Fréttablaðið - 07.08.2020, Qupperneq 12
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Hvernig
væri nú
að vinstri
menn kæmu
einn daginn
duglega á
óvart með
því að hrósa
Davíð Odds-
syni?
Fjórða
iðnbyltingin
er ekki síst í
sjálfkeyr-
andi farar-
tækjum sem
munu spara
fjármuni og
bjarga
manns-
lífum.
Það er fallegt þegar stjórnmálamenn hrósa þeim sem eiga að teljast keppinautar eða andstæðingar þeirra í stjórnmálum. Það lýsir ekki bara örlæti heldur líka getu til að koma sér upp úr þeim pólitísku skot-gröfum sem stjórnmálin eru svo óþægi-
lega full af.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, hrósaði á dögunum þingmönnum Pírata
og sagði þá búa yfir ýmsum góðum kostum en tók um
leið fram að hann deildi ekki öllu í sýn þeirra.
Engin ástæða er til að fólk sé stöðugt að deila sömu
sýn. Sá sem ætlast til þess er fastur í þröngsýni. Hann
þykist vita hvað er rétt og satt og leyfir ekki frávik
frá því. Það er fáránlegt að dæma fólk eftir stjórn-
málaskoðunum þess, nema viðkomandi sé alræmdur
fasisti sem ætíð gengur rangan veg.
Alltaf er nokkuð vandræðalegt að hlusta á stjórn-
málamenn segja: Við Sjálfstæðismenn – Við í Sam-
fylkingunni – Við Framsóknarmenn og svo fram-
vegis. Það er dálítið eins og meðlimur í sértrúarflokki
sé að tala. Einstaklingur sem aldrei lætur hvarfla að
sér að efast um málstaðinn heldur fylgir fyrir fram
gefinni línu af sannri sannfæringu. Það getur ekki
verið hollt.
Það er ekkert óskaplega langt síðan þingmaður,
gamall í hettunni, kvartaði undan því að andinn
á Alþingi væri svo slæmur að ekki hvarflaði að
þingmönnum að setjast til borðs í hádegishléi með
pólitískum andstæðingum. Slíkt hefði hins vegar
verið mikið sport á árum áður og úr hefðu orðið hinir
líf legustu matmálstímar.
Flokkshollusta blindar fólk allt of oft. Sjálfstæðis-
menn froðufella margir hverjir í hvert sinn sem
Dagur B. Eggertsson sést opinberlega, enda er hann í
þeirra huga maðurinn sem hefur sett sér það mark-
mið að eyðileggja Reykjavík, og vill auk þess draga þá
út úr einkabílnum og henda þeim upp í strætó. Sem er
fádæma ósvífið því allir vita að sómakær Sjálfstæðis-
maður getur alls ekki látið sjá sig í strætó.
Vinstri menn geta svo enn ekki á heilum sér tekið
vegna tilveru Davíðs Oddssonar. Í hvert sinn sem
ögrandi, hvöss og ósvífin nafnlaus skrif birtast í
Morgunblaðinu, hvort sem um er að ræða Staksteina
eða Reykjavíkurbréf, þá hrynur taugakerfi þessa
fólks. Eina ráð þess er að fara hamförum og fordæma
skrifin, án þess að rýna í þau. Enda þarf þess ekki. Það
liggur í hlutarins eðli að skoðanir sem þar eru settar
fram hljóta að vera rangar af því að Davíð Oddsson
getur ekki nokkurn tíma haft á réttu að standa.
Nú má vel vera að í einhverjum tilvikum hafi ein-
hver annar en Davíð skrifað viðkomandi pistla og
greinar, en að því er aldrei hugað – sem hlýtur að vera
mjög frústrerandi fyrir þann sem skrifað hefur en fær
aldrei kredit. Hann er orðinn Davíð Oddsson án þess
að vera það. Mjög súrrealískt hlutskipti.
Hvernig væri nú að vinstri menn kæmu einn
daginn duglega á óvart með því að hrósa Davíð Odds-
syni? Eins og allir hlýtur hann stundum að hafa á
réttu að standa. Varla er hann Óvinurinn sjálfur holdi
klæddur. Eða hvað?
Óvinurinn
Tuttugasta og fyrsta öldin er öld breytinga. Fram-tíð borga felst mikið í því að nýta nýja tækni og vera leiðandi í umbreytingum.
Á sama hátt og hrein hitaveitan tók við af mengandi
kolakyndingu getur Reykjavík verið í fararbroddi við
rafvæðingu bílaflotans. Þó eitthvað sé gert af hálfu
borgarinnar er hægt að gera miklu betur í þeim efnum.
Markaðurinn og almenningur eru á undan í þess-
ari umbreytingu. Hér á borgin að stórbæta aðgengi
almennings að rafhleðslu í fjölbýli. Þetta höfum við
Sjálfstæðismenn lagt til í borgarstjórn. Loftgæðin eiga
líka að vera betri. Talið er að um 80 ótímabær dauðs-
föll megi rekja til svifryksmengunar í Reykjavík. Hér
þarf að snúa við blaðinu og bæta loftgæði með betra
malbiki og hreinum orkugjöfum.
Íslensk fyrirtæki hafa verið framarlega í notkun
Internetsins. Höfuðborgin er eftirbátur í þessum
efnum en ekki leiðandi. Enn þarf að skila teikningum
og skjölum á pappír inn í borgarkerfið sem svarar
með bréfapósti. Nú eða alls ekki. Nýlega sendi borgin
áskorun á borgarbúa um að afþakka pappír. Áskor-
unin var send inn um allar lúgur. Á pappír. Í stað þess
að falla á eigin prófi ætti borgin að auðvelda sam-
skiptin við íbúa með skilvirkum hætti. Svara fyrir-
spurnum hratt og vel og afgreiða mál. Kostnaður í
borgarkerfinu er gríðarlegur eins og það er í dag og eru
mun fleiri starfsmenn á íbúa í stærsta sveitarfélaginu
en nágrannasveitarfélögum. Viðbrögð fyrirtækja og
skóla í COVID-19-faraldrinum sýna vel hvernig hægt
er að auka skilvirkni. Tæknin eykur sveigjanleika,
framleiðni og bætir þjónustu. Þrjár f lugur í einu höggi.
Bylting er að eiga sér stað í samgöngumálum. Fjórða
iðnbyltingin er ekki síst í sjálfkeyrandi farartækjum
sem munu spara fjármuni og bjarga mannslífum.
Hér á borgin að vera leiðandi. Merkingar verða að
vera í lagi. Og svo er stórt tækifæri í að nútímavæða
almenningssamgöngur. Sjálfvirkir strætisvagnar geta
bætt þjónustuna mikið, enda er kostnaður við slík
kerfi mun lægri. Í stað þess að veðja á línulegar lausnir
er framtíðin fólgin í snjöllum og persónumiðuðum
lausnum. Þar á Reykjavík að vera í fararbroddi.
Framtíðarborgin
Eyþór Arnalds
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokks
Af eða á
Það getur verið snúið að átta sig
á ýmsu. Í gær var hér rætt um
hitastig í því sambandi. En það
er f leira. Í gær sagði Þórólfur
Guðnason frá því að Íslensk
erfðagreining myndi skima á
landamærunum á nýjan leik.
Fyrir örfáum dögum var hér allt
á öðrum endanum vegna þess
að Íslensk erfðagreining væri
að hætta að skima þar. Þrátt
fyrir eftirgangsmuni var Kári
Stefánsson óbifanlegur í þeirri
afstöðu sinni að nú væri nóg
komið og ÍE þyrfti að snúa sér að
þeim verkefnum sem starfsemi
þess byggir á. Við erum þakklát
fyrir að Kári skimi á ný, en hefði
ekki mátt spara sér þetta upp-
hlaup?
Fámennissamgöngur
Í gær var tilkynnt um að frestur
til að sækja um styrki til verk-
efna á sviði almenningssam-
gangna á grundvelli stefnumót-
andi byggðaáætlunar, eins og
það er nefnt, hafi verið fram-
lengdur fram í miðjan mánuð.
Það er til mikils að vinna, heilar
32,5 milljónir. Nú ætti það að
vera alkunna að nema kannski
í allra stærstu sveitarfélögum,
eru almenningssamgöngur á
landsbyggðinni í skötulíki, út
af svolitlu. Það mun því líklega
ekki breyta neinu þó frestur
til að sækja um styrk til að fara
sér að fjárhagslegum voða sé
lengdur. Ísland er land einka-
bílsins.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN