Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 32
Ljóðasveigurinn Kafka Fragments
eftir ungverska tónskáldið Györgys
Kurtág verður flutt af Herdísi Önnu
Jónasdóttur sópransöngkonu og
Elfu Rún Kristinsdóttur fiðluleikara
í Mengi í kvöld kl. 20 og eru tónleik-
arnir á dagskrá hátíðarinnar Myrkra
músíkdaga. Verkið byggist á texta-
brotum eftir Kafka, úr dagbókum
hans, minnisbókum og bréfum, og
er í 40 stuttum köflum.
Herdís og Elfa flytja
Kafka Fragments
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 27. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Fram vann níunda leik sinn í röð í
úrvalsdeild kvenna í handknattleik,
Olísdeildinni, þegar HK kom í
heimsókn í Safamýrina á laugar-
daginn. Leiknum lauk með 32:22-
sigri Fram, sem er með þriggja
stiga forskot á Val á toppi deild-
arinnar. Valskonur unnu á sama
tíma þrettán marka sigur gegn
Stjörnunni í Origo-höllinni á Hlíð-
arenda, 35:22. »26
Toppliðin juku forskot
sitt á sannfærandi hátt
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kobe Bryant, fyrrverandi leikmaður
Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í
körfuknattleik, lést í þyrluslysi í
Calabasas í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum í gær. Fjórir voru í þyrlunni,
þar á meðal þrettán ára dóttir
Bryants, Gianna Maria Onore.
Körfuknattleikskappinn fyrrver-
andi lætur eftir sig eigin-
konu og þrjár dætur en
hann var 41 árs gamall.
Hann er af mörgum talinn
besti leikmaður í sögu
NBA-deildarinnar en
hann varð fimm
sinnum meistari
með Los Angeles
Lakers, liðinu
sem hann lék
með allan sinn
feril. »27
Einn sá besti lést af
slysförum í Kaliforníu
hann hafi alltaf haft gaman af því
að vinna. „Ég hlakkaði til hvers
vinnudags og gera það sem þurfti
að gera hverju sinni.“ Hann hafi
líka haft visst sjálfstæði og það hafi
ekki skemmt fyrir. „Þá hefur sam-
vinna og samkomulag eigenda og
starfsmanna fyrirtækisins ávallt
verið til fyrirmyndar. Ég tók þá af-
stöðu strax að setja mig ekki á há-
an hest heldur vann við allt sem
þurfti; sópaði gólfið, lagaði kaffi, fór
í skipaskoðanir af ýmsu tagi og al-
mennar tjónaskoðanir á vegum
skipafélaganna og eiginlega flest
sem þurfti að gera. Þetta á reyndar
við um alla starfsmenn Navis.“
Ekki er öllum gefið að klifra upp
í skipsmastur eða skríða í botntönk-
um skipa. „Ég lét mig hafa það,
skorðaði mig af og beit á jaxlinn, en
klifur er ekki fyrir lofthrædda og
sem betur fer er ég ekki með inni-
lokunarkennd. Menn með hana eiga
erfitt með að skríða í botntönkum
og ættu ekki að gera það.“
Agnar er með vinnuaðstöðu
heima og ætlar að fara að vinna úr
ýmsu, sem hefur mætt afgangi. „Ég
á eftir að skipuleggja ljósmynda-
safn mitt, skrá söguna, og svo hef
ég nóg að lesa, ekki síst til þess að
halda mér við í fræðunum. Svo
heimsæki ég barnabörnin og þar
sem fimm þeirra búa erlendis tekur
það sinn tíma og orku.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Samstarfsmenn Agnars Erlings-
sonar, skipaverkfræðings hjá
skipa-, verkfræði- og ráðgjafar-
fyrirtækinu Navis, héldu kveðjuhóf
fyrir hann á dögunum. „Ég skar á
vinnuna um áramótin, enda mamma
hætt að skamma mig – hún dó 104
ára fyrir tveimur árum – og nú er
ég kominn með sjö barnabörn,“
segir verkfræðingurinn, sem átti 82
ára afmæli 12. janúar.
Þegar Agnar var 65 ára 2003 var
honum vegna aldurs gert að hætta
störfum fyrir Det Norske Veritas á
Íslandi, DNV, sem hann hafði veitt
forstöðu frá stofnun útibúsins á Ís-
landi 1979. Áður vann hann við
rannsóknir fyrir fyrirtækið í Ósló
1965-1969 og starfaði því fyrir DNV
samtals í tæplega 30 ár. Þegar
hann hætti var verið að stofna Nav-
is og hann tók tilboði um að ganga
til liðs við nýja félagið. „Einhverjir
höfðu á orði að ég væri kannski
orðinn gamall en mér varð þá að
orði; gamall, ég, ekki enn orðinn afi
og mamma er enn að skamma mig!
Þetta tilsvar hefur lifað með fyrir-
tækinu.“
Eitt besta tímabilið
Agnar bjóst ekki við að vera
lengi hjá Navis. „Satt best að segja
átti ég ekki von á að fyrirtækið yrði
langlíft en þessi 17 ár hafa verið
eitt besta tímabil lífs míns.“ Hann
leggur áherslu á að hlutirnir hafi
ekki gerst af sjálfu sér því fyrstu
tvö árin hafi menn nánast unnið
kauplaust til að koma fyrirtækinu á
laggirnar. „Það tókst og Navis fór á
flug.“
Agnar segir að tilfinningarnar
séu blendnar á þessum tímamótum.
„Ég hef reyndar hugsað um þetta í
nokkur ár og í viðtali, að mig minn-
ir í sjómannablaði 2007, sagðist ég
vera að huga að því að fara að
hætta. Það gekk auðvitað ekki eftir
þá, síðan eru liðin 13 ár, en ein-
hvern tíma þarf að setja punkt. Ég
komst að því að nú væri þetta orðið
gott og ég held að strákarnir séu
sammála mér núna, þó að þeir hafi
reynt að halda í mig undanfarin
ár.“
Heilsan er góð og Agnar segir
hana forsendu þess að geta unnið
svona lengi. Hitt sé ekki síðra að
Vinnan alltaf í öndvegi
Agnar segist samt ekki geta beitt sömu rökum og fyrr
Ljósmynd/Bjarni Hjartarson
Tímamót Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri, Elín Erlingsson og Agnar
Erlingsson í kveðjuhófinu sem starfsmenn fyrirtækisins héldu.