Morgunblaðið - 27.01.2020, Side 24

Morgunblaðið - 27.01.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020 50 ára Victor er Hafn- firðingur, ólst upp í Norðurbænum og býr þar. Hann er með MSc- gráðu í íþróttafræðum frá Íþróttaháskólanum í Köln og er fram- kvæmdastjóri Samfés – Samtaka félagsmiðstöðva og ungmenna- húsa á Íslandi. Maki: Hildigunnur Erna Gísladóttir, f. 1969, hársnyrtimeistari og eigandi Hár- móts. Dætur: Sóley Berg, f. 1998, og Svanhvít Berg, f. 2002. Foreldrar: Helga Herbertsdóttir, f. 1946, fv. bókari hjá Reykjavíkurborg, og Guð- mundur Halldórsson, f. 1944, prentari og fv. leigubílstjóri. Þau eru búsett í Reykjavík. Victor Berg Guðmundsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Sígandi lukka er best. Sumir skilja ekki fyrr en skellur í tönnum. Ekki hugsa þig um tvisvar ef þér verður boðið í ferða- lag. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur gaman af skáldsögum og lætur þig dreyma um að skrifa eina. Þú ert með öll tromp á hendi, eftir hverju ertu að bíða? 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ekki láta áhugamálið sitja á hak- anum, alltaf. Hikaðu ekki við að kanna möguleika sem þér bjóðast hvað varðar vinnu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þeir eru margir sem leita til þín til að fá svör við spurningum sínum. Einhver gefur þér hýrt auga. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekki gefast upp þótt þér finnist útlit- ið svart. Lokaðu augunum fyrir sumu, en ekki öðru. Gerðu hreint fyrir þínum dyrum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú gerir hosur þínar grænar fyrir persónu sem þú hefur nýlega kynnst. Ein- hver deila er komin í hnút, leystu hnútinn eins og þér einni/einum er lagið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Tilfinningasemi setur mark sitt á nán- asta samband þitt í dag. Dagurinn hentar ekki vel til stefnumóta. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ánægjulegir atburðir hafa gerst í lífi þínu og þú vilt deila þeim með öðrum. Einver gengur á eftir þér með grasið í skónum. Reyndu að finna út hvað þér finnst um það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú getur haft þau áhrif sem þú vilt og ættir að notfæra þér það. Mennt er máttur, þú hefur lengi velt því fyrir þér að fara í nám. Láttu slag standa. 22. des. - 19. janúar Steingeit Segðu hug þinn svo samstarfs- menn þínir fari ekki í grafgötur með af- stöðu þína. Gleymdu ekki að leika þér, þú átt það til að vera of alvörugefin/n. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Reyndu að koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Bíddu til morguns með að taka ákvörðun sem tengist ferðalagi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú fellur hugsanlega fyrir ein- hverjum gylliboðum í dag. Gefðu þér tíma til að slaka á og safna kröftum. Þú hefur unnið allt of mikið síðustu vikur. R agnheiður Guðfinna Guðnadóttir fæddist 27. janúar 1980 í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp. „Ég er hreinrækt- aður Vestmannaeyingur, ég er skírð eftir ömmum sínum tveimur og það er óhætt að segja að persónuleikar þeirra beggja eigi hlut í persónuleika mínum.“ Ragnheiður fór stundum í sveitina í Berjanesi í Landeyjum. „Þar var mamma í sveit og við fjölskyldan fór- um þangað til að taka þátt í vorverk- unum. Ég er sveitakerling í mér og hef alltaf unað mér vel með dýrum og í náttúrunni.“ Ragnheiður gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja, þar var hún færð upp um bekk. „Félagssaga mín er því með þeim sem eru fæddir 1979. Þau tóku mér eins og ég væri ein af þeim og við vinkonurnar héldum saman upp á fer- tugsafmælið á síðasta ári.“ Ragnheiður fór ung í fyrirsætustörf erlendis, hún vann Elite-keppnina á Íslandi 1996 og í kjölfarið hófst mikil ferðasaga Ragnheiðar í módel- störfum. Hún starfaði meðal annars í Mílanó, París, London og Edinborg. Ragnheiður missti föður sinn 19 ára gömul, hætti þá fyrirsætustörfum, fór aftur á æskuslóðirnar og tók stúdents- próf árið 1999 við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Hún varð fegurð- ardrottning Íslands 2001. „Það var óvænt stefna að fara aftur í þessa átt, fór í keppnina út af þrýstingi en sé alls ekki eftir því. Ég fór samt ekki að keppa úti, af því ég var ólétta fegurð- ardrottningin. Það var laumufarþegi með í keppninni.“ Ragnheiður flutti til Reykjavíkur og hóf lögfræðinám. „Það átti ekki við mig svo ég hætti í því námi. Ég tók að mér stjórn sjónvarpsþáttar hjá 365 sem fjallaði um lífsstíl og heilbrigði. Setti upp námskeið fyrir unglinga til að virkja hreyfingu og lífsáhuga og starfrækti það þrjú sumur. Vann í ým- iskonar verkefnum sem sjálfstæður verktaki og bauðst starf sem stjórn- andi morgunþáttar á Stöð 2 og sinnti honum í eitt og hálft ár. Vann sem einkaþjálfari í ár og bauðst svo verk- efnastjórastaða hjá útgáfufyrirtækinu Senu þar sem ég vann í tæp tvö ár. Ég áttaði mig svo á hvar áhugasvið mitt liggur sem er sálfræði.“ Ragnheiður lauk BS-gráðu 2011 við Háskóla Íslands og meistaragráðu í félags- og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands vorið 2013. Með náminu og eftir það sinnti hún verkefninu Þú get- ur, sem snýst um forvarnir og að styðja fólk til náms sem hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Hún vann á geðsviði Landspítalans með meist- aranámi og var þar eitt ár. Árin 2013- 2017 var hún ráðgjafi hjá Forvörnum ehf. og Streituskóla Forvarna. Ragnheiður er nýbúin að stofna fyrirtækið Hugarheim. „Við erum þrjár sem erum grunnteymi í fyrir- tækinu og erum með ólíka nálgun á það sem snýr að streitu og andlegri og líkamlegri líðan í dag. Sérhæfing mín er að fylgjast með og greina hugsun og hegðun fólks í félagslegum að- stæðum, handleiða og hjálpa við ýmis vandamál sem koma upp í mannlegri hegðun og líðan. Ég sinni líka fræðslu innan fyrirtækja og stofnana um streitu, samskipti, tilfinningagreind og fleira. Fyrirlestrar um þessi mál- efni verða æ stærri hluti af mínu starfi.“ Ragnheiður hefur mikinn áhuga á hreyfingu, ferðalögum, dýrum og að vera í faðmi sinna nánustu, sem eru synir hennar og maki. Ragnheiður er Ragnheiður Guðnadóttir, framkvæmdastj. og sérfr. í félags- og vinnusálfræði – 40 ára Synirnir Tristan Gylfi, Hektor Þór og Hannes Guðni. Sálfræðin var aðalmálið Parið Ragnheiður og Reynir. Fjölskyldan Ragnheiður ásamt foreldrum sínum og bræðrum. 30 ára Jóhann er Garðbæingur, ólst upp í Bæjargilinu en býr í Urriðaholti. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og er að ljúka námi í pípulögn- um frá Tækniskólanum. Hann er leik- maður Stjörnunnar í fótbolta og spilar í stöðu bakvarðar. Maki: Mekkín Bjarkadóttir, f. 1992, vinnur í söludeild hjá Já.is. Foreldrar: Anna Laxdal, f. 1960, stuðn- ingsfulltrúi í Hofsstaðaskóla, og Bern- harð Laxdal, f. 1960, fiskeldissjúkdóma- fræðingur og er með eigið fyrirtæki, Lífsgleði ehf. Þau eru búsett í Garða- bæ. Jóhann Laxdal Til hamingju með daginn Frederiksberg/ Kópavogur Birkir Jóel Bjarnason fæddist 11. júlí 2019 kl. 17.10 á Herlev Hospital í Danmörku. Hann vó 3.856 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Aldís Guðmundsdóttir og Bjarni Páll Hauksson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.