Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020 ✝ Tómas BiplabMathiesen fæddist í Kolkata á Indlandi 24. ágúst 2000. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. jan- úar 2020. Foreldrar hans eru Ingibjörg Harð- ardóttir prófessor, f. 2. nóvember 1961, og Ólafur Mathie- sen arkitekt, f. 1. apríl 1960. Syst- ir Tómasar er Alma Mathiesen nemi, f. 31. ágúst 2003. Kærasta Tómasar er Margrét Kolka Hlöð- versdóttir nemi, f. 20. mars 1997. Foreldrar hennar eru Margrét Perla Kolka Leifsdóttir og Hlöð- ver Hlöðversson. Tómas stundaði nám í Fjölbrauta- skólanum í Breið- holti og Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Hann vann á sumrin í Björnsbakaríi, á Hverfastöðinni Njarðargötu og hjá Veitum. Tómas æfði sund og fótbolta með KR og síðar frjálsar íþróttir með ÍR. Hann lærði á píanó í Tónskóla Do Re Mí og var á síðustu árum ötull við tónsmíðar. Útför Tómasar verður gerð frá Neskirkju í dag, 27. janúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Það tekur okkur óendanlega sárt að vera nú að kveðja elsku fallega Tómas sem lífið blasti við. Hann átti svo margt eftir ógert. Tómas lærði á píanó á sínum yngri árum, sem lagði grunninn að tónlistarsmíði sem hann vann að undanfarin ár. Hann var einkar hæfileikaríkur á þessu sviði, bæði við texta- og lagasmíð. Nú erum við afar þakklát fyrir að geta hlustað á þessi lög og minnst hans um leið. Fyrir nokkru tókum við upp þann sið að fjölskyldan hittist af og til í hádeginu á sunnudögum. Það var mikið spjallað þegar við hittumst og var sérstaklega gam- an hvað krakkarnir tóku mikinn þátt í umræðunum. Tómas lék á als oddi og lá ekki á skoðunum sínum. Síðast þegar við hittumst sagði hann okkur frá ástinni sinni sem hann var nýlega búinn að kynnast og naut þess að vera með. Elsku Tómas, þín er sárt sakn- að en minning þín og tónlistin mun lifa og ylja okkur um hjarta- rætur um ókomin ár. Hvíl í friði, elsku frændi og barnabarn, Katrín Rögn, Þórdís Rögn, Daníel Ingi og Hörður. Það þyrmdi yfir okkur, sorg og missir þegar við fréttum að Tóm- as væri látinn, horfin á braut í blóma lífsins. Fyrir tæpum 20 ár- um biðum við með mikilli eftir- væntingu eftir að sjá nýjan fjöl- skyldumeðlim þegar Óli bróðir og Ingibjörg komu heim með dreng- inn sinn. Aðdragandinn hafði ver- ið nokkuð lengri en hefðbundin meðganga og því var gleðin og ánægjan að kynnast honum þeim mun meiri. Tómas heillaði strax alla með sínum björtu augum og fallega brosi. Hann var einstak- lega hógvær og kurteis drengur sem lét ekki fara mikið fyrir sér. Hann fylgdist vel með hvað aðrir höfðust að og þá sérstaklega frændsystkinum sínum, hvort heldur það sneri að íþróttum eða námi þeirra. Það sama átti við þegar frændsystkinin fóru að eignast sín börn og nú um jólin opnaði hann fangið fyrir því yngsta. Sjálfur var hann liðtækur í íþróttum og byrjaði ungur að stunda fótbolta en færði sig yfir í frjálsar íþróttir, þar sem hann þótti mjög efnilegur. Það var ánægjulegt að fylgjast með áhuga Tómasar á tónlist, hann var mörg ár í tónlistarskóla þar sem hann lærði á píanó. Sérstak- lega er það minnisstætt þegar Tómas var valinn til þátttöku sem ungt tónskáld í Upptakti árið 2016. Þar var tónverk hans flutt á glæsilegum tónleikum í Hörpu. Lagasmíðar voru þá orðnar eitt helsta áhugamál hans og kom hann sér upp litlu „hljóðveri“ á Lynghaganum til að sinna því. Eftirtektarvert var að fylgjast með hversu gott samband Tóm- asar og Ölmu systur hans var en þau voru miklir vinir og samrýnd alla tíð. Sorgin er þungbær og söknuð- urinn sár en minning um góðan dreng lifir. Elsku Óli, Ingibjörg og Alma, missir ykkar er mikill. Megi hlýj- ar minningar styrkja ykkur í sorginni. Hann mun um alla tíð eiga stað í hjarta okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kristján Geir og Sóley, Svava og Ingvar, Einar og Svanhildur, Árni og Sigrún Ósk, Jens og Kristín Ósk. Árið 2000 komu sex strákar í heiminn sem áttu fljótlega eftir að verða miklir vinir enda stutt á milli heimila í Vesturbænum. Sú vinátta, sem hófst á leikskólanum Sæborg, hefur haldist síðan og við foreldrarnir höfum í gegnum strákana einnig haldið hópinn og bundist vinaböndum. Minningar úr ferðalögum og fjallaskálum koma upp í hugann og ótal fót- boltaferðir og sundæfingar strákanna með öllu því skutli og samvinnu sem það krafðist. Það er óendanlega sárt að þurfa að kveðja einn úr hópnum allt of snemma. Tómas var einstaklega fallegur drengur, kurteis, ljúfur og góður og það var gaman að fylgjast með honum vaxa og verða að myndarlegum ungum manni. Hópurinn er nú hnípinn og við munum sakna samveru Tómasar með drengjunum. Hug- ur okkar er hjá foreldrum hans, Óla og Ingibjörgu, Ölmu systur hans, Margréti vinkonu hans og öðrum aðstandendum. Minning- arnar um Tómas lifa áfram og vonum við að þær veiti fjölskyldu hans styrk í sorginni. Ásdís, Oddný, Ragnheiður, Sigrún, Vala og fjölskyldur. Við tengjumst sérstökum og djúpum böndum, vinahópur sex fjölskyldna sem allar eru mynd- aðar kringum ættleidd börn, fædd á Indlandi og Kína, á ár- unum milli 1994 og 2003. Börnin eru okkar hamingja og nú telur hópurinn yfir þrjátíu manns að viðbættum kærustum og barna- börnum. Við höfum haldið hópinn gegnum tíðina og hist reglulega og notið margvíslegra gefandi samvista, nú síðast í byrjun jan- úar í Sæviðarsundinu, þar sem Tómas hafði sterka nærveru, bjartur og fallegur og kíminn, og sat lengi og spjallaði við hitt unga fólkið. Tómas var hrifinn frá okkur þegar hann stóð á þröskuldi full- orðinsáranna. Í honum mátti sjá barnið sem við þekktum og fyr- irheitin um manninn sem hann gæti orðið. Hann var sérlega vel gefinn ungur maður, skapandi og með mikla tónlistarhæfileika, efnilegur íþróttamaður, hjarta- hreinn, blíður, glaðlyndur, næm- ur, leitandi og djúpt þenkjandi, en líka með góðan og hlýjan húmor. Hann var tryggur vinur, góður stóri bróðir Ölmu og elskaður son- ur Ingibjargar og Óla. Við eigum bjartar minningar um yndislegar stundir í ferðalögum og útilegum, við munum hann brosmildan og kátan í afmælum og alls konar há- tíðum, munum veislur og matar- boð og hljóðlátar samverustundir. Við munum tónlist og sögur, leik, hlátur og samtöl. Við munum hann Tómas og munum aldrei gleyma honum. Blessuð sé minn- ing Tómasar Biplabs. Megi allar góðar vættir styrkja ykkur og styðja, elsku vinir, Ingibjörg, Óli og Alma. Hrafnhildur og Árni, Guðrún og Gísli, Lína og Guðjón, Ingibjörg og Guðmundur Andri, Sigrún og Loftur Atli og fjölskyldur. Elsku besti Tómas B. Það er virkilega erfitt og skrýt- ið fyrir okkur vinina að hittast núna til þess að skrifa minning- argrein um þig, okkar hinstu kveðju til þín. Aldrei hefði okkur grunað að leiðir okkar myndu skilja svona snemma og það að þurfa að horf- ast í augu við þá staðreynd að þú sért farinn frá okkur og komir ekki aftur er eitthvað sem enginn okkar getur eða vill trúa. Í raun finnst okkur enn eins og þú eigir að vera hér sitjandi hjá okkur enda ómissandi partur af hópnum. Eftir óteljandi stundir, enda- lausar samræður og svo mörg ævintýri saman er erfitt að kveðja. Hvernig á maður að geta komið fyrir 17 árum af vináttu í einni stuttri minningargrein? Frá því að við kynntumst allir á leikskólanum Sæborg hefur hópurinn verið óaðskiljanlegur og leið varla sá dagur sem við hittumst ekki eða töluðum sam- an. Það skipti í raun ekki máli hvernig veðrið var úti eða hvaða dagur vikunnar var því þegar við vorum allir saman fundum við alltaf einhverja leið til að gera daginn að sérstöku ævintýri. Sumarmánuðirnir voru þó ein- staklega skemmtilegir en þá hitt- umst við snemma á morgnana á Lynghagaróló og héldum inn í daginn án nokkurrar vitundar um hvað væri fram undan. Það endaði yfirleitt á trampólíninu hans Ara, í klifurgrindinni þinni eða í HM á Maló til myrkurs en að sjálfsögðu með tilheyrandi ristaðs-brauðs pásum heima hjá einhverjum okkar þess á milli. Með aldrinum gerir maður sér betur grein fyrir því hversu full- komið lífið var þá, þessa löngu sumardaga sem fóru einfaldlega í að sitja saman og spjalla langt fram á nótt. Lífið var í raun eins fullkomið og það gat verið en minningin um þessa daga mun ávallt hlýja okkur og hughreysta á vetrardögum lífsins. Þú varst aðal skemmtikraftur- inn í hópnum og þér tókst að gera ótrúlegustu hluti fyndna, sem engum öðrum hefði tekist. Minn- ingin um þig; trausta, góðhjart- aða, fyndna og brosmilda vin okk- ar mun lifa með okkur til æviloka. Þú átt sérstakan stað í hjörtum okkar allra, elsku Tómas, takk fyrir allar góðu stundirnar! Þínir vinir að eilífu, Ari, Ásgeir, Ingimar (Ingi), Jóhannes (Jói) og Tómas V. Stundum erum við minnt á hve hverfult lífið getur verið og ósanngjarnt. Stundum er líka erfitt að skilja almættið, eins og til dæmis núna, þegar ljúfur drengur, Tómas Biplab, er tekinn frá okkur aðeins nítján ára gam- all. Tómas var nemandi minn í 5.-7. bekk í Melaskóla árin 2010 til 2013. Hann var duglegur nem- andi enda dyggilega studdur af ástríkum foreldrum sem fylgd- ust vel með námi hans. Ekki tranaði hann sér fram í kennslu- stundum né var með læti. Hugs- aði áður en hann talaði. Í bekknum hans Tómasar voru sérlega vandaðir og dugleg- ir krakkar sem náðu vel saman frá fyrstu stundu. Svo vel að enn þann dag í dag hittumst við í gömlu stofunni þeirra einu sinni á ári, nú síðast í nóvember sl. Það hefur verið gaman fyrir mig að fá að fylgjast með hópnum vaxa og þroskast og verða að myndar- legu ungu fólki. Þar var Tómas auðvitað engin undantekning. Alltaf ljúfur, kurteis og bros- mildur. Oft líka dálítið glettinn. Tómasi var ýmislegt til lista lagt, t.d. var hann mikið í tónlist. Árið 2016 varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að vera boðið í Hörpu að hlusta á verk eftir hann flutt á tónleikum Upptaktsins, sem eru Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna. Ég þakka Tómasi samfylgdina og votta foreldrum hans og syst- ur, ættingjum og vinum, mína innilegustu samúð. Minningin um góðan dreng lifir. Hvíl í friði, elsku hjartans vin- urinn. Erla Ívarsdóttir. Einn fallegan júnídag fyrir ör- fáum árum útskrifaðist Tómas, umsjónarnemandi minn, ásamt öðrum úr Hagaskóla. Kynni mín af Tómasi og fólkinu hans voru afar ánægjuleg. Tómas átti um- hyggjusama foreldra. Hann var einstakur ljúflingur, vel liðinn af samnemendum sínum, hafði fal- lega framkomu og lét sér annt um aðra. Hann var hæfileikarík- ur og skapandi og virtist eiga framtíðina fyrir sér. Því komu fregnir af ótímabæru andláti hans til mín eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég minnist þessa góða drengs með hlýhug og söknuði og votta foreldrum hans og systur mína dýpstu samúð. Ljúf minning lifir. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Elva Traustadóttir. Fallinn er frá góður drengur, Tómas Biplap Mathiesen, nem- andi Menntaskólans við Hamra- hlíð. Tómas stundaði nám við skólann frá haustönn 2017 á fé- lagsfræðabraut. Fyrir okkur starfsfólki var Tómas dagfars- prúður nemandi sem kom vel fram við jafnt samnemendur sem starfsfólk skólans. Ég var svo lánsamur að geta fylgst með Tómasi á frjálsíþróttavellinum, en hann æfði frjálsar íþróttir um árabil með frjálsíþróttadeild ÍR. Hann lagði metnað í það sem hann tók sér fyrir hendur og lagði mikið á sig fyrir liðsheild- ina. Tómasi leið greinilega vel á hlaupabrautinni, en þar var hann svo sannarlega á heimavelli. Tómas hafði yndi af því að koma í námsver skólans þar sem hann ræddi lífið og tilveruna við þær Valgerði og Þóreyju. Í sam- tölum kom fram að hann setti sig vel inn í hlutina áður en hann tók afstöðu til mála. Tómas er horf- inn á braut og við getum því mið- ur ekki fylgt honum eftir með stuðningi og nærveru eins og við hefðum óskað. Við starfsfólk Menntaskólans við Hamrahlíð minnumst Tómasar með hlýju og eftirsjá. Við sendum fjölskyldu Tóm- asar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. F.h. Menntaskólans við Hamrahlíð, Steinn Jóhannsson rektor. Tómas Biplab Mathiesen HINSTA KVEÐJA Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl í friði, elsku Tómas. Þín, amma Erna. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA GUNNLAUGSDÓTTIR, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, lést á líknardeild Landspítalans 18. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 27. janúar klukkan 13. Soffía Bryndís Guðlaugsd. Haukur Már Stefánsson Hildur Guðlaugsdóttir Njörður Snæland ömmubörn og langömmubörn Elskulegur faðir okkar, EINAR ÞORSTEINSSON, lést laugardaginn 4. janúar á Hrafnistu, Skógarbæ. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Elín, Júlíus og Halla Einarsbörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR STEFÁNSSON, fyrrverandi slökkvistjóri, lést 22. janúar á deild 12E á Landspítalanum. Útför fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 31. janúar klukkan 13. Erla Ingimarsdóttir Ragnar Haraldsson Jóna Hjálmarsdóttir Sólveig Haraldsdóttir Frosti B. Eiðsson Haraldur Haraldsson Bergdís Eysteinsdóttir Ingibjörg María Haraldsd. Christopher Wright barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, JÓN ÞORKELL GUNNARSSON, lést á krabbameinsdeild Landspítalans hinn 21. janúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 31. janúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bent er á styrktarreikning barna hans: 0123-15-003183, kt. 150277-5319. Unnur Björk Hjartardóttir Brynja Rán Jóhann Michael Hjörtur Breki Anna Kristín Kolbrún Klara Gunnar Þorsteinn Jónsson Selma Sigurðardóttir Kristín Brynja Ingólfsdóttir Hjörtur Elíasson Hilmar Gísli Gunnarsson Árný Björk Árnadóttir Sigurður Gunnar Gunnarsson Hilda Bára Víglundsdóttir Kristinn Baldvin Gunnarsson Hrafnhildur Hreinsdóttir Yngvi Rafn Gunnarsson Íva Sigrún Björnsdóttir Selma Gunnarsdóttir Birgir Steinarsson Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, SVERRIR KOLBEINSSON Furugerði 13, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans 23. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. janúar klukkan 15. Guðjón Steinar Sverrisson Patricia Elizabeth Velasco Kristín Ósk Guðjónsdóttir Adda Björg Guðjónsdóttir Viktor Ingi Guðjónsson Magnús Bjarni Guðjónsson Ævar Halldór Kolbeinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.