Fréttablaðið - 07.08.2020, Page 21

Fréttablaðið - 07.08.2020, Page 21
TAKK LJÓSAVINIR Þið veitið krabbameinsgreindum ómetanlegan stuðning ljosid.is Nafn: Anna Guðrún Auðunsdóttir Aldur: 49 Starf/nám: Viðskiptafræðingur í Fjárhagsbókhaldi Landspítala Hvernig myndir þú lýsa tilfinningunni þegar þú mætir í Ljósið: Mér fannst það skrítið fyrst en núna er það eins og að koma heim. Dásamlegt starfsfólk sem tekur alltaf vel á móti manni með brosi, hlýju og húmor. Ég er líka svo þakklát fyrir þennan vettvang til að hitta fólk í svipaðri stöðu og geta borið saman bækur um líðan og fengið góð ráð. Hvernig fréttir þú af Ljósinu: Var bent á það af vinum og fjölskyldu. Hver er uppáhalds dagskrárliðurinn þinn í Ljósinu: Það er tvennt sem stendur uppúr. Annars vegar námskeið fyrir nýgreindar konur þar sem ég eignaðist góðar vinkonur. Hins vegar hreyfingin, en ég er dugleg að mæta í tækjasalinn. Nýtti einhver ástvinur sér þjónustu fyrir aðstandendur: Nei Ljósavinir eru ómetanlegur þáttur í starfsemi Ljóssins. Með þínu framlagi geta nú yfir 500 ljósberar eins og Anna Guðrún notið endurhæfingar og stuðnings í hverjum mánuði. Það er ekkert sem býr mann undir að greinast með krabbamein en með þinni hjálp getum við boðið þeim sem greinast faglega endurhæfingu. Fyrir það erum við ævinlega þakklát.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.