Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 12
Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
SIGGI HALL
POP UP
Borðapantanir og nánari upplýsingar á apotek.is
ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF ÞESSU!
Austurstræti 16 Sími 551 0011APOTEK KITCHEN+BAR
MATSEÐILL
SMÁRÉTTIR
Bleikju tartar 2.490 kr.
pera, agúrka, minta, graslaukur, sítrónu-
hunangssósa
Pönnusteikt hörpuskel 2.790 kr.
kartöflumús, sýrður perlulaukur, hrogn, söl,
dill beurre blanc
Grillað dádýr 2.890 kr.
sveppir, blaðlaukur, yuzu sesam-dressing
AÐALRÉTTIR
Grilluð andabringa 4.890 kr.
grænn aspas, stökk vorrúlla með andar „confit“,
plómusósa
Grilluð nautalund & foie gras 6.990 kr.
hunangs-karamellaður skarlottulaukur,
beinmergur, bordelaise-sósa
EFTIRRÉTTUR
Grand Marnier Crème brûlée 1.990 kr.
ávaxta-sorbet, jarðaber, dulce de leche,
Grand Marnier
Velkomin í ljúffenga rétti
að hætti hins eina sanna Sigga Hall
TASTINGMENU
Smakkaðu alla sex réttina
8.990 kr.
SIGGI HALL
P P P
miðvikudag til sunnudags
Nú er nýtt ár hafið með lof-orðum um bætt líferni ogvon um betra líf sér og
sínum til handa. Þá styrkir það
kannski einhverja í vali sínu á lof-
orðum að Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin WHO hefur bent á
að ónóg hreyfing sé einn af helstu
áhættuþáttum fyrir dauða í heim-
inum. Það sem þó vekur hvað
mestan ugg er að 80% af ungling-
um hreyfa sig ónóg, svo að vanda-
málið vex með ungu kynslóðinni og
vaxandi tækni- og tölvuvæðingu.
Tækni- og tölvubylting síðustu
áratuga hefur gjörbreytt lífsstíl
okkar mjög hratt. Í dag þarf fólk
sáralítið að hreyfa sig til að hafa í
sig og á og flestir sitja framan við
skjá stóran hluta vinnudags síns.
Við þurfum ekki heldur lengur að
sækja dægrastyttingu eða skemmt-
anir utan heimilis. Einnig þarf fólk
ekki lengur að fara í verslanir,
heldur getur pantað vörur heim,
þar með talið matvörur, þannig að
það er ekki undarlegt að í dag sé
hreyfingarleysi ein helsta heilsuvá
hins vestræna heims.
Með sömu þróun endum við
kannski eins og afkomendur okkar
í teiknimyndinni Wall-E; vöðvarýr,
brothætt og bjargarlaus án hjálpar
vélmenna.
Bætir þol, þrek
og vitræna getu
Mikilvægt er að benda á að
WHO er ekki endilega að tala um
líkamsrækt heldur skilgreinir
WHO hreyfingu sem alla vöðva-
virkni sem inniber orkubrennslu.
Má þar nefna virkni við vinnu,
heimilisstörf, leik, ferðalög eða
dægrastyttingu.
Það er aldrei of seint að byrja að
hreyfa sig og öll hreyfing skiptir
máli. Mikilvægt að nota hvert tæki-
færi sem gefst, eins og til dæmis
að ganga eða hjóla í vinnuna og
nota tröppur í stað lyftu, þó ekki sé
nema ein hæð til að byrja með.
Aukin hreyfing hefur víðtæk
áhrif á heildardánartíðni með já-
kvæðum áhrifum á hækkaðan blóð-
þrýsting, sykursýki tegund 2, kvið-
fituheilkenni, kransæðasjúkdóm,
heilablóðföll, brjóstakrabba, rist-
ilkrabba, þunglyndi og dettni. Það
sem ekki minna máli skiptir er að
ofannefnd jákvæð áhrif á hina
ýmsu sjúkdóma þýða lengri tími
við góða líkamlega og andlega
heilsu og meiri lífsgæði en annars
hefði orðið. Einnig eykur hreyfing
þol, þrek, styrk, beinþéttni, vitræna
getu, minni og síðast en ekki síst
andlega líðan og starfræna getu.
Það gæti hjálpað sumum með
áramótaloforðin að Lífshlaupið
hefst 5. febrúar, en með því vill
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands hvetja landsmenn til þess að
fara eftir ráðleggingum Embættis
landlæknis um hreyfingu, hvort
sem er í frítíma, vinnu, skóla eða
við val á ferðamáta.
Hreyfing helst daglega
Ráðleggingar landlæknis segja
að börn og unglingar ættu að
stunda miðlungserfiða (hjartsláttur
og öndun heldur hraðari en venju-
lega en hægt er að halda uppi sam-
ræðum) og erfiða (kallar fram svita
og mæði þannig að erfitt er að
halda uppi samræðum) hreyfingu í
minnst 60 mínútur daglega. Full-
orðnir ættu að stunda miðlungserf-
iða hreyfingu í minnst 30 mínútur
daglega. WHO gengur heldur
lengra, sérstaklega með tilliti til
vöðvastyrkjandi hreyfingar tvisvar
til þrisvar í viku.
Að lokum vil ég benda þeim sem
eiga við heilsuvanda að stríða og
eru óöruggir að hefja eða auka
hreyfingu að leita til heimilislæknis
síns og fá ávísun á hreyfiseðil og
þannig aðstoð sjúkraþjálfara að
finna hreyfingu sem hentar þeim
og aðstoða að komast af stað með
nýtt og betra líf gegnum aukna
hreyfingu.
Á vefnum heilsuvera.is má líka
finna ráðleggingar um hreyfingu.
Morgunblaðið/Golli
Skokk Aldrei er of seint að byrja að hreyfa sig. Öll hreyfing skiptir máli og gott er að nota hvert tækifæri sem gefst.
Hreyfing – allra meina bót
Heilsuráð
Hörður Björnsson
svæðisstjóri og fagstjóri
lækninga Heilsugæslunni Miðbæ
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Um síðustu helgi frumsýndi Leikfélag
Húsavíkur hinn fræga söngleik Litlu
hryllingsbúðina eftir Howard Ashman
og Alan Menken. Verkið er fært á svið
í Samkomuhúsinu á Húsavík og leik-
stjóri er Vala Fannell. Með helstu
hlutverk í uppfærslu þessari fara
Arnþór Þórsteinsson sem leikur Bald-
ur Snæ, Valdís Jósefsdóttir sem fer
með hlutverk Auðar og Benóný Valur
Jakobsson sem leikur blómabúðar-
eigandann Markús. Karl Hannes Sig-
urðsson leikur Brodda tannlækni og
Sigurður Helgi Illugason fer með
hlutverk plöntunnar Auðar 2.
Fullt af húmor
„Litla hryllingsbúðin er sígildur
rokksöngleikur, fyrir alla fjölskyld-
una, fullur af húmor, kraftmikilli tón-
list, heillandi persónum og krassandi
söguþræði,“ segir í tilkynningu frá
Leikfélagi Húsavíkur, sem var stofnað
árið 1900. Í pistli frá félaginu segir
að besta afmælisgjöfin til þess væri
sú að allir sem vettlingi valda heim-
sæki félagið og skemmti sér yfir Litlu
hryllingsbúðinni – sem er þekkt verk
og hefur oft verið fært á fjalir við
góðar undirtektir. Næstu sýningar
eru nk. föstudag og laugardag.
100 ára leikfélag færir söngleik á fjalirnar
Hryllingsbúð
á Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarson
Hryllingur Leikararnir Benóný Valur Jakobsson, Arnþór Þórsteinsson og Valdís
Jósefsdóttir hér í hlutverkum sínum í hinu sígilda leikverki.