Fréttablaðið - 07.08.2020, Page 20
Elsku hjartans gullið okkar,
eiginmaður minn, sonur,
tengdasonur, bróðir, faðir og afi,
Sverrir Þór Einarsson
Skarpaas
(Sverrir Tattoo)
lést á Landspítalanum þann 26. júlí.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 10. ágúst
klukkan 13.00. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðu
„Jarðarför Sverris Tattoo“.
Diljá Palmer
Gerd Skarpaas Einarsson
Einar Stefán Einarsson
Olafina I. Palmer
Stormur Þór Þorvarðarson
systkini, börn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Héðins Jónassonar
málarameistara,
Hamratúni 3, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækningadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri, Fjölni Elvarssyni nýrnasérfræðingi
og starfsfólki skilunardeildar Landspítalans.
Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir
Hanna Björg Héðinsdóttir Jónas Valdimarsson
Þórunn Sif Héðinsdóttir Símon H.Z. Valdimarsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar
elskulegu eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Sigrúnar Erlu Helgadóttur
Vallarbraut 6, Reykjanesbæ,
sem lést 11. júlí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir góða
umönnun og hlýtt viðmót.
Ragnar Birkir Jónsson
Guðmundur K. Birkisson Erla Guðjónsdóttir
Valgerður Hrefna Birkisdóttir Eyjólfur Gísli Garðarsson
Helga Magnea Birkisdóttir Ólafur J. Sólmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sólin skín á okkur hér í Hafnar-hólmanum þar sem við ætlum að vígja Nýlundabúðina í dag, föstudaginn 7. ágúst klukkan 17, en getum ekki haft hana galopna út af veirunni,“ segir
Elín Elísabet Einarsdóttir listakona.
Hún talar þar einnig fyrir munn sam-
starfskonunnar, Ránar Flygenring. Þær
hafa unnið saman áður, undir merkjum
Teikniþjónustunnar Jafnóðum, þar taka
þær að sér hraðteikningu viðburða,
fanga stemninguna og hengja mynd-
irnar upp jafnharðan.
Nú eru þær staddar á Borgarfirði
eystra og ætla að vera þar að minnsta
kosti næstu tvær vikurnar, að sögn Elín-
ar Elísabetar. „Það eru allir velkomnir á
vígsluna í dag – á netinu. Við erum með
virkan Instagram-reikning @nylunda-
budin þar sem hægt er að fylgjast með.
Það verða ræðuhöld, klippt á borða,
vettvangsferð og lundaskoðun fyrir alla
fjölskylduna,“ lýsir hún en tekur fram að
vörurnar í Nýlundabúðinni séu ekki til
sölu svo hún sé ekki búð í algengasta
skilningi þess orðs. „Við Rán erum í
vöruþróun og hér er það sem kallast
ætti „opin vinnustofa“ en hún er lokuð
vegna veirusmitvarna. Gestir mega ekki
koma inn, einungis gægjast inn um gætt-
ina. Þetta er allt svolítið þversagnakennt
hjá okkur.“
Elín Elísabet segir fólk hins vegar
mega ganga óhindrað um Hafnarhólma.
„Hér er mjög fín aðstaða til að skoða
lundann áður en hann fer úr hólmanum,
þetta eru síðustu dagarnir hans þetta
árið. Við erum hér til staðar til að kveðja
hann þegar hann er kominn með nóg af
nálægðinni við manninn í bili og heldur
til hafs. Við sjáum einn og einn koma
enn þá og skottast ofan í holur með fisk
í gogginum handa pysjunum sínum.
Annars eru þeir á sjónum allt í kring
um hólmann á daginn og setjast upp í
hann á kvöldin. Í gær hellirigndi og þá
voru þeir allir í hólmanum en í blíðunni
í dag (í gær) eru þeir allir úti. Pysjurnar
eru áfram í holunum þó að foreldrarnir
yfirgefi þær og þykist hafa lokið sínu
uppeldishlutverki. Á endanum fattar
pysjan að það er enginn að koma með
mat handa henni og hún verður að græja
hann sjálf. Það er bara harða leiðin. Ég
hugsa að allir lundar séu með einhvers
konar bernskutráma eftir þetta.“
Listakonurnar búa í sátt og samlyndi
við lundann, að sögn Elínar Elísabetar.
„Við fengum góðfúslegt leyfi hjá sveitar-
félaginu og varðmanni hólmans, henni
Helgu á Bakka, til að breyta fuglaskoð-
unarhúsinu í Nýlundabúð og ætlum að
setja skilti á húsið þess efnis. Erum með
faglegan heimamann í því og treystum
honum fullkomlega.“
Sem dæmi um varning í Nýlunda-
búðinni nefnir Elín Elísabet póstkort,
bæklinga, teikningar og styttur, já og
trélunda til að hafa í garðinum hjá sér,
„ef maður vill laða lundavarp í hann,“
eins og hún orðar það. „Svo er óljóst
hvað verður um þessa vöruþróun hjá
okkur, það er enn bæði opið og lokað
líka. Okkar ásetningur er sá að endur-
vekja fyrri ímynd lundans, því orðið
lundabúð hefur fengið á sig neikvætt
orðspor vegna minjagripasölunnar. En
lundinn er svo fínn fugl að hann á betra
skilið. Hann er bara lítill og nettur sjó-
fugl sem hefur ekkert gert af sér. Við
viljum hefja hann aftur til vegs og virð-
ingar.“ gun@frettabladid.is
Nýlundabúðin opnuð í
dag á Borgarfirði eystra
Nýlundabúðin er fyrsta lundabúð landsins sem umkringd er alvöru lundum. Hún er í
Hafnarhólma á Borgarfirði eystra og verður formlega opnuð í dag klukkan 17 – þó ekki
upp á gátt. Listakonurnar Elín Elísabet og Rán Flygenring eru við vöruþróun á staðnum.
Listakonurnar Rán Flygenring og Elín Elísabet Einarsdóttir með sýnishorn af varningi úr Nýlundabúðinni. MYNDIR/SEBASTIAN ZIEGLER
Þær eru ekki með nógu marga handleggi til að geta haldið á öllum stöfunum í einu.
Okkar ásetningur er sá að
endurvekja fyrri ímynd lund-
ans, því orðið lundabúð hefur
fengið á sig neikvætt orðspor
vegna minjagripasölunnar. En
lundinn er svo fínn fugl að hann
á betra skilið.
Merkisatburðir
1727 Öræfajökull tekur að gjósa með miklu öskufalli svo
vart sést munur dags og nætur.
1772 Útilegumennirnir Fjalla-Eyvindur Jónsson og Halla
Jónsdóttir eru handtekin á Sprengisandi og flutt norður í
Mývatnssveit.
1939 Haukur Einarsson syndir Grettissund frá Drangey
til lands á mettíma, þremur klukkustundum og tuttugu
mínútum.
1945 Áfengisskömmtun er hætt á Íslandi eftir að hafa
varað í fimm ár.
1947 Norðmaðurinn
Thor Heyerdahl
lýkur siglingu sinni yfir
Kyrrahaf á flekanum
Kon-Tiki.
1960 Vilhjálmur Ein-
arsson bætir eigið Ís-
landsmet í þrístökki frá
því í Melbourne 1956
með því að stökkva
16,70 m á frjálsíþrótta-
móti í Reykjavík, það
er næstlengsta stökk í
heimi.
1980 Pólskir hafnar-
verkamenn hefja röð
verkfalla í slippnum í
Gdansk undir forystu
Lech Wałęsa.
7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT