Fréttablaðið - 04.08.2020, Page 36

Fréttablaðið - 04.08.2020, Page 36
ÚTSALA HEFST Í AQUASPORT 5. ÁGÚST 30-70% AFSLÁTTUR Bæjarlind 1-3 · 201 Kópavogur · Sími 564 0035 SUNDBOLIR OG SUNDFATNAÐUR Hi n i r f jöl mö r g u g læpasag nau nn-endu r la nd si n s hljóta að hafa tekið eftir þeirri hneigð g l æ p a s a g n a höf- unda að skrifa langar og þykkar bækur sem skortir tilfinnanlega snerpu. Færustu glæpasagnahöf- undar 20. aldar kunnu að skrifa af snerpu og þurftu ekki 400-700 síður fyrir efni sitt. Fréttablaðið mælir hér með fjórum glæpasögum sem eru klassískar, og hafa allar verið kvikmyndaðar. Hér eru morð á eyju, örlagaríkar samræður í lest, töffari í vanda og elskendur á villi- götum. Myrk Christie Agatha Christie er drottning saka- málasagnanna, skrifaði rúmlega 60 á farsælum ferli og skapaði hina ódauðlegu spæjara Hercule Poirot og Miss Marple. Bækur hennar eru einstaklega læsilegar og ekki bregst að lausn ráðgátunnar kemur á Sígildir krimmar sem svíkja engan Sumarið er tíminn til þess að sökkva sér á kaf í glæpi og sögur af þeim. Ekki síst þegar ofan á vonbrigði með veðrið bætist sóttvarnaskellur. Þá er vissara að sigla á örugg lestrarmið og krimma sem hafa margsannað sig. Bækur Agöthu Christie eru í stöðugri endurprentun víða um heim. Farley Granger og Robert Walker í hinni frábæru mynd Strangers on a Train. óvart. Bók hennar, And Then There Were None er ein mest selda bók allra tíma, um 100 milljónir eintaka hafa selst. Þessi bók, sem er hennar besta og jafnframt sú myrkasta, var sú sem henni fannst erfiðast að skrifa. Átta einstaklingar koma saman á eyju og smám saman fer að fækka í hópnum. Afar spennandi bók með hrollvekjandi endi. Harðsoðinn Chandler Það er alltaf mikil ánægja að gleyma sér í harðsoðnum stíl Raymon Chandler. Svefninn langi er ein af hans þekktustu sögum. Guðbergur Bergsson þýddi hana á sínum tíma á íslensku. Þar er töffarinn Philip Marlowe í essinu sínu, en annar töffari, Humphrey Bogart, gerði hann ódauðlegan á hvíta tjaldinu. Í þessari bók rannsakar einka- spæjarinn hótanir sem gömlum hershöfðingja hafa borist. Sá á tvær dætur sem koma mjög við sögu. Gríðarlega skemmtilegur krimmi sem allir glæpasagnaunnendur með sjálfsvirðingu verða að lesa að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Sálfræðileg innsýn Patricia Highsmith er framúr- skarandi glæpasagnahöfundur. Sálf ræðiþáttur inn er f y r ir- ferðarmikill í bókum hennar, þar sem jafnvel allra ólíklegasta fólk fremur morð. Þekktasta per- sóna hennar er hinn listelski og siðblindi morðingi Tom Ripley. Ein af bestu bókum Highsmith er Strangers on a Train þar sem tveir menn hittast í lest og annar þeirra stingur upp á að þeir skipti á morðum. Alfred Hitchcock gerði rómaða mynd eftir bókinni. Glæpur elskenda James M. Cain skrifaði nokkrar frábærar glæpasögur, þar á meðal Pósturinn hringir alltaf tvisvar. Elsk- endur ákveða að drepa eiginmann konunnar, en eftir morðið byrja þau að tortryggja hvert annað. Bókin hefur verið kvikmynduð sjö sinnum, orðið að óperu og leikriti. Hún er talin ein áhrifamesta glæpasaga 20. aldar. Bókin hefur tvisvar verið gefin út á íslensku. Eftir lestur á henni er svo upplagt að lesa aðra magnaða glæpa- sögu eftir Cain, Tvöfaldar tjónabætur. Kolbrún Bergþórsdóttir 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.