Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 ✝ Guðjón Þor-láksson fædd- ist 12. júlí 1945 í Grindavík. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Víðihlið í Grindavík 21. janúar 2020. Foreldrar hans voru hjónin Val- gerður Jónsdóttir frá Broddadalsá í Strandasýslu f. 12.6. 1917, d. 7.9. 1981, og Þorlákur Gíslason frá Vík, Grindavík, f. 11.5. 1913, d. 3.1. 2001. Systkini Guðjóns eru Mar- grét, Sæþór, Magnús og Sig- urður sem eru látin. Þá Hall- dór, Kristólína, Gísli og Gunn- ar. Guðjón ólst upp í Vík og gekk í Grunnskóla Grindavík- ur. Eftir fullnaðarpróf á fimm- tánda ári tók vinnan við, fyrst við beitningu og síðan á sjó á ýmsum bátum í Grindavík. Haustið 1969 fór Guðjón í Stýrimannaskólann og lauk skipstjórnarprófi vorið 1971. Hann prófaði millilandasigl- ingar, var fyrst á M/S Dís- arfelli og seinna stýrimaður á M/S Eldvík. Endir á sjó- mennsku hans var svo á Þor- steini Gíslasyni GK 2 sem þeir stofnuðu útgerð um bræðurnir þrír, Halldór, Magnús heitinn og Guðjón. Þeirri útgerð lauk árið 2008. Guðjón kvænt- ist Viktoríu Ketilsdóttur 1. des. 1976. Alltaf var búskapur í Vík. Síðustu árin bjuggu Guðjón og Viktoría þar og voru með hesta og kindur. Guðjón var fjallkóngur á afrétti Grind- víkinga í mörg ár, sumir köll- uðu hann útvegsbónda. Guðjón var sjálfstæðis- maður alla tíð og formaður í Sjálfstæðisfélagi Grindavíkur um skeið. Í nóvember 2016 veiktist Guðjón alvarlega af blóðtöpp- um í heila og lamaðist við það. Var hann á ýmsum sjúkrastofnunum en lengst af í Víðihlið í Grindavík. Útför Guðjóns fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 30. janúar 2020, klukkan 14. Í dag kveðjum við elsku Gauja frænda sem hefur verið tengdur lífi okkar systra alla ævi. Ótal minningar þjóta gegnum hugann sem eru okkur afar kær- ar. Þau hjón Gaui og Viddý voru okkur sem aðrir foreldrar alla tíð, enda tengslin mikil innan fjölskyldunnar. Þeirra dyr hafa alltaf staðið opnar og ósjaldan sem okkur matvöndu ungling- unum var boðið í mat á meðan foreldrarnir voru í burtu. Gaui var enda mikill og góður kokkur og hafði gaman af því að bjóða í mat. Hann var til að mynda lengi vel kokkur á Þorsteini Gíslasyni GK 2 og hafði lúmskt gaman af því að elda hrossakjöt sem hann dulbjó sem eitthvað annað, þar sem bróðir hans (pabbi) borðar alls ekki hesta. Gaui smitaðist af hestadell- unni um svipað leyti og við og hann hafði mikinn metnað á því sviði. Í mörg sumur ferðuðumst við með frábærum hópi fólks og fjölda hrossa um hálendi landsins. Þær ferðir voru ein- stakar að öllu leyti þar sem bæði börn, unglingar og fullorðnir nutu samvista saman í einstakri náttúru sem maður upplifir allra best á hestbaki, með öllum þeim uppákomum sem svona ferðum fylgir. Við munum halda heiðri hans á lofti um ókomin ár þar sem af- rakstur ræktunar þeirra hjóna er ennþá í blóma og lofa mer- arnar góðu. Gaui gladdist mjög mikið að heyra að Halldóra og Hekla hefðu myndað einstakt samband. Hann hafði gefið henni merina fyrir nokkru og þær eiga vonandi eftir að vaxa og þroskast saman. Svo er það Lukku-Láka dóttirin sem Gaui hefði haft svo gaman af að fylgj- ast með. Hún er mjög áhuga- verður karakter, vægast sagt. Ekki má gleyma honum Davíð sem er kominn á efri ár, þeir fé- lagar hafa átt margar góðar stundir í gegnum tíðina. Gaui var alla tíð mikill sjálf- stæðismaður og okkur er minn- isstætt að vera að sendast með blöð í hús í kosningabaráttu fé- lagsins frá unga aldri. Hann hafði a.m.k. áhrif á þátttöku annarrar okkar á þessu sviði. Hann var virkur í Sjálfstæðis- félagi Grindavíkur og gegndi m.a. formennsku um hríð ásamt því að sinna öðrum störfum fyrir félagið á meðan heilsan leyfði. Fór á fjölmarga landsfundi sem og kjördæmisfundi. Gaui var ansi stríðinn þegar sá gállinn var á honum og hann átti það til að nefna krakkana í kringum sig gælunöfnum. Jó- hannes kallaði hann Jóa Spóa, Ásdísi Áshildi, Halldóru Hnakk- dóru og Þurí Leirkörfu. Þegar hann veiktist í lok nóv- ember þá var það reiðarslag fyr- ir fjölskylduna því hann var þungt haldinn fyrstu dagana og vikurnar og um tíma ekki hugað líf. Í sömu viku veiktist elsku Jó- hannes okkar einnig og lágu þeir frændur sinn á hvorum spítalanum að berjast fyrir lífi sínu. Báðir höfðu þeir þó betur um tíma þrátt fyrir að lifa mjög skertu lífi það sem eftir var. Við viljum trúa því að þeir félagar gæti hvor annars sem og ann- arra ættingja. Þar á meðal elsku Sigga, bróður Gauja, sem féll frá sl. mánudag. Með trega og söknuði en einnig þakklæti fyrir allar minn- ingarnar kveðjum við höfðingj- ann í Vík með orðunum hans Jó- hannesar: Góða nótt, takk fyrir daginn, ég elska þig svo mikið. Klara og Þuríður. Í dag kveðjum við elsku Gauja frænda. Við munum minnast allra stunda okkar með honum – öll áramótin í Vík og öll jólin heima hjá ömmu að lesa á pakka saman. Hann var frek- ar stríðinn og var ávallt eitthvað að grínast í manni. Hann elskaði börn og öll dýr enda mikill hestamaður og glæsikokkur. Eitt sinn þegar Halldóra var nýfarin að labba og komin út á mitt hestatún umkringd hestum þá var Gaui fyrstur á stað að bjarga litlu frænku sinni. Hann var okkur alltaf eins og afi því við vorum alltaf velkomin til hans og þótti okkur afar vænt um hann. Eftir að hann veiktist þekkti hann okkur alltaf, kallaði okkur gælunöfnum og var ávallt til í að spjalla. Hann var hlýlegur mað- ur, góður við alla og gaf stór og hlý knús. En nú líður honum betur í sumarlandinu með öllum sínum hestum, ríðandi um skýin og passar upp á okkur hin hér niðri á jörðu. Ástarkveðja – litlu frænkur þínar, Ásdís og Halldóra. Kær vinur og lærimeistari hefur kvatt þetta líf. Við Guðjón kynntumst þegar ég flutti til Grindavíkur og fór að vinna með sjálfstæðisfélögunum í Grindavík. Fátt gladdi Guðjón meira en að fá nýja félaga til liðs við flokkinn sem voru reiðu- búnir að vera virkir í fé- lagsstarfinu. Ekki skemmdi fyr- ir að við mig gat hann líka rætt um fjárbúskap og hesta- mennsku. Guðjón mætti alltaf með fyrstu mönnum þegar eitthvað var um að vera, lét skoðun sína í ljós og miðlaði af örlæti þekk- ingu sinni og reynslu. Guðjón var hreinn og beinn í samskipt- um og ætíð sanngjarn. Samhliða því að vera óspar á leiðbein- ingar og ráðgjöf gætti hann þess alltaf að væntingar um ár- angur yrðu ekki óraunhæfar. Hann vildi að fólk hefði báða fætur á jörðinni. Guðjóni var kippt skjótt af vettvangi eftir að hann veiktist en veikindin hindruðu Gauja þó ekki í að fylgjast vel með þjóð- málunum og láta af sér vita. Nú er skarð fyrir skildi og mikilsvirtur félagi genginn af velli. Ég kveð góðan vin með þakk- læti og virðingu. Viktoríu, fjöl- skyldu Guðjóns og vinum votta ég mína innilegustu samúð. Vilhjálmur Árnason. Guðjón Þorláksson Skömmu eftir áramót var höggvið stórt skarð í hóp okkar starfsfélag- anna hér á heilsugæslunni í Ólafsvík þegar hún Munda okkar lést eftir skammvinn veikindi. Það er víst staðreynd að hún Munda okkar er farin. Allt gerð- ist svo hratt. Þetta er óraunveru- leg tilfinning. Aldrei aftur eigum við eftir að upplifa að hún komi okkur að óvörum og nuddi herðar okkar með heitu höndunum sín- um þegar henni þykir við vera eitthvað stirðleg eða óupplögð. Eða sjá Mundu hreinlega gráta úr hlátri þegar ærslin á kaffistof- unni ná hámarki. Ekki heldur komum við að nýju bakkelsi og alls konar góðmeti og með því sem Munda hefur komið með fyr- ir okkur, sem hún gerði oft. Það má eiginlega segja að hún Munda okkar hugsaði fyrst um aðra og svo um sjálfa sig. Munda var aldrei lasin, mætti alltaf snemma í vinnuna, hellti upp á fyrir okkur og tók á móti okkur hress og spræk meðan mörg okkar hinna nudduðum stírurnar úr augun- um. Munda varð sjötug á síðast- liðnu ári og hefði því átt að hætta um áramótin. Öllum þvert um geð. Hún var dýrmætur starfs- Guðmunda Þuríður Wíum Hansdóttir ✝ GuðmundaÞuríður Wíum Hansdóttir fæddist 28. júlí 1949. Hún lést 2. janúar 2020. Útför Guðmundu fór fram 10. janúar 2020. kraftur með mikla reynslu og sérstak- lega gott minni. Aldrei kom maður að tómum kofunum hjá henni og það nýttist henni og okkur vel í starfi og leik. Hún hafði mikla ábyrgðartil- finningu og sem dæmi um það má nefna að þegar hún veiktist hafði hún einna mestar áhyggjur af því að hún gæti ekki sett nýja manneskju inní starfið. Það má með sanni segja að söknuður okkar er mikill og ein- lægur. Sum okkar hafa unnið með Mundu í aldarfjórðung, sum skemur og sum jafnvel lengur. Að vinna með Mundu var skemmtilegt. Á kaffistofunni okk- ar var mikið hlegið og haft gam- an, og var hún þar fremst meðal jafningja. Hún hafði sterkar skoðanir á flestum ef ekki öllum hlutum og gaman var að rökræða við hana og oft hitnaði í kolunum og þá var mest gaman. Öllum rökræðum lauk þó í mestu vin- semd og styrktu þær vináttu- böndin sem voru orðin vel hert eftir langa samvinnu. Elsku Siggi og fjölskylda, inni- legar samúðarkveðjur til ykkar allra. Elsku Munda, við kveðjum þig kæra vinkona og vinnufélagi með sorg í hjarta, þakklæti og yljum okkur við góðar minningar um þig. Minning þín mun lifa. Vinnufélagar á Heilsugæslu- stöðinni í Ólafsvík, Fanný B. Sveinbjörnsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VALMUNDSSON húsasmíðameistari og brúarsmiður, Austurvegi 4, Vík í Mýrdal, lést sunnudaginn 19. janúar á hjúkrunarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal. Útför Jóns fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 1. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Hjallatún. Steinunn Pálsdóttir Steinunn Jónsdóttir Ingólfur Hjörleifsson Guðrún B. Jónsdóttir Sigurbjörn Hjaltason barnabörn og barnabarnabörn Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÁSMUNDAR JÓNSSONAR, Kópavogstúni 3. Birgit Andersdóttir Jón Anders Ásmundsson Mette Korsmo Guðmundur Ó. Ásmundsson Ingveldur Jónsdóttir Sólveig M. Ásmundsdóttir Lovísa B. Ásmundsdóttir Bergur M. Ásmundsson Bettina Seifert og barnabörn Ástkær faðir okkar, bróðir, afi, tengdafaðir og vinur, KRISTJÁN JÓHANNESSON sjúkranuddari, Dalseli, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans sunnudaginn 26. janúar. Útför fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 3. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta gott af sér leiða. Inga Sif Kristjánsdóttir Kristján Freyr Kristjánsson Eva Guðrún Kristjánsdóttir barnabörn, systkini, tengdabörn, stjúpdætur og Nhan Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, HJÁLMAR KRISTINN AÐALSTEINSSON íþróttakennari, lést á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn 25. janúar. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 12. febrúar klukkan 13. Margrét Björnsdóttir Aðalsteinn Hjálmarsson Rósa Halldóra Hansdóttir Kristín Ásta Hjálmarsdóttir Erik Ensjö Margrét Sigríður Árnadóttir Ásta Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Guðmundsson Ólafur Aðalsteinsson Arna Guðlaug Einarsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma okkar, systir og mágkona, KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR, Dolla, frá Reykholti, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 22. janúar. Hún verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 4. febrúar klukkan 13. Haraldur Gunnarsson Steinþóra Jónsdóttir Valgeir Einarsson Mäntylä Vigdís og Kolbeinn Þórir Jónsson Hulda Olgeirsdóttir Þorvaldur Jónsson Ólöf Guðmundsdóttir Eiríkur Jónsson Björg Bjarnadóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR, Hafnartúni 22, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands laugardaginn 18. janúar. Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 1. febrúar klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á slysavarnadeildina Vörn, Siglufirði. Bjarni Þorgeirsson Pétur Stefán Bjarnason Lilja Ástvaldsdóttir Kristín Álfhildur Bjarnadóttir Björn Jóhannsson Mundína Valdís Bjarnadóttir Anton Mark Duffield Þorgeir Bjarnason Guðný Huld Árnadóttir Hanna María Bjarnadóttir Daði Hafþórsson ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA HREFNA ARNÓRSDÓTTIR, Guffý, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 28. janúar. Útför verður auglýst síðar. Karvel Hólm Jóhannesson Guðlaugur Ari Karvelsson Þórunn Inga Gísladóttir Hermann K. Karvelsson Kristín Þorbjörg Sverrisdóttir Kjartan J. Karvelsson Ólöf Inga Stefánsdóttir Ívar Sindri Karvelsson Jóhanna Kristín Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabarn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.