Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 34
34 FRÉTTIRTækni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Vetrarsól er umboðsaðili
40 ár
á Íslandi
Sláttuvélar
Snjóblásarar
Sláttutraktorar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
ÚTSALA
50%
URBANFLYÖKKLASKÓR
9.997KR.
VERÐ ÁÐUR 19.995 KR.
BIANCOACE
11.497KR.
VERÐ ÁÐUR 22.995 KR.
BIANCO BFACE ÖKKLASKÓR
12.497KR.
VERÐ ÁÐUR 24.995 KR.
því að brúka algrím frá bandarísku
geimferðastofnuninni (NASA)
dökkna gleraugun þegar ökumað-
ur afvegaleiðist en eru tær og glær
þegar hann situr rór og einbeittur
undir stýri. „Þú getur borið þau í
20 til 30 mínútur á dag og heilinn í
þér þróar betur getu sína til
skarpari athygli,“ sagði Jay Arcata
hjá Narbis. Og bætti því við að
verið væri að prófa gleraugun til
að geta nýst gegn vissum vit-
glöpum.
Raftækjasmiðurinn Bosch frum-
sýndi sjóntæki sem gefa notand-
anum kost á að taka við tilkynn-
ingum með svipuðum hætti og í
snjallúrum. Því til viðbótar kynnti
snjallgleraugnasmiðurinn Vuzix
nettengd sundgleraugu sem geta
boðið upp á upplýsingar í kafi. Þau
má einnig brúka til þjálfunar
keppenda. „Svo geturðu horft á
Netflix með þeim, sumir verða
leiðir á því að synda alltaf fram og
aftur sama hringinn í lauginni,“
sagði Paul Travers, forstjóri
Vuzix.
Öflug heyrnartól
Heyrnartól eru sá geiri neyt-
endatækja sem vaxið hefur hvað
hraðast í seinni tíð. Enginn skort-
ur var á þeim á CES-sýningunni,
hvort sem var til afþreyingar eða
betri heilsu. „Þráðlausir eyrna-
tappar eru úti um allt,“ sagði
greinandinn Jitesh Ubrani hjá
IDC. „Kostnaður við þau hefur
lækkað svo mikið að þau voru gef-
in út um alla sýninguna.“
Eyrnatapparnir taka stöðugum
framförum. Waverly Labs svipti
til að mynda hulunni af eyrnatóli
sem getur túlkað samræður á 20
tungumálum. Þá sagði Avi
Greengart hjá ráðgjafarfyrirtæk-
inu Techsponential mikið að ger-
ast á sviði heyrnartækja sem væru
„félagslega boðleg“ fyrir fólk með
heyrnartap. „Þau eiga að höfða til
heyrnarskerts fólks sem þarf
hjálpartækin en vill ekki fá sér
þau,“ sagði hann.
Skynjarar út um allt
Sum nýjustu íverutólanna afla
gagna með því að grípa beint í
líkamann.
Kanadíska fyrirtækið Myant
sýndi til að mynda fatalínu að
nafni Skiin sem hefur nærfötum á
að skipa sem nota líkamann í heild
sem snertiflöt til að skynja líkams-
starfsemina og mæla hana í sí-
fellu, s.s. hjartslátt, líkamsálag,
svefn og fleira. Eru skynjarar ofn-
ir þann veg inn í klæðið að notandi
nærfatanna finnur ekkert fyrir
þeim, sagði fulltrúi Myant, Julie
Bosotti. Hún sagði fyrirtækið vera
að þróa flík fyrir þungaðar konur
sem fylgst geta með heilsu fóst-
ursins. Möguleikar eru sagðir á að
Nærklæðin nettengd
um allan kropp
AFP
Skynvædd nærföt Skynjarar eru ofnir inn í Skiin-nærfötin sem mæla ýmiss
konar starfsemi líkamans, svo sem hjartslátt, líkamsálag og svefn.
Sundsjónvarp Með nettengdu Vuzix-sundgleraugunum er m.a. hægt að
horfa á myndband á sundi verði sundmenn leiðir á stöðugu hringsóli.
AFP
Snjöll gleraugu Snjallgleraugun Serenity frá franska fyrirtækinu Ellcie
Helthy. Þau greina andlegt álag og þreytu og eru hugsuð fyrir bílstjóra.
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Vöruþróun hefur fleygt hratt fram
undanfarin misseri svo sem mátt
hefur sjá á tæknineytendasýning-
unni árlegu (CES) sem nýlokið er í
Las Vegas í Bandaríkjunum. Að
þessu sinni gat þar meðal annars
að líta allt frá þreytugreinandi
ökumannsgleraugum til sköflungs-
hlífa sem dæma um getu fótbolta-
manna. Hefur tækjum og tólum
farið mjög fram frá því á fyrstu
dögum púlsmælandi snjallúra.
Nýjustu uppfinningar í neyt-
endatæknigeiranum voru frum-
sýndar á CES-sýningunni. Þær
áttu það sammerkt að auðvelda
neytendum að nýta sér netið í
þágu góðrar heilsu.
Snjallgleraugu sem þar voru
kynnt áttu til að mynda að bjóða
lausnir á margvíslegum vanda-
málum. Franska sprotafyrirtækið
Ellcie Healthy kynnti gleraugna-
umgjörð sem varar ökumenn við
syfju og getur einnig skynjað
svefnhöfga fullorðins fólks. „Þessi
vara hefur bjargað mannslífum og
fækkað slysum,“ sagði Theo Nik-
tabe, framkvæmdastjóri Ellcie
Healthy, um gleraugun góðu sem
verið hafa í sölu í Frakklandi og
eru á leið á alþjóðamarkað.
Svefndrungavarinn gæti verið
gagnlegur flutningabílstjórum og
fábreytt hönnun hans gæti heillað
eldra fólk, en hann lítur út eins og
venjuleg gleraugu. „Við reynum að
framleiða smart gleraugu sem líta
ekki út eins og snjallgleraugu.
Eldra fólk kærir sig ekki um
tækjabúnað til að verjast falli,“
bætti Niktabe við.
Netflix í bólakafi
Bandarískt sprotafyrirtæki að
nafni Narbis kynnti annars konar
sjóntæki sem styðjast við taugafrá-
lag til heilaþjálfunar en það getur
örvað einbeitingu, einkum og sér í
lagi barna með athyglisbrest. Með