Fréttablaðið - 07.08.2020, Qupperneq 6
Á Íslandi þurfa hvorki
söfn né veitingastaðir að
safna upplýsingum um gesti
sína, þeim er öllum safnað
við landamærin.
STJÓRNSÝSLA Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri Félags atvinnu
rekenda, FA, segir mikilvægt að
stjórnvöld skýri hvernig koma eigi
til móts við fyrirtæki sem neyðast
til að hætta eða takmarka starfsemi
sína í núverandi bylgju kóróna
veirufaraldursins.
Félag atvinnurekenda beitir sér
nú fyrir hönd Leiðtogaþjálfunar
ehf., sem starfrækir hin þekktu Dale
Carnegienámskeið og ríkisskatt
stjóri hefur synjað um að fá styrk
vegna tímabundinnar lokunar í
mars í ljósi COVID19.
„Á námskeiðum okkar eru æfing
ar sem kalla á nánd. Okkur var því
nauðugur einn kostur að loka starf
semi okkar,“ segir í styrkumsögn
Leiðtogaþjálfunar. Þar kemur fram
að algengasti fjöldi á námskeiði sé
3035 manns. Sagði að tekjurnar í
apríl hefðu dregist saman um 84
prósent frá því í apríl í fyrra.
Skatturinn óskaði eftir því
23. júní að Leiðtogaþjálfun sendi
inn rökstuðning fyrir því að starf
semi fyrirtækisins uppfyllti auglýst
ar kröfur fyrir lokunarstyrk. Félag
atvinnurekenda svaraði fyrir hönd
Leiðtogaþjálfunar 10. júlí. Kom þar
fram að vinsælustu Dale Carnegie
námskeiðin snúist um sjálfsrækt
þar sem þátttakendur kafi inn á við
til að yfirstíga persónulegar hindr
anir.
„Í tímunum fara fram samtöl
við þátttakendur sem yfirgefa
tímann oft í geðshræringu og þurfa
huggun sem ekki er hægt að veita
úr fjarlægð. Í þeirri viðleitni að fá
þátttakendur til að stíga út fyrir
þægindahringinn eru enn fremur
notaðar sveigjanleikaæf ingar.
Æfingum fylgir snerting og hama
gangur auk þess sem fólk svitnar og
frussar,“ er staðan útskýrð.
Í bréfi FA segir enn fremur að þó
að í auglýsingunni um lokunar
styrkina séu talin upp dæmi, geti
sú upptalning ekki talist tæmandi.
Leiðtogaþjálfun telji að starfsemin
falli undir þá málsgrein auglýs
ingarinnar sem taki til starfsemi
og þjónustu sem krefjist og skapi
hættu á snertingu milli fólks og mik
illar nálægðar. Leiðtogaþjálfun hafi
ekki talið sér annað fært en að loka
vegna mikillar nándar og að ófært
hafi verið að tryggja tvo metra milli
manna á námskeiðunum.
„Vill félagið í þessu sambandi
árétta mikilvægi þeirrar samfélags
legu ábyrgðar sem félagsmaður
okkur hefur sýnt með því að loka
starfsemi sinni á grundvelli fyrr
greindra sjónarmiða með það að
markmiði að draga úr útbreiðslu
veirunnar,“ er undirstrikað í bréfi
FA.
Ríkisskattstjóri synjaði umókn
Leiðtogaþjálfunar 23. júlí. Upp
fylla þurfi öll sett skilyrði til þess að
eiga rétt á lokunarstyrk og það geri
Leiðtogaþjálfun ekki. Fyrirtækið
falli undir það ákvæði sem feli í sér
fjölda og nálægðartakmarkanir en
þar sem hægt sé „að viðhalda starf
semi í einhverri mynd og laga að
hertum sóttvörnum“, eins og segir
í synjunarbréfinu.
Óla f u r St ephen s en, f r a m
kvæmdastjóri FA, segir niðurstöð
una í máli Leiðtogaþjálfunar mikið
umhugsunarefni og kveður von á
kæru til yfirskattanefndar. Fyrir
tækinu hafi augljóslega verið lokað
vegna fyrirmæla stjórnvalda í
áðurnefndri auglýsingu. Mikill
ábyrgðarhluti hefði verið að halda
rekstrinum áfram.
„Ef Skatturinn heldur sig við
þrönga túlkun á lögunum um
stuðning við minni rekstraraðila,
þarf Alþingi að endurskoða lögin
þannig að þau nái með skýrum
hætti yfir öll fyrirtæki, sem sannar
lega neyddust til að hætta rekstri
vegna fyrirmæla stjórnvalda. Vegna
fárra umsókna um lokunarstyrki
er augljóslega svigrúm til að rýmka
skilyrðin fyrir greiðslu þeirra,“
bendir Ólafur á.
Að sögn Ólafs hefur FA kallað
eftir því að stjórnvöld greini hið
fyrsta frá því hvort og þá hvernig
þau hyggist koma til móts við fyrir
tæki sem neyðist til að hætta starf
semi eða takmarka hana nú þegar
önnur bylgja faraldursins sé hafin.
„Það er mikilvægt að þá sé réttar
staðan á hreinu, því að skýrar línur
um stuðning við fyrirtæki styðja
þá við aðgerðir almannavarna og
heilbrigðisyfirvalda og auðvelda
fyrirtækjum að sýna samfélagslega
ábyrgð og grípa til ráðstafana til að
hefta útbreiðslu kórónuveirunnar,“
segir framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda. gar@frettabladid.is
Synjað um styrk vegna
lokunar Dale Carnegie
Félag atvinnurekenda segir að falli ríkisskattstjóri ekki frá þröngri túlkun á
lögum um lokunarstyrki vegna C0VID-19 verði Alþingi að breyta lögunum.
Félagið rekur mál Dale Carnegie sem fær ekki styrk vegna lokunar í mars.
Lítið var um að vera í húsnæði Dale Carnegie-námskeiða Leiðtogaþjálfunar við Ármúla 11 í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI
Vingardíum ...
CHILI-SÓSA!
SNILLD Á FRAN
SK
A
R
N
A
RCH
ILISÓ
SA
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Fáðu töfra
innblástur á
kronan.is/
töfrar
NÁTTÚRA Frjómælingar Náttúru
fræðistofnunar Íslands sýna að
umtalsverður munur var á Norður
landi og Suðurlandi í júlí. En eins og
áður hefur komið fram var júlímán
uður afar kaldur, um 1,3 gráðum
undir tíu ára meðaltali í Reykjavík
og einnig undir meðaltali á Akur
eyri.
Kuldinn virðist ekki hafa haft
áhrif til lækkunar sunnanlands en
í mælingastöðinni í Garðabæ mæld
ust 1.149 frjó á hvern rúmmetra en
þar er meðaltalið í júlí 932. Á Akur
eyri mældust hins vegar aðeins 511
frjó á rúmmetra, sem er langt undir
meðaltalinu undanfarin 20 ár, það
er 916.
Meira en tveir þriðju frjókorna
á báðum stöðum voru grasfrjó en
einnig var nokkuð af súrufrjóum.
Samkvæmt Náttúrufræðistofnun
má áfram búast við grasfrjóum í
lofti í ágúst ef veðurskilyrði verða
hagstæð. – khg
Mikill munur á frjókornum norðan- og sunnanlands
Vegna fárra um-
sókna um lokunar-
styrki er augljóslega svig-
rúm til að rýmka skilyrðin
fyrir greiðslu
þeirra.
Ólafur Stephen-
sen, fram-
kvæmdastjóri FA
Aðeins 511 frjó mældust
á hvern rúmmetra á Akur-
eyri en meðaltalið er 916.
COVID -19 Lög reglan hefur ekki
beinan að gang að þeim per sónu
upp lýsingum sem ferða menn skila
inn á eyðu blöðum við komu til
landsins og geta því ekki stuðst við
þær í rann sóknum sínum á saka
málum eða í neinum öðrum til gangi
en þeim sem tengist smitrakningu.
Embætti landlæknis hefur eitt að
gang að upp lýsingunum nema
þegar smit greinist hjá ein stak
lingi við landa mæra skimun en þá
fær smitrakningar teymið einnig
að gang að upplýsingum um við
komandi.
Víða í Evrópu hefur skapast nokk
ur um ræða um söfnun per sónu upp
lýsinga í þeim til gangi að koma í veg
fyrir út breiðslu kórónaveirunnar og
mögu leika lög reglunnar til að nota
upp lýsingarnar í öðrum til gangi.
Greint hefur verið frá því að í ein
hverjum til fellum hafi lög reglan
sóst eftir þessum upp lýsingum í
öðrum til gangi, til dæmis í leit að
vitnum og síðast í Ítalíu til að hafa
upp á manni sem framdi skemmd
arverk á lista verki í safni nokkru.
Á Ís landi þurfa hvorki söfn
né veitinga staðir að safna upp
lýsingum um gesti sína heldur er
þeim öllum safnað við landamærin.
Per sónu verndar full trúi Em bættis
land læknis, Hólmar Örn Finns son,
segir í sam tali við Frétta blaðið að
upp lýsingarnar séu aðeins notaðar
í tengslum við skimun og smitrakn
ingu. Hann segir að upp lýsingarnar
séu geymdar í sótt varna grunni hjá
Em bætti land læknis og sóttvarna
læknis.
„Þar getum að eins við tengt ein
stak linga og sýnin þeirra. Þannig að
þegar til rauna stofur greina sýnin
þá senda þær niður stöðurnar til
okkar og við tengjum saman ein
stak ling og niður stöðu,“ segir hann.
„Ef sýnið reynist jákvætt eru upp
lýsingarnar af eyðublaðinu náttúru
lega sendar til rakningarteymisins
svo að það geti fylgt viðkomandi
einstaklingi eftir,“ segir Hólmar.
og bætir við að lögreglan geti ekki
notað eyðublöðin við rannsóknir á
sakamálum.
Hann segir að em bættið myndi
ekki veita lög reglu heimild til að
nálgast upp lýsingarnar ef sóst yrði
eftir og bendir á að vissar reglur
gildi um öf lun upplýsinga í saka
málum. Lög reglan gæti þannig
fengið dóms úr skurð til að nálgast
ýmis legt. – okp
Lögreglan fengi ekki aðgang að
upplýsingum án dómsúrskurðar
Allir þeir sem koma til landsins
þurfa að veita ýmsar persónu-
upplýsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð