Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Faxaflóahafnir sf. hafa falið verk- fræðistofunni Verkís að vinna að talningu fugla í Skarfaskeri á Viðeyj- arsundi undan Laugarnesi. Þetta upplýsir Gísli Gíslason hafnarstjóri í svari við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, borgarfull- trúa Miðflokksins, sem lögð var fram í borgarráði. Spurningar Vigdísar lutu að áhrifum landfyllingar, sem nú er unnið að á svæðinu. Gísli segir enn fremur að í þeirri vinnu verði m.a. litið til vetrartaln- ingar fuglaáhugamanna auk þess sem gerð er tillaga um fuglatalningu frá febrúar til maí/júní á árinu 2020. Vetrartalningar fuglaáhugamanna ná aftur til ársins 1952. Þá er einnig til talning fugla í Viðey frá árunum 2002-2007. Milli Skarfaskers og fyll- ingarinnar eru tugir metra. Gísli segir enn fremur í svarinu að engin vinna hafi verið sett af stað varðandi hugsanleg mannvirki á landfyllingunni. Nokkrar hugmyndir hafi verið reifaðar varðandi mögu- lega notkun landsins, meðal annars eigin aðstaða Faxaflóahafna, þ.m.t. aðstaða lóðs- og dráttarbáta. Engin ákvörðun um nýtingu Einnig aðstaða vegna stækk- unar Veitna á skólphreinsistöð, yl- strönd ef staðurinn telst heppilegur og ef yfirfall hitaveitu verður leitt þar í sjó fram samkvæmt hugmynd- um í skýrslu starfshóps Reykja- víkurborgar og Veitna frá 16. mars 2018. Ákvörðun um nýtingu fyllingarinnar bíði því síðari tíma. Engin áætlun er um að hafnar- bakki verði við Klettagarða utan Skarfagarðs, segir Gísli. Lóðs- og dráttarbátar myndu nota flot- bryggju til viðlegu ef af verður. Áform í þeim efnum og útfærsla liggja ekki fyrir. Framkvæmdir Faxaflóahafna sf. við landgerð austan Laugarness hafa gengið það vel að útlit er fyrir að þeim ljúki talsvert á undan áætl- un, þ.e. í sumar í stað ársins 2021. Landfyllingin verður rúmir tveir hektarar að sjóvarnargörðum meðtöldum. Reiknað er með því að í hana þurfi alls 380 þúsund rúmmetra af fyllingarefni. Uppistaðan í land- gerðinni er efni sem sprengt hefur verið úr grunni nýja Landspítalans við Hringbraut. Fuglar verða taldir í Skarfaskeri í vor Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framkvæmdir Gerð landfyllingarinnar er á undan áætlun. Fjær má sjá Skarfasker en tugir metra eru þarna á milli.  Framkvæmdir við nýja landfyllingu eru á undan áætlun „Hugmyndir umhverfisráðherra um miðhálendisþjóðgarð eins og þær birtast í samráðsgátt ríkisstjórnar- innar eru ekki nægilega vel ígrund- aðar, unnar í of miklum flýti og án eðlilegs samráðs við íbúa og nær- samfélög umrædds svæðis,“ segir meðal annars í ályktun stjórnar kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Þar er núverandi hugmyndum umhverfisráðherra í raun hafnað. Í ályktuninni segir að rök skorti fyrir nauðsyn þess að taka um 40% landsins undan skipulagsyfirráðum sveitarfélaga og setja undir mið- stýrða ríkisstofnun. „Hugmyndirnar eru aðför að lýðræði og frelsi í land- inu. Þær eru aðför að sveitarfélögum á Íslandi og draga úr einstaklings- framtaki við náttúruvernd. Nái til- lögurnar fram að ganga verður frumkvæði landeigenda og ábúenda við uppgræðslu á afréttum sem þeir nýta kæft um leið og stjórnsýslu- stofnun þjóðgarðsins tæki þau verk- efni yfir. Það bitnar á endanum á náttúrunni og skattgreiðendum.“ Talið er nauðsynlegt að mögu- leikar til orkuvinnslu verði ekki skertir og minnt á að íslensk raforka sé ein sú hreinasta í heimi. Margir af hagkvæmustu virkjanakostum landsins séu á því svæði sem þjóð- garðinum er ætlað að ná til. „Ráðherra málaflokksins hefur haldið því fram á opnum fundum að náðst hafi rík þverpólitísk sátt í nefnd ráðherrans um málið. Ráð- herrann getur þess þó ekki að hann valdi sjálfur til hvaða skilyrða ein- stakra nefndarmanna hann tók tillit og eins hvaða tillögum hann fór eftir. Sú staðreynd brýtur því að nokkru í bága við orð ráðherrans um víðtækt samráð. Samtal er eitt og það er haf- ið – en samráð er annað og það er eftir,“ segir í ályktun sjálfstæðis- manna. Aðför að lýðræði og frelsi  Sjálfstæðismenn álykta gegn þjóðgarði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjallabak Foss í Sigöldugljúfri sem er gamall farvegur Tungnaár. Stjórn útivistarfyrirtækisins Cin- tamani hefur gefið félagið upp til gjaldþrotaskipta. Tilkynnt var um þetta í gær en rekstur félagsins hef- ur verið þungur síðustu ár. Í tilkynningu frá stjórn Cintam- ani segir að eigendur hafi um nokk- urn tíma leitast við að endurskipu- leggja fjárhag félagsins, en því miður hafi þær tilraunir ekki skilað tilskildum árangri og áframhald- andi rekstrarhæfi félagsins hafi verið háð frekari fjármögnun sem ekki hafi náðst. Í tilkynningu á vef Íslandsbanka má sjá að Cintamani er komið í sölu- ferli. Til sölu er allur vörulager Cin- tamani, skráð vörunúmer félagsins og lénið cintamani.is. Tekið verður við tilboðum til og með 3. febrúar. Mbl.is greindi frá því í gær að mikill áhugi væri á kaupum á vörumerki Cintamani og líklegt væri að versl- anirnar yrðu opnaðar aftur. Cintamani hefur ekki skilað árs- reikningi fyrir árið 2018, en tap af rekstri félagsins árið 2017 var 126 milljónir. Árið 2016 var hins vegar hagnaður upp á 12,8 milljónir. Eigið fé fyrirtækisins samkvæmt árs- reikningi í árslok 2017 var 223 millj- ónir og störfuðu það ár að meðaltali 37 starfsmenn hjá fyrirtækinu mið- að við heilsársstörf. Útivistarfyrirtækið Cintamani gjaldþrota 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Hrein orka, eflir einbeitingu, eykur súrefnismettun, gefur heilbrigða næringaríka orku sem virkar allan daginn. Eflir mótstöðu og er góð vörn gegn flensum. Frábært gegn þreytu, sleni og pirringi, auðugt af járni. Inntaka: Allur aldur. Nánari upplýsingar á www.celsus.is Fæst í apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu og víðar | netsala á celsus.is Fjölvítamín náttúrunnar, hreint og ómengað Engin tilbúin næringaefni 22 ára VELGENGNI Á ÍSLANDI Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Komdu í kaffi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.