Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Harkan í yfir-standandikjaradeil-
um á sér litla inni-
stæðu. Sennilega
hefur ekki verið
jafn lítill sveigjan-
leiki til launahækk-
ana í áratug.
Í Morgunblaðinu í gær er
rætt við Sonju Ýri Þorbergs-
dóttur, formann BSRB, þar
sem hún segir að samtök henn-
ar verði ekki þreytt til kjara-
samningsgerðar. Hún segir að
meginkrafan sé stytting vinnu-
vikunnar án launaskerðingar,
en um leið sé langt á milli semj-
enda þegar komi að launaliðn-
um.
Efling er komin í hart við
Reykjavíkurborg, krefst ríf-
legra hækkana og hótar verk-
föllum. Haft var eftir Sólveigu
Önnu Jónsdóttur, formanni
samtakanna, á mbl.is í fyrradag
að þörf væri á kraftaverki ætti
deilan að leysast. Ekki er að sjá
að lausn sé í sjónmáli þar.
Kjaradeilur snúast ekki að-
eins um það hvað menn vilja
borga há laun, heldur hversu há
laun er hægt að greiða. Vissu-
lega búa margir við bág kjör og
ættu skilið að fá meira í sinn
hlut. Það er snjallt hjá Eflingu
að segja að kröfur félagsins
nemi aðeins andvirði fjögurra
bragga. Með því er bent á
hvernig peningum er sólundað
hjá borginni. Vissulega færi
betur á því að nota fjármuni
borgarinnar í að bæta kjör
starfsfólks á leik-
skólum en að henda
þeim út um
gluggann.
Fréttir þessa
dagana bera því
vitni hvernig stað-
an er í efnahags-
málum. Á forsíðu Morgunblaðs-
ins í gær er fjallað um samdrátt
í verslun vegna þess að minna
er um ferðamenn en áður og að
ferðabannið í Kína hafi valdið
samdrætti í sölu í miðbænum
um 60-70%. Í gær birtist síðan
frétt á mbl.is um að Cintamani
sé gjaldþrota.
Ef til vill er óvarlegt að tala
um kreppu hér á landi, en mörg
fyrirtæki eru í erfiðri stöðu og
mega ekki við því að reksturinn
þyngist. Aukinn kostnaður
vegna hærri launa getur hæg-
lega knúið fyrirtæki til upp-
sagna eða jafnvel veitt þeim
náðarhöggið.
Rekstur hins opinbera er
ekki óháður atvinnulífinu. Það-
an koma peningarnir til að reka
opinber fyrirtæki og stofnanir.
Þegar þrengir að hjá þeim sem
borga skattinn dregur úr pen-
ingaflæðinu í fjárhirslur ríkis,
sveita og bæja.
Laun hjá hinu opinbera
verða að vera í takti við það
sem gerist úti á almennum
vinnumarkaði. Hið opinbera
getur ekki hleypt öllu í bál og
brand með því að ganga lengra
en gert hefur verið í einkageir-
anum. Þar stendur hnífurinn í
kúnni.
Sennilega hefur
ekki verið jafn
lítill sveigjanleiki
til launahækkana
í áratug}
Óraunhæfar kröfur
Janúarmánuðurhefur hnippt
harkalega í okkur
eins og hann telji
að við höfum
gleymt því hvar í
veröldinni við er-
um til húsa.
Auðvitað höfum við engu
gleymt þótt horft sé glaðbeitt í
gegnum alkunnar staðreyndir
lífsins. Allir landsmenn taka
hættur vegna snjóflóða alvar-
lega enda eru þau geymd í þjóð-
arminni og sum dæmin aðeins í
örfáum árum eða áratugum tal-
in. Og þótt ekki sé það alla daga
efst á blaði allra að Reykjanes-
skaginn sé sprelllifandi af eld-
virkni er enginn sleginn blindu.
En vissulega hefur byggðin þar
og í fjölbýlinu norðan af og
starfsemin öll stór og smá vaxið
mjög í seinni tíð. Meðfæddar
áhyggjur af náttúruvá sem lýt-
ur sínum eigin lögmálum
aukast af þeim ástæðum.
Dæmin sanna að draga má
verulega úr afleiðingum snjó-
flóða á byggðir sem áður voru
óvarðar. Veruleikinn er
flóknari þegar kemur að eld-
stöðvum sem eru
óþægilega nærri
byggð. Það hafa
sennilega fáir ver-
ið með daglegar
áhyggjur af eld-
gosi í Eyjum og
lengi staðið í þeirri
trú að eldstöðvar þar væru
sofnaðar. Þar varð tjónið stór-
fellt en þó var mesta þakkar-
efnið hversu lítið tjónið varð
miðað við það sem eftir á mátti
ímynda sér.
Nú er talið og vonandi með
réttu að vaxandi þekking og
betri tækjabúnaður sé nokkur
trygging fyrir því að áfallið
komi ekki algjörlega fyrirvara-
laust.
Íslendingar hafa þó engu
gleymt og þótt yfirbragðið sýn-
ist létt væri það fífldirfska að
gera ekki allar þær ráðstafanir
sem hugsanlegar eru. Gildir
það um hvern og einn sem að
kemur og almannavald ríkis og
sveitarfélaga. Gangi hættu-
merkin ekki eftir verður tími og
fjármunir sem varið var í fyrir-
byggjandi aðgerðir aldrei taldir
óþarfa eyðsla.
Hættumerki um nátt-
úruvá eru mikilvæg-
ustu hjálpartækin,
bæði til skamms
tíma og lengri}
Hafa allan vara á
Í
lok árs 2019 bárust fregnir af alvar-
legum lungnasýkingum í Wuhan-borg
í Kína, þá af óþekktum orsökum. Í
kjölfarið var staðfest að um sýkingar
af völdum kórónaveiruafbrigðis væri
að ræða. Sýking af völdum veirunnar hefur nú
þegar verið greind hjá um sex þúsund manns,
einkum í Kína. Sennilega er veiran upprunin í
dýrum en hefur nú öðlast hæfileika til að sýkja
menn og staðfest er að hún getur smitast
manna á milli en óljóst er hversu smitandi hún
er. Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi.
Kórónaveirur eru nokkuð algeng orsök
kvefs og öndunarfærasýkinga almennt hjá
mönnum en þegar ný afbrigði berast úr dýr-
um í menn er þekkt að kórónaveirusýkingar
geta verið alvarlegar. Flest tilfellin utan Kína
hafa komið upp í Asíu en Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópusam-
bandsins (ECDC) hafa hvatt sóttvarnayfirvöld um heim
allan til að gera ráðstafanir til að geta brugðist fljótt við
ef veikin berst til fleiri landa. Sóttvarnalæknir gerir ráð
fyrir að veiran muni berast til Íslands og leggur áhersla
á að mikilvægt sé að grípa til ráðstafana til að hefta út-
breiðslu hennar sem mest hér á landi. Viðbrögð yfirvalda
hér á landi beinast, auk þess að hindra sem mest út-
breiðslu veirunnar innanlands, að því að tryggja heil-
brigðisþjónustu fyrir veika einstaklinga og viðhalda
nauðsynlegri starfsemi innanlands.
Undirbúningur á Íslandi er hafinn, í sam-
ræmi við viðbragðsáætlanir sóttvarnalæknis
og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra
og aðrar fyrirliggjandi viðbragðsáætlanir,
s.s. sóttvarnir fyrir alþjóðaflugvelli. Sam-
ráðsfundir Sóttvarnalæknis eru haldnir dag-
lega og Embætti landlæknis, smitsjúkdóma-
deild Landspítala, Rauði krossinn, heil-
brigðisstofnanir, Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins og ferðaþjónustuaðilar eru meðal
þeirra sem koma að vinnunni hérlendis.
Aðgerðir sem nú þegar hefur verið gripið
til er birting og uppfærsla fræðsluefnis til al-
mennings og heilbrigðisstarfsmanna á
heimasíðu Embættis landlæknis. Leiðbein-
ingar til almennings og ferðamanna um
hvernig eigi að nálgast heilbrigðiskerfið ef
grunur vaknar um sýkingu af völdum veir-
unnar hafa verið gefnar út og á alþjóðlegum flugvöllum
landsins verður unnið samkvæmt sérstökum við-
bragðsáætlunum. Heilbrigðisstofnanir hafa einnig verið
hvattar til að uppfæra sínar viðbragðsáætlanir.
Sóttvarnarlæknir og Embætti landlæknis halda mér
og ráðuneyti mínu upplýstu um gang mála daglega.
Auðvitað vonum við að veiran berist ekki hingað til
lands, en ef og þegar það gerist verðum við undirbúin.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Viðbrögð við kórónaveiru
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ekki þykir ástæða til þessað hvetja til ferðabannstil Kína að því er segir áheimasíðu Embættis
landlæknis (landlaeknir.is). Ferða-
menn eru hins vegar hvattir til að
huga að sóttvörnum. Þá hvetur sótt-
varnalæknir einstaklinga á ferðalög-
um erlendis, sérstaklega í Kína, til
að gæta vel að almennu hreinlæti,
sérstaklega handþvotti. Einnig að
forðast náið samneyti við einstakl-
inga sem eru með almenn kvef-
einkenni. Forðast samneyti við villt
dýr eða dýr á almennum mörkuðum.
Nota pappír eða klút fyrir vit við
hnerra, þegar um kvefeinkenni er að
ræða, og þvo hendur reglulega. Láta
síðan heilbrigðisstarfsmenn vita um
ferðir sínar ef fólk þarf að leita til
heilbrigðiskerfisins hér á landi.
Morgunblaðið fékk veður af ís-
lenskum ferðalöngum sem hyggjast
fara í ferðalag til Kína í vor. Sumir
eru nú þegar búnir að borga ferðina
sem kostar drjúgan skilding enda
mikið í hana lagt. Af því tilefni voru
íslensk tryggingafélög spurð hvort
tryggingar næðu yfir það ef fólk
vildi hætta við að fara í slíka ferð, til
dæmis af ótta við að smitast af
Wuhan-veirunni.
Hjá Sjóvá fengust þær upplýs-
ingar að til þess að ferðavernd fjöl-
skyldutryggingar þeirra bætti fólki
slíkt þyrfti að vera opinbert ferða-
bann til Kína. Ekki nægði að mælst
væri til þess að fólk færi þangað
ekki.
TM sagði að í grófum dráttum
talað kæmu ferðatryggingar ekki til
skjalanna vegna forfalla í þessum
aðstæðum nema yfirvöld settu á
ferðabann vegna farsóttar.
Margir ferðamenn frá Kína
Kínverskir ferðamenn til Ís-
lands í fyrra voru 139 þúsund. Það
eru um 7% ferðamanna sem komu
það ár, að sögn Ferðamálastofu.
Þetta er samkvæmt talningum
Ferðamálastofu og Isavia á Kefla-
víkurflugvelli. Af þessum hópi var
um 71% frá meginlandi Kína en 29%
frá Hong Kong og Taívan. Ferða-
málastofa segir að heimsóknir Kín-
verja hafi verið fæstar í apríl og maí
en dreifst annars tiltölulega jafnt
yfir árið. Það gerir þá að mikil-
vægum viðskiptavinum utan há-
annatímans. Kínverjar dvöldu hér að
jafnaði 7,2 nætur að sumri og 6,6
nætur að vetri á árinu 2018.
Kínversku ferðamennirnir á Ís-
landi eru flestir ungir og voru 76%
þeirra sem hingað komu 2018 yngri
en 35 ára. Nokkur hluti Kínverja
sem koma hingað býr í Evrópu t.d.
vegna náms. Landamærarannsókn
Ferðamálastofu sýndi að í fyrra voru
12% kínverskra ferðamanna sem
komu til landsins búsett utan Kína
og 21,5% á árinu 2018.
Landamærarannsókn Ferða-
málastofu sýnir að dregið hefur úr
vægi pakkaferða frá Kína undan-
farin ár. Þannig lækkaði hlutfall
þeirra sem nýttu sér pakkaferðir um
tæp 12 prósentustig á milli áranna
2018 og 2019. Á sama tíma fjölgaði
ferðum Kínverja á eigin vegum.
Kínversk stjórnvöld hafa nú
bannað skipulagðar hópferðir og
pakkaferðir ferðamanna frá Kína
um óákveðinn tíma vegna kóróna-
veirunnar. Ferðamálastofa segir
eðlilegt að spurningar vakni um
áhrif þess á íslenska ferðaþjónustu.
Þá kveðst Ferðamálastofa fylgjast
vel með framvindu kórónaveirunnar
og vera í nánu sambandi við sótt-
varnalækni um upplýsingamiðlun til
ferðaþjónustunnar.
Wuhan-veiran hefur
mikil áhrif á ferðalög
AFP
Varin Ferðamenn með öndunargrímu eru algeng sjón á flugvöllum vegna
ótta við Wuhan-veiruna. Öndunargrímur renna út úr búðunum.
Sýking af völdum kóróna-
veiruafbrigðisins sem kennt
er við Wuhan í Kína hafði ver-
ið staðfest hjá um 6.072
einstaklingum í gær. Af þeim
höfðu 132 látist (2,3%). Fjöldi
fólks var alvarlega veikur,
samkvæmt frétt almanna-
varnadeildar ríkislögreglu-
stjóra. Veiran veldur alvarlegri
lungnasýkingu.
Flest greindra tilfella eru
frá Kína (5.994), Taílandi
(14), Suður-Kóreu og Taívan
(átta í hvoru landi), Japan,
Malasíu og Singapúr (sjö í
hverju landanna), Ástralíu og
Bandaríkjunum (fimm í hvoru
landi), Þýskalandi (fjögur),
Kanada (þrjú), Víetnam (tvö)
og Nepal, Srí Lanka, Kambód-
íu og Sameinuðu arabísku
furstadæmunum (eitt tilvik í
hverju).
Lungnapest-
in breiðist út
WUHAN-VEIRAN