Fréttablaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 10
Mikil reiði
ríkir í Beirút
Almenningur í Beirút kennir spilltum stjórn-
völdum í Líbanon um sprenginguna sem varð í
borginni á þriðjudag. Forseti Frakklands heimsótti
Beirút í gær og hét því að hjálpa við uppbyggingu.
LÍBANON Íbúar í Beirút eru reiðir
ríkisstjórn landsins og segja van-
rækslu ástæðu sprengingarinnar
sem varð í borginni síðastliðinn
þriðjudag. Í það minnsta 145
manns létust í sprengingunni og
um fimm þúsund eru slösuð. Fjölda
fólks er enn saknað.
Sprengingin varð þegar eldur
kom að gríðarlegu magni af amm-
oníumnítrati sem geymt var á
hafnarsvæði borgarinnar. Forseti
Líbanons, Michael Aoun, hefur
gefið út að 2.750 tonn af efninu
hafi verið geymd í vöruhúsi við
höfnina og að húsnæðið hafi ekki
verið öruggt.
Almenningur kennir spilltum
stjórnvöldum um sprenginguna
og segir yf irvöld hafa vitað af
efninu í ótryggu húsnæðinu án
þess að bregðast við. Daginn eftir
sprenginguna tilkynnti ríkisstjórn
Líbanons að fjöldi hafnarfulltrúa á
svæðinu hefði verið settur í stofu-
fangelsi þar til rannsókn á spreng-
ingunni hæfist. Haft var eftir varn-
armálaráði landsins að þeir sem
ábyrgir væru fyrir sprengingunni
myndu hljóta hörðustu refsingu.
Bæði Amnesty International
og samtökin Human Right Watch
(HRW) hafa kallað eftir sjálfstæðri
rannsókn á sprengingunni. Í yfir-
lýsingu frá HRW lýsa samtökin
yfir „verulegum áhyggjum af getu
líbanska dómsvaldsins til að fram-
kvæma trúverðuga og gegnsæja
rannsókn á eigin vegum“.
Forseti Frakklands, Emmanuel
Macron, heimsótti Beirút í gær,
fyrstur þjóðarleiðtoga, en Líbanon
var frönsk nýlenda fyrir seinni
heimsstyrjöldina og náið samband
er milli ríkjanna tveggja. Almenn-
ingur í Beirút f lykktist að Macron
í gær þar sem hann gekk um götur
borgarinnar og kallaði að honum
kröfur um hjálp og fordæmingu
líbanskra stjórnvalda.
„Hjálpaðu okkur, þú ert okkar
eina von,“ kallaði íbúi borgarinnar
að franska forsetanum samkvæmt
fréttastofu BBC og annar biðlaði til
hans að færa „spilltum stjórnvöld-
um landsins ekki peninga heldur
hjálpa fólkinu sem býr í landinu“.
Macron hét því að hjálpa til við
skipulagningu alþjóðlegrar aðstoð-
ar en sagði að stjórnvöld í Líbanon
yrðu að hrinda í framkvæmd efna-
hagsumbótum og uppræta spill-
ingu. Afar bágt efnahagsástand
var í Líbanon fyrir sprenginguna
og eru efnahagsleg áhrif hennar
talin geta numið 10-15 milljörðum
Bandaríkjadala.
birnadrofn@frettabladid.is
Eyðileggingin eftir sprenginguna í Beirút, höfuðborg Líbanons, er gríðarleg og er talið að efnahagsleg áhrif hennar á landið geti numið 10-15 milljörðum Bandaríkjadala. MYND/GETTY
Fjölmörg hús í
Beirút eru ónýt
eftir sprenging-
una og um 300
þúsund manns
eru heimilis-
laus. MYND/GETTY
7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð