Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 18
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ef launakröfur Eflingar fyrir að- stoðarfólk á leikskólum ná fram að ganga verða laun þeirra komin upp undir byrjunarlaun hjá leikskóla- kennurum. Þá erum við lögð af stað í höfrungahlaupið,“ segir Guðmundur Ragnarsson, fyrr- verandi formaður Félags vélstjóra og málmtækni- manna (VM), sem varar við afleið- ingunum. Kröf- urnar komi ekki á óvart. „Þessi svokall- aða nýja forysta innan verkalýðs- forystunnar komst til valda út á lýð- skrum. Þegar hún komst til valda, eða lagði af stað í samninga, hafði hún enga framtíðarsýn, sem birtist í því sem er að gerast núna. Það kem- ur þó á óvart hversu hratt þetta er að framkallast,“ segir Guðmundur. Horfið af beinu brautinni „Það er sorglegt að horfa upp á þessa þróun. Rammasamningurinn sem var gerður fyrir árin 2015-2018 er sennilega einn áhrifaríkasti kjara- samningur í sögu verkalýðshreyfing- arinnar í heiminum. Það er því sorg- legt að við skyldum missa af tæki- færinu til að halda áfram á þeirri vegferð,“ segir Guðmundur. Hann rifjar svo upp markmið Salek-samkomulagsins árin 2015- 2018 og hvernig horft var til norræna vinnulíkansins. Sá munur sé á Íslandi og öðrum Norðurlandaþjóðum að í Skandi- navíu séu lægstu launin lág en tryggt að lágtekjufólk hafi tryggt húsnæði. Stjórnvöld hafi þar virkari aðkomu að því að rétta hlut þessa fólks en stjórnvöld á Íslandi hafi haft. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar- innar og fram að þjóðarsáttinni hafi skipst á launahækkanir og verðbólga á Íslandi. Skandinavar hafi farið sömu leið en tekið upp ný vinnubrögð eftir bankakreppuna í upphafi 10. áratugarins. Síðan hafi þeir tekið upp nýtt norrænt líkan og hækkað laun um 1,5-2% á tveggja ára fresti. Með því hafi tekist að skapa stöðug- leika og auka kaupmátt um 30-40%. Lýðskrumarar tekið völdin „Vandamálið er popúlisminn sem ræður ríkjum í verkalýðshreyfing- unni á Íslandi í dag. Þar skortir öll tengsl við veruleikann eða heilbrigða skynsemi. Skynsemisraddir innan verkalýðshreyfingarinnar eru kveðnar niður. Það þorir enginn að fara fram og segja sína meiningu, eða taka málefnalega rökræðu um vandamálið eða afleiðingarnar, af því að það er ráðist á manninn. Þessi for- ysta kemst áfram með alla vitleysuna á þessari kúgun gagnvart þeim sem ætla að hafa aðra skoðun á hlutun- um. Starfsgreinasambandið var sett til hliðar við gerð lífskjarasamningsins, ekki hlustað á þeirra sjónarmið. Það sem kraumar þar innandyra á eftir að koma upp á yfirborðið. Mín skoðun er sú að Alþýðusambandið sé algjörlega í rúst. Þetta fólk fer sínu fram en hluti Starfsgreinasambands- ins er ósáttur við þessa vegferð. Að- eins þrjú félög gerðu þennan samn- ing. Ég kalla þetta ekki lífskjara- samning heldur kyrrstöðusamning. Launahækkanir hjá fólki sem er með meðallaunin, 600 þúsund plús, hafa ekki haldið í við verðbólgu. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Vil- hjálmur Birgisson, formaður Verka- lýðsfélags Akraness, voru alltaf á móti Salek. Samt sem áður er þessi samningur aðeins smækkuð útgáfa af Salek. Horfðu til kjararáðs Þetta fólk komst til valda á því að byggja upp miklar væntingar. Ragn- ar Þór, Vilhjálmur og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, auk nokkurra af forystumönnum iðnað- armanna, ætluðu sér alltaf að sækja launahækkanir kjararáðs,“ segir Guðmundur. Sú viðmiðun hafi verið með öllu óraunhæf. „Norræna módelið er einfalt. Það skiptir ekki máli hvort þú rekur fyrirtæki, heimili eða samfélag. Ef þú ferð að eyða umfram það sem þú aflar skapast vandamál,“ segir hann. Morgunblaðið/Hari Samkomulag Lífskjarasamningurinn undirritaður í apríl í fyrra. ASÍ í rúst og lýðskrum leitt menn í öngstræti  Fyrrverandi formaður VM gagnrýnir verkalýðsforystuna Guðmundur Ragnarsson 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Ellefu varamenn tóku sæti á Alþingi á mánudaginn. Ástæða þessa er þátttaka þingmanna í alþjóðastarfi en óvenjumikil fundahöld standa yfir þessa vikuna erlendis. Fram kemur á vef Alþingis að nú standi yfir fundur eftirlitsnefndar Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn, fundur stjórnsýsluhindranahóps Norðurlandaráðs í Helsinki, þema- ráðstefna Vestnorræna ráðsins í Þórshöfn í Færeyjum, þingfundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg og loks heimsókn Norðurlandaráðs til skoska þingsins í Edinborg. Varamennirnir ellefu sem tóku sæti á Alþingi eru: Arna Lára Jóns- dóttir fyrir Guðjón S. Brjánsson, Elvar Eyvindsson fyrir Birgi Þór- arinsson, Jónína Björk Óskarsdóttir fyrir Guðmund Inga Kristinsson, Ásgerður K. Gylfadóttir fyrir Silju Dögg Gunnarsdóttur, Njörður Sig- urðsson fyrir Oddnýju G. Harðar- dóttur, Olga Margrét Cilia fyrir Þór- hildi Sunnu Ævarsdóttur, Stefán Vagn Stefánsson fyrir Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Una Hildardóttir fyrir Rósu Björk Brynjólfsdóttur, Eydís Blöndal fyrir Kolbein Óttars- son Proppé, Bjarni Jónsson fyrir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur og Karen Elísabet Halldórsdóttir fyrir Bryndísi Haraldsdóttur. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ellefu varamenn á Alþingi sama dag Festing vefmyndavélar „súluvarps- ins“ í Eldey er brotin og hallast illi- lega. Leyfi hefur fengist til að fara út í eyjuna til að lagfæra búnaðinn og verður athugað hvort Land- helgisgæslan hafi tök á að flytja tæknimennina með þyrlu. Sigurður Harðarson rafeindavirki telur að festingin hafi byrjað að láta undan í óveðrinu rétt fyrir jól og hún hafi svo gefið sig alveg þegar rúm vika var af janúar. „Þetta hafa ekki verið neitt venjuleg veður,“ segir Sigurður. Þetta er festing sem hefur haldið vélinni uppi frá upphafi. Vefmynda- vélin sjálf er í lagi þótt myndin úr henni sé hallandi en Sigurður telur að hún geti skemmst ef hún fellur til jarðar. Hann er tilbúinn með öflugri fest- ingar. Eldey er friðuð enda er í henni eitt stærsta súluvarp í heimi. Því þarf sérstakt leyfi Umhverfis- stofnunar til að fara þangað út og það fæst ekki nema utan varp- tímans. Sigurður hefur fengið leyfi Umhverfisstofnunar, með skil- yrðum, til að fara út og skipta um festingar. Mun hann leita til Land- helgisgæslunnar um að flytja sig og aðstoðarmenn þangað. Landhelgis- gæslan hefur lengi stutt þetta verk- efni með því að flytja mannskapinn, í tengslum við æfingaflug þyrlanna. Sigurður er kominn í nokkra tíma- þröng. Súlan sest upp í byrjun febr- úar, þannig að verkið þarf að vinna í þessari viku eða byrjun næstu. Ef það tekst ekki kemur til greina að rétta myndirnar við í tölvu fyrir út- sendingu en það er nokkurt verk. Útsendingarnar úr Eldey hafa verið á netinu frá árinu 2008. Hefur reglulega þurft að fara út til að huga að búnaðinum. Sendingarnar lágu niðri í nokkrar vikur í fyrravetur vegna skemmda á sólarrafhlöðum. Þurfti að fara tvær ferðir vegna þess og til að bæta tækjabúnaðinn. helgi@mbl.is „Súluvarp“ Eldey hallar ef mið er tekið af því sem sést í útsendingu. Enn þarf að laga búnaðinn í Eldey sp ör eh f. Glæsileiki, rómantík og ölduniður Lago Maggiore vatnsins undirstrika fegurð Ítalíu og töfra Alpafjallanna í þessari vikuferð þar sem dekrað verður við okkur í bænum Stresa. Margar skoðunarferðir standa til boða, svo sem sigling á Comovatni til yndislega bæjarins Bellagio, dagsferð til heimsborgarinnar Mílanó og sigling til eyjunnar Isola Bella þar sem við sjáum glæsilega höll í miðjum lystigarði. Verð: 229.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Fararstjóri: Þóra Björk Valsteinsdóttir Vor 8 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík 27. apríl - 4. maí Bella Ítalía Karl Berndsen, hár- greiðslu- og förðunar- maður, er látinn 55 ára að aldri. Hann glímdi við alvarleg veikindi síðustu ár. Karl fæddist og ólst upp á Skagaströnd en flutti ungur þaðan og hugurinn leitaði út í heim. Árið 2008 flutti hann heim til Íslands eftir þrettán ára búsetu í London, Brussel og Los Angeles. Á þeim tíma farðaði hann með- al annars ofurfyrirsætur á tískusýn- ingum hjá nokkrum af þekktustu og virtustu tískuhönn- uðum heims. Hann skapaði sér fljótt nafn fyrir störf sín hér á landi. Karl opnaði snyrtistofuna Beauty Bar og stýrði vinsælum útlitsþáttum í sjónvarpi. Nutu þætt- irnir Nýtt útlit á Skjá einum mikilla vin- sælda. Hann skipaði heiðurssæti á lista Besta flokksins fyrir borgarstjórnar- kosningarnar árið 2010 og bauð sig fram fyrir Flokk fólksins árið 2018. Andlát Karl Berndsen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.