Morgunblaðið - 27.01.2020, Page 1

Morgunblaðið - 27.01.2020, Page 1
M Á N U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  22. tölublað  108. árgangur  ENDURHÆFING SVO UNGT FÓLK FÁI BLÓMSTRAÐ SPÁNN VARÐI TITILINN SAGA ALLRA LISTASAFNA ÍSLANDS Á BÓK EM Í HANDBOLTA 26 SAFNAFRÆÐI 28LÍFSGÆÐI 6 Alexander Kristjánsson, Sigurður Bogi Sævarsson, Þorgerður Anna Gunnarsdóttir og Þór Steinarsson Óvissustigi almannavarna hefur ver- ið lýst yfir vegna mögulegrar kviku- söfnunar á Reykjanesskaga, rétt vestan fjallsins Þorbjarnar. Landris síðustu daga hefur verið það hrað- asta frá því að mælingar hófust, en land hefur risið um tvo sentimetra á rúmum fimm sólarhringum. Fjallið Þorbjörn er við bæjarmörk Grindavíkur, steinsnar frá Svarts- engisvirkjun HS Orku og Bláa lón- inu, og í 12 kílómetra fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli, þar sem litakóði alþjóðaflugs hefur verið færður á gult, sem þýðir að eldstöð sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand. Komi til eldgoss gæti þurft að flytja um 5.000 manns á brott, íbúa Grindavíkur og starfsmenn Svarts- engisvirkjunar og Bláa lónsins, auk ferðamanna, að sögn Rögnvaldar Ólafssonar hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Hann segir erf- itt að segja til um hve langur fyrir- vari gefist til rýmingar, en hann geti verið frá nokkrum mínútum upp í klukkustundir. Búa sig undir hið versta Settar hafa verið upp nokkrar sviðsmyndir um mögulega þróun. Segir Rögnvaldur að líklegasta niðurstaðan sé sú að kvikusöfnun ljúki annaðhvort eða haldi áfram um skeið, án þess þó að dragi til tíðinda. Hins vegar miðist viðbragðsáætlanir við að menn búi sig undir hið versta. Önnur möguleg sviðsmynd er sú að kvikusöfnun valdi jarðskjálftavirkni með stærri skjálftum á svæðinu, allt að stærð sex. Að sögn Rögnvaldar hefðu slíkir skjálftar að öllum lík- indum ekki mikil áhrif á byggingar en lausamunir gætu hreyfst og fallið úr hillum og slasað fólk. Þá gætu lagnir, til dæmis frárennslislagnir lónsins og heitavatnslagnir virkj- unarinnar, farið í sundur í slíkum skjálftum. Starfsmenn HS Orku voru upplýstir um stöðu mála strax í gærmorgun og funduðu í gær með almannavörnum, lögreglu og björg- unarsveitum í samhæfingarmiðstöð- inni í Skógarhlíð, um hugsanleg við- brögð við rýmingu. Þriðja sviðsmyndin er svo eldgos. Ekki hefur gosið í eldstöðinni á Svartsengi síðan á 13. öld, en litlar heimildir eru um afleiðingar þess. Að sögn Magnúsar Tuma Guð- mundssonar, prófessors við Jarðvís- indastofnun Háskóla Íslands, yrði gos á svæðinu hraungos og myndi líkjast Kröflugosum. „Þetta eru lítil og upp í meðalstór hraungos og miklu minni en gosið í Holuhrauni,“ segir hann. Kvikan myndi þá finna sér farveg neðanjarðar eftir kíló- metra löngum sprungum sem liggja til norðausturs og suðvesturs, að sögn Kristínar Jónsdóttur, hóp- stjóra náttúruvárvöktunar á Veður- stofunni. Viðbúið er að gos gæti staðið í nokkra daga eða jafnvel vik- ur og myndað hraunbreiðu sem þekti um 15-20 ferkílómetra. Óvissustig á Reykjanesi  Landris á Svartsengi síðustu daga er það mesta frá upphafi mæl- inga fyrir þremur áratugum Jarðskjálftar og landris á Reykjanesi Grunnkort/Loftmyndir ehf. Landris austan við fjallið Þorbjörn við Grindavík Land hef ur risið um 2 senti metra frá 21. janú ar. Sam bæri leg ur landris hraði hef ur ekki mælst síðan mæl ing ar hófust fyr ir tæp- lega þrem ur ára tug um. Jarðskjálfta hrina Sam hliða landris inu hefur staðið yfi r skjálfta hrina aust an við rismiðjuna. Stærsti skjálft inn mæld ist 3,7 að stærð 22. janú ar. Jarðskjálftar síðustu sjö daga Svartsengis- virkjun Bláa lónið Svartsengisvirkjun Reykjanesvirkjun Grindavík Grindavík Kefl avík Sandgerði Höfuðborgarsvæðið Kefl avíkur- fl ugvöllur Njarðvík Vogar Þorbjörn Þorbjörn Loftmyndir ehf. Stækka ð svæði Bláa lónið Síðast gaus í eld stöðva kerfi Svartseng is í Reykja neseld um sem stóðu yfi r með hlé um á tíma bil inu 1210-1240 3,7 Morgunblaðið/Eggert Á vaktinni Einar Bessi Gestsson og Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingar voru á vaktinni á Veðurstofunni í gærkvöldi og inn í nóttina. Vel verður fylgst með landrisi í Svartsengi næstu daga. Landris á Reykjanesi Grindavík Kefl avík Jarðskorpuhreyfi ngar 18.-24. janúar mældar frá Sentinel-1 gervitunglinu. Rauði liturinn táknar landris yfi r 15 mm. Kort: vedur.is, HÍ, ÍSOR  Grindavík og Bláa lónið í næsta nágrenni eldstöðvarinnar, sem hefur ekki gosið í 700 ár  Eldgos talið ólíklegt en þó býr fólk sig undir hið versta. Flytja þarf 5.000 manns komi til goss Kórónaveiran sem nú geisar austur í Kína veldur því að nokkur brögð hafa verið að því síðustu daga að þarlendir hópar hafi afbókað hópferðir hjá ís- lenskum ferðaþjónustufyrirtækjum. Þetta segir Kristófer Oliversson, for- maður Félags fyrirtækja í hótel- rekstri. Umrædd veira veldur alvarlegri sýkingu í lungum og hefur þegar hér er komið sögu orðið að minnsta kosti 56 að bana. Þá hafa 2.000 manns sýkst af veirunni. Viðbrögð stjórnvalda eystra á síðustu dögum hafa verið þau að loka fyrir ferðalög Kínverja úr landi. Frá og með deginum í dag verða skipulagðar hópferðir inn í landið og út úr því svo bannaðar. Tals- menn ferðaþjónustu á Íslandi telja of snemmt að segja nokkuð um áhrif þessa eða hve lengi lokunin standi, en hafa megi í huga að Kínverjar séu fjórði fjölmennasti hópurinn sem hingað komi. Sóttvarnargrímur seljast grimmt í apótekum á Íslandi þessa dagana og kaupendurnir eru yfirleitt ferðamenn frá Kína, sem vilja vera við öllu búnir. „Þegar svona veira kemur fram á sjónarsviðið verða menn auðvitað smeykir og eðlilegt að gripið sé til há- marksviðbúnaðar í upphafi meðan mörgum spurningum er ósvarað,“ segir Kristófer Oliversson. Kórónaveiran veldur usla AFP Kína Eystra er fólk með grímur til varnar hugsanlegum heimsfaraldri. MÓttast áhrif veirunnar … »2 Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut í gærkvöldi Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttunum Chernobyl. Hildur hefur þegar hlotið Emmy-verðlaun fyrir hljóð- verkið, sem hún skapaði með hljóð- um úr kjarnorkuveri og eigin röddu en engum hljóðfærum, líkt og hún lýsti í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í sumar. Hildur hef- ur farið sigurför um verðlauna- hátíðir vestanhafs undanfarna mánuði, auk þess sem hún er til- nefnd til Óskarsverðlauna fyrir sama verk. Hildur Guðnadóttir hlaut Grammy-verðlaun AFP Verðlaunahafi Hildur Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.