Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGARMIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava St. Pétursborg, Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. Á Íslandi er einn fjölmiðill næralveg óháður öllum efnahags- lögmálum. Aðrir fjölmiðlar þurfa að bjóða þjónustu sem einhver vill kaupa, áskriftir eða auglýsingar, nema hvort tveggja sé, eins og til dæmis í tilviki Morgunblaðsins.    Ekki kemur á óvart að það erríkið sem rekur þennan fjöl- miðil sem ekki þarf að taka tillit til efnahags- legra þátta nema að óverulegu leyti. Ríkið skyldar al- menning til að greiða skatt til þessa miðils og í krafti þeirra tekna fer hann út á auglýsingamarkaðinn og sópar þar til sín öllu sem hann nær í og beitir til þess afar óvönduðum meðulum.    Þessi miðill ríkisins þarf ekki aðgæta aðhalds í rekstri, hann er áskrifandi að sístækkandi skatt- stofni og fær viðbætur frá ríkissjóði eftir þörfum.    Þetta ástand er með ólíkindum.Áhugavert er að á sama tíma og Ríkisútvarpið, stofnun í þágu starfsmanna, heldur fullum dampi í starfsemi sinni tilkynnir BBC um uppsagnir 450 starfsmanna.    Í Bretlandi er gerð krafa til ríkis-fjölmiðilsins um sparnað upp á 13 milljarða íslenskra króna í stað þess að æ meiri byrðar séu lagðar á skattgreiðendur eins og gert hefur verið hér á landi.    Hvernig stendur á því að stjórn-málamenn láta það líðast að Ríkisútvarpið eitt standi utan við hagræðingarkröfur sem aðrir verða að sæta? Vonandi skýrist það ekki eingöngu af ótta við fréttastof- una. Er það óttinn einn? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Árleg Bridshátíð hefst í Hörpu í Reykjavík í dag og mun Lilja Al- freðsdóttir menntamálaráðherra setja mótið klukkan 19 í kvöld. Keppt er bæði í tvímenningi, sem lýkur annað kvöld, og sveita- keppni, sem stendur yfir á laugar- dag og sunnudag en verðlaunaaf- hending verður þann dag klukkan 17. Samkvæmt upplýsingum frá Bridgesambandi Íslands taka um 430 spilarar þátt í mótinu, þar af um 150 erlendir keppendur, flest- ir frá Norðurlöndunum og Bret- landi. Meðal þeirra er Daninn Dennis Bilde, sem nýlega var val- inn bridsspilari ársins af stofnun sem kennd er við Sidney H. Laz- ard. Foreldrar Dennis, þau Morten og Dorte, eru einnig með- al keppenda en þau hafa spilað í dönskum landsliðum. Þess má geta að Dennis varð í 3. sæti í tví- menningskeppni Bridshátíðar í fyrra. Í tilkynningu Bridgesambands Íslands kemur fram að áhorfendur séu velkomnir á staðinn til að fylgjast með spilamennskunni. Einnig verður sýnt beint frá mótinu á vefnum bridgebase.com og hægt er að fylgjast með úrslit- um á vefnum bridge.is. Bridshátíð hefst í Hörpu í dag  Menntamálaráðherra setur mótið  Um 430 spilarar taka þátt í mótinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Við spilaborðið Á fimmta hundrað spilarar taka þátt í Bridshátíð í ár. Matarháíðin Food&fun verður hald- in í 19. sinn á veitingastöðum Reykjavíkur dagana 4.-8. mars næstkomandi. Fjöldi erlendra mat- reiðslumanna mun starfa við hlið ís- lenskra kollega sinna þessa helgi auk þess að keppa um titilinn besti kokkur hátíðarinnar. Í fyrra voru gestakokkarnir rúmlega 20 talsins. Á síðasta fundi borgarráðs var samþykkt samkomulag borgarinnar við Main Course ehf. þess efnis að borgin styrki hátíðina um 2,5 millj- ónir á þessu og næsta ári, eða alls um fimm milljónir. Þessa peninga á m.a. að nota til að standa straum af kostnaði við að kynna hátíðina. Fulltrúar meirihlutaflokkanna í borgarráði bókuðu að matarhátíðin hefði farið fram í Reykjavík um ára- bil. Gestir á hverju ári væru um 12.000-15.000 af öllu þjóðerni. „Borgin hefur nær alltaf styrkt há- tíðina enda er hún ein þeirra hátíða sem laða að gesti og íbúa inn á veit- ingastaði borgarinnar. Matarmenn- ing í Reykjavík hefur tekið stór- stígum breytingum á undanförnum árum og hefur þessi meirihluti reynt að lyfta því sem vel er gert í matar- menningu og stuðla að því að Reykjavík geti státað af því að vera matarborg. Hvort sem það er Mat- arhátíð alþýðunnar sem fram fer á Skólavörðustíg, Street Food-götu- bitahátíðin á Miðbakkanum eða Food&Fun-hátíðin, þá stuðla þær allar að bættri matarmenningu í Reykjavík og gera þannig borgina að eftirsóttum stað til að búa á og heimsækja.“ Þeir Sigurður Hall matreiðslu- meistari og Baldvin Jónsson at- hafnamaður voru hvatamenn að stofnun Food&fun-matarhátíð- arinnar á sínum tíma. sisi@mbl.is Food&fun-matar- hátíðin haldin í 19. sinn  Borgin styrkir hátíðina um fimm milljónir króna næstu tvö árin Morgunblaðið/Golli Matreiðslumenn Siggi Hall og Marcus Jernmark í eldhúsinu á Vox.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.