króka og stuðara að framan ásamt veglegri undirakstursvörn. Hann verður með þaki sem hægt verður að taka af, líkt og í nýjum Bronco. Eins og fram hefur komið verður honum ekki afls vant en hann mun hafa úr 1000 hestöflum að spila. Nýr Hummer frumsýndur í haust Eitt af undirmerkjum PSA, Peu- geot, hefur kynnt nýjan undirvagn samsteypunnar sem fyrst má sjá undir næstu kynslóð Peugeot 3008. Er hans að vænta innan þriggja ára og mun undirvagninn heita eVMP, og geta notað rafhlöður með allt að 650 km drægi. Byggir undir- vagninn að miklu leyti á EMP2 undirvagninum og mun öflugasta útgáfan vera 335 hestöfl með fjór- hjóladrifi. Peugeot mun geta boðið næstu kynslóð 3008 bílsins einnig sem tengil tvinnbíl, en systurmerk- ið Citroen mun ekki geta það með nýjum C4, þar sem hann byggir á CMP- rafbílaundirvagninum. Núverandi tengiltvinnútgáfa er 296 hestöfl með 65 km drægi en næsta kynslóð mun örugglega gera betur en það. PSA kynnir undir- vagn fyrir rafbíla Þegar ný S-lína Mercedes er kynnt er tækifærið venjulega notað til að kynna nýjasta tæknibúnað framleiðandans. Væntanleg S-lína er engin undantekning á þeirri reglu og við höfum séð njósnamyndir af því að undanförnu. Mercedes-Benz hefur látið frá sér meiri upplýsingar um væntan- lega kynslóð S-línunnar og er greinilegt að hönnuðir merkisins fengu að fara nokkrar ferðir í nammibúðina. Meðal þess sem við munum sjá í bílnum er nýjasta útgáfa E-Active Body Control- kerfisins sem er með fjölstillan- legum dempurum, fimm tölvum og tuttugu skynjurum víða um bílinn. Er kerfinu ætlað að skynja hreyfingar bílsins og yfirborð vegarins þúsund sinnum á sek- úndu og stilla fjöðrun og undir- vagn bílsins samkvæmt því. Meðal aksturskerfa bílsins verður svokölluð „Curve“-still- ing sem að hallar bílnum eins og mótorhjóli inn í beygjurnar. Aksturskerfin verða líka tengd öryggiskerfi bílsins og geta skynjararnir meðal annars skynjað hættu á hliðarárekstri. Ef að það gerist munu demparar bílsins lyfta honum snögglega upp til að minnka hættu á að höggið nái til farþegarýmis en beinist þess í stað að undirvagni bílsins. Auk þess verður bíllinn með nýjum öryggispúða milli farþega í framsætum, og er honum ætlað að minnka hættu á að höfuð þeirra rekist saman við hliðarárekstur. Bíllinn verður með næstu kynslóð fjórhjólastýringar sem að minnkar snúningshring hans um tvo metra frá fyrri kynslóð. Ný S-lína verður sú fyrsta með næstu kynslóð MBUX-upplýsinga- kerfisins. Það mun geta virkað samtímis á allt að fimm skjám í bílnum í einu. Stærsti skjárinn verður 12,8 tommu OLED-skjár í miðjustokki. Hann mun stýra mörgum af stjórntækjum bílsins og losa hann við 27 takka í mæla- borðinu. Nýr upplýsingaskjár á framrúðu bílsins mun sýna leið- söguupplýsingar eins og þær væru tíu metrum fyrir framan bílinn, og koma þannig í veg fyrir að notkun þess dreifi athygli ökumannsins. Myndavélar í innanrými munu geta skynjað hreyfingar farþega og ökumanns, til dæmis er nóg að ökumaður horfi á hliðarspegla til að upp komi stillingar hans á skjánum. Loks getur nýja MBUX- kerfið geymt upplýsingar um allt að sjö notendur og helstu stillingar þeirra á sætum, miðstöð, útvarpi eða ljósastillingum. Ekki hafa verið gefnar út upp- lýsingar um vélbúnað S-línunnar ennþá, en líklega verða sex strokka bensín- og dísilvélar með tvinnút- færslu helst í boði. Auk þess má vænta V8-útgáfu og jafnvel V12, auk EQS-rafútgáfunnar. Sá bíll fer í framleiðslu seint á næsta ári. Nýjar upplýsingar um S-línuna Lítið dulbúin S-lína við prófanir nálægt hönnunarsetri Mercedes-Benz í Þýskalandi. Stóri OLED skjárinn verður næstum 13 tommur og stýrir flestu í bílnum. Útlínurnar vísa til útlits fyrri kynslóða þótt um nýja hönnun sé að ræða. Kraftalegur framendi og undirakst- ursvörn bendir til torfærugetu. Pallbíllinn er sá eini sem er falinn en hinir þrír eru vel sýnilegir. Nýi eVMP-undirvagninn kemur fyrst í næstu kynslóð Peugeot. Auk þess má vænta V8-útgáfu og jafn- vel V12, auk EQS rafút- gáfunnar. Sá bíll fer í framleiðslu seint á næsta ári. Meirihluti nýskráðra Honda-bíla á árinu eru tvinnbílar, en Honda CRV er söluhæsti Honda-bíllinn það sem af er ári. Hann var meðal annars valinn jepplingur ársins í Bandaríkjunum í fyrra og hjá tímaritinu WhatCar? sem og valinn græni jepplingur ársins hjá Green Car Journal. Nú hafa bæst við tveir nýir tvinnbílar hjá Honda, annars vegar Honda Jazz og hins vegar Honda Jazz Crosstar sem er smájepplingur frá japanska framleiðandanum. Meirihluti nýrra Honda tvinnbílar Honda CRV er vinsælasti bíll Honda- merkisins hérlendis og reyndar víðar. 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.