Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Íslenskt hugvit kom mjög við sögu við hönnun gulu vegstikanna sem vísa vegfarendum leiðina á þjóð- vegum landsins. Stikurnar eru fram- leiddar á Íslandi, eru endurnýttar eins oft og hægt er og síðan sendar í endurvinnslu. Rúmlega 320 þúsund stikur, bæði vegstikur og snjóstikur, standa við þjóðvegi landsins. Það er nálægt því að vera ein stika á hvern Íslending. Þetta má lesa í pistli á heimasíðu Vegagerðarinnar. Ástæða er til að segja sögu stikanna nú um stundir, þegar vegfarendur hafa þurft að reiða sig á leiðsögn þeirra í ótíðinni. Á hverju ári eru framleiddar í kringum 25 þúsund vegstikur og nokkur þúsund snjóstikur enda verða alltaf einhver afföll yfir vetrar- tímann. Þetta er mikil breyting til batnaðar því áður fyrr, þegar not- aðar voru tréstik- ur. Þurfti að skipta út nærri öllum vegstikum í vegakerfinu á ári hverju. Í dag er talið að hver stika geti enst í allt að tíu ár. Björn Ólafsson verkfræðingur, sem starfaði hjá Vegagerðinni í 45 ár, frá árinu 1971 til 2016 og síðustu 25 árin sem forstöðumaður þjónustu- deildar, þekkir vel söguna á bak við gulu vegstikurnar, enda var hann einn þeirra sem komu að þróun og hönnun þeirra. „Tréstikur voru lengi smíðaðar í áhaldahúsum Vegagerðarinnar á veturna. Þær voru sagaðar til, mál- aðar og sett á þær endurskin. Þetta var stór hluti af vetrarvinnunni enda var vetrarþjónusta á þessum tíma mjög takmörkuð. Þessar tréstikur entust takmarkað, brotnuðu mikið í snjómokstri svo og af völdum ann- arra álagsþátta eins og vegna ágangs búfjár,“ segir Björn í pistli Vegagerðarinnar. Þessi afföll urðu til þess að menn fóru að huga að öðrum lausnum þ.e. að nota stikur úr endingarbetra efni sem þyldu betur þetta álag. Til þessa verkefnis fékk Björn fé úr rannsóknarsjóði Vegagerðar- innar, bæði til þróunar á innlendri framleiðslu á gulum plaststikum og til að leita betri lausna á stöðugleika þeirra. Tekið var í framhaldinu upp samstarf við þá Gunnar Þórðarson verksmiðjustjóra og Jón Þórðarson, fyrrverandi verksmiðjustjóra, sem stýrðu röraframleiðslu við plast- verksmiðjuna á Reykjalundi. Reynsla á fyrsta árinu var það góð að ákveðið var að halda þróuninni áfram. Með stuðningi rannsóknar- sjóðsins hannaði Jón Þórðarson og lét smíða sérstakan blásturshaus og mótunarbúnað framan á rörafram- leiðslubúnaðinn þar sem stikulengj- an var dregin út í gegnum með sér- stakri vél með gúmmíbeltum. Ötult starf unnið við þróun Ingimar Sigurðsson, verkstjóri í járnsmiðju Vegagerðarinnar í Grafarvogi, útbjó fyrstu stikufesting- arnar, þ.e. fótstykki til að reka niður í jarðveginn og festa stikurnar í. Gylfi Júlíusson rekstrarstjóri Vegagerðar- innar í Vík vann ötult starf við frek- ari þróun, m.a. gekk hann betur frá tengifestingum með splitti sem festi stikuna betur við fótstykkið. Síðar komst hann í samband við mikinn hagleiksmann, Jónas Guð- laugsson í Reykjavík. Jónas mótaði til fyrstu frumgerðina úr áli, sem auðvelt var að beygja til, og var end- anleg þróun og lögun fótstykkisins síðan samstarfsverkefni þeirra Jón- asar og Björns Ólafssonar. Um 25 þúsund snjóstikur úr stífu plasti eru í vegakerfinu en þær eru sívalar og lengri en ofangreindar vegastikur. „Snjóstikurnar þessar voru þróað- ar af Jóni Einari Hjartarsyni á Læk í Ölfusi en Rögnvaldur Jónsson, sem var svæðisstjóri á Reykjanesi á þeim tíma, hafði forgöngu um þessa fram- leiðslu,“ upplýsir Björn. Eftir framleiðslu stikanna eru þær sendar á þrjá staði á landinu þar sem endurskinsmerki eru límd á þær. Þessi vinna fer fram í Fjöliðj- unni á Akranesi, á Litla-Hrauni og í Borgarnesi. Stöðugleiki Starfsmenn Vegagerðarinnar reka niður fótstykki á Hellis- heiði. Töluverður tími fer í að þrífa stikur en á þær festast óhreinindi. Ljósmyndir/Vegagerðin Þarfaþing Snjóstikurnar hafa komið sér vel í ótíðinni að undanförnu. Þær eru kringlóttar og hærri en vegstikur. Stikurnar eru þarfaþing í ótíðinni  Rúmlega 320 þúsund stikur við þjóðvegina  Er nálægt því að vera ein stika á hvern Íslending Björn Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.