Fréttablaðið - 04.08.2020, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Þessi áfengislausa bylgja er ekki bara bundin við Ísland heldur eitthvað sem hefur verið að gerj-ast á heimsvísu. Skoski bjór f r a m leiða nd i n n
BrewDog opnaði til dæmis bar í
London fyrr á árinu sem býður ein-
göngu upp á áfengislausan bjór og
það í mörgum tegundum.
Sturlaugur Jón Björnsson, brugg-
meistari hjá Borg, segir að Bríó
Wheat Ale, fyrsti áfengislausi bjór
landsins sé enn ein rósin í hnappa-
gatið í bjórmenningu landans.
„Þetta hefur verið vaxandi á
alþjóðavísu í talsverðan tíma og
sennilega eru nokkrar ástæður fyrir
því. Eins og Íslendingar hafa orðið
varir við hefur gríðarleg gróska
verið í bjórgerð á undanförnum
árum.
Nú erum við farin að tala um að
drekka einn bjór í einu og njóta
bragðgæðanna, para bjór með mat á
metnaðarfyllri hátt og svona mætti
lengi halda áfram. Þetta gerir að
verkum að nú þegar við kunnum í
auknum mæli að njóta gæðabjórs er
aukinn áhugi fyrir að stunda slíkt
í tilfellum þar sem við kjósum að
verða ekki fyrir áhrifum af áfengi.
Önnur og veigamikil ástæða er svo
sífellt vaxandi áhersla á hollustu,“
segir Sturlaugur.
Hann vill árétta að Pilsner sé bjór-
stíll, ættaður frá Pilsen í Tékklandi,
og sé oftast í kringum 5 prósent
alkóhól af rúmmáli og komi alkó-
hóllausum bjór lítið við. „Pilsner í
þessu samhengi er hins vegar bara
málhefð og rangnefni sem samheiti
yfir áfengissnauða bjóra sem kemur
til vegna vörunnar Egils Pilsner sem
verið hefur hér á markaði í rúma
öld – en það er nú önnur saga,“ segir
Sturlaugur léttur.
Hann segir að sykurinnihald sé
lítið og kaloríuinnihaldið sé lágt,
talsvert lægra en í hefðbundnum
gosdrykkjum. „Áfengislaus bjór
er í það minnsta hollari valkostur
en margt annað sem drukkið er.
Þá er bjór almennt unninn úr lítið
unnum hráefnum og hægt að færa
rök fyrir því að hann sé náttúrulegri
en margt annað á markaðnum. Sem
dæmi má nefna að áfengislaus bjór
er mikið drukkinn í Þýskalandi og
víðar, við endurheimt, af íþrótta-
fólki.“
Bjóráhugafólk hefur heyrt af
þessari útgáfu í tæp fjögur ár enda
hefur verið mikil þróun erlendis.
„Við höfum verið í samskiptum
við þá aðila sem hafa verið að þróa
þessa tækni áfram. Nú loksins erum
við tilbúin með þessa vöru og í þeim
gæðum sem við erum til í að standa
á bak við,“ segir Sturlaugur stoltur.
Aðspurður um merkinguna
„Minna en 0,5% alkóhól af rúm-
máli,“ sem stendur á bjórnum en
skammt frá stendur einnig Áfeng-
islaus, viðurkennir Sturlaugur
að þetta kunni að hljóma rugl-
ingslega. „Minna en 0,5 prósent
alkóhól af rúmmáli er hreinlega
orðið snefilmagn. Alkóhól í snefil-
magni finnst víða í matvælum þó
svo að fólk sé ekki upplýst um
það, til dæmis í söfum, ávöxtum
og f leiru. Lögin eru þannig að
þegar alkóhól er komið undir 1,2
prósent af rúmmáli er það orðið
það lítið að ekki þarf að taka
það fram á umbúðunum lengur.
Við erum að elta hefðir og reglur
á framleiðslu sams konar vara
í Evrópu en þar gildir að vörur
undir 0,5 prósent alkóhóli af rúm-
máli eru merktar „Alcohol Free“.
Slíkar vörur hafa einmitt sést hér
á landi undanfarið. Þetta eru því
frábærar fréttir fyrir Komma og
Skjöld sem geta leyft sér að vera
Bríó allan daginn núna, ekki bara
frá og með Drekkutímanum,“
segir bruggmeistarinn og skelli-
hlær. benediktboas@frettabladid.is
Drekkutíminn er loks
orðinn spennandi á ný
Vaxandi áhugi er nú fyrir áfengislitlum og áfengislausum bjórum
sem bjóða upp á mun minna áfengi en þekkst hefur hér á landi til
þessa. Borg Brugghús hefur sent frá sér bjór – sem varla telst bjór.
Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari Borgar Brugghúss, glaður í bragði með fyrsta áfengislausa bjórinn sem
hefur verið framleiddur hérlendis. Aðrir hafa verið með um 2,25 prósent að rúmmáli. MYND/ FINNUR MALMQUIST
ÞÁ ER BJÓR ALMENNT
UNNINN ÚR LÍTIÐ
UNNUM HRÁEFNUM OG HÆGT
AÐ FÆRA RÖK FYRIR ÞVÍ AÐ
HANN SÉ NÁTTÚRULEGRI EN
MARGT ANNAÐ Á MARKAÐNUM
4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð