Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Augnlyfting Einstökmeðferð til að lyfta slappri húð á augnsvæði • Dregur úr hrukkumog línum • Hjálpar húðinni að endurnýja sig • Örvar kollagenframleiðslu húðar Kíktu á hudfegrun.is fyrir nánari upplýsingar Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Þegar prófessorinn Roger Corder vildi meina að heilsuhreysti Frakka mætti að einhverju leyti rekja til rauðvínsins sem þeir drukku með máltíðum sínum var farið að skoða hvaða efni mætti finna í blóðrauðum vökvanum. Tilvist andoxunarefn- isins resveratróls í rauðvíni var ástæða þess að það kynni að hafa já- kvæð áhrif á heilsu okkar en þetta varð til þess að það var farið að rannsaka það nánar. Síðar kom í ljós að resveratról er einungis í snefil- magni í rauðvíni og gefur okkur því ekki afsökun til að auka víndrykkj- una. Hins vegar má finna resveratr- ól í öllu heilbrigðari kostum á borð við ýmis ber, hnetur og hreint súkkulaði. Á síðustu árum hafa rannsóknir gefið í skyn að resver- atról kunni að lækka blóðfitu ásamt því að hafa bólgueyðandi og andox- andi áhrif sem geti minnkað líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Sömu- leiðis er verið að rannsaka áhrif resveratróls gegn sykursýki og alz- heimersjúkdómnum. Nú hefur þó umræðan aukist um getu resveratr- óls til að hægja á öldrun húðarinnar Hægir á öldrun á þrennan hátt „Ég myndi segja að resveratrólið sé mjög lofandi en það vantar fleiri rannsóknir til að sýna fram á virkni þess með óyggjandi hætti. Þær rannsóknir sem birtar hafa verið sýna fram á aukinn raka, þéttleika og ljóma í húðinni ásamt því að fínar línur og hrukkur mildast þegar resveratról er borið á hana,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir, húð- læknir á Húðlæknastöðinni. Hún bendir á að fjöldinn allur sé til af góðum grunnrannsóknum á virkni resveratróls og í stuttu máli hafi þær sýnt fram á að resveratról hægi á öldrun húðarinnar á þrennan hátt. „Í fyrsta lagi örvar það virkni sirtu- ins sem eru prótín eða ensím sem líkaminn myndar til að verja erfða- efni frumnanna fyrir aldurstengdum skemmdum. Virkni þessara prótína og framleiðsla hægist með aldrinum en resveratról örvar einmitt þessi prótín og eflir þannig viðgerðarferli húðarinnar ásamt því að verja húð- frumurnar gegn ytri umhverfis- þáttum eins og sólargeislum. Í öðru lagi kemur resveratrólið inn á annan feril í frumum líkamans þar sem það ver mjög mikilvæg byggingarprótín húðarinnar, kollagen og elastín, gegn niðurbroti. Í þriðja lagi er resveratról kröftugt andoxunarefni og ver húðina gegn sindurefnum sem eru mjög skaðleg húðinni og geta valdið ótímabærri öldrun. Sind- urefni eru mjög hvarfgjörn efna- sambönd sem myndast af völdum ýmissa innri og ytri þátta, eins og bólgu, sólargeisla, reykinga og streitu,“ segir Jenna Huld. Örvar viðgerðarferli húð- arinnar yfir nóttina Þegar kemur að öflugustu inni- haldsefnunum í húðvörum, til að draga úr ásýnd öldrunarmerkja á húðinni, segir Jenna Huld að mark- tækustu rannsóknirnar séu á bak við retinól, C-vítamín og ávaxtasýrur. „Ég myndi því alltaf mæla fyrst með þeim efnum. Resveratrólið er nýrra og ekki með jafn mikið af klínískum rannsóknum á bak við sig. Ef þig langar að bæta enn meiri virkni við húðumhirðu þína og örva náttúru- legt viðgerðarferli húðarinnar yfir nóttina þá er resveratrólið mjög vænlegur kostur,“ leggur Jenna Huld til. Húðvörur sem innihalda resveratról njóta sífellt aukinna vin- sælda og er yfirleitt um krem að ræða sem hugsað er sem nætur- meðferðir. Má þar helst nefna Skin- Ceuticals Resveratrol B E en þetta næturserum er það fyrsta sinnar tegundar og inniheldur hámarks- styrkleika af resveratróli eða 1%. Formúlan inniheldur einnig tvö önn- ur andoxunarefni, sem styðja við virkni resveratróls, en það eru E- vítamín og baicalin. Þessi öfluga andoxunarblanda eykur bæði ljóma húðarinnar og þéttleika. Þess má geta að blaðamaður hefur sjálfur verið að nota þessa húðvöru á kvöld- in og sá mun á húðinni morguninn eftir fyrstu notkun. Húðin virtist mun mýkri og jafnara yfirbragð á henni. Hefur einnig hentað við- kvæmum húðgerðum Jenna Huld segist sjálf nota Skin- Ceuticals Resveratrol B E-nætur- meðferðina og er mjög sátt við ár- angurinn. „Mér finnst húðin mýkri, þéttari og áferðarfallegri. Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að nota resveratról var sú að ég vildi bæta við virkni í mína daglegu húðrútínu. Húðin á mér þolir ekki virkustu kremin sem innihalda retinóíða eða ávaxtasýrur þar sem ég er með rós- roða. Resveratrólið hefur því hentað vel minni viðkvæmu húð.“ Þegar Jenna Huld er spurð hvort allar húð- gerðir geti notað resveratról segist hún eingöngu geta talað fyrir þá resveratról-húðvöru sem hún þekki en það sé SkinCeuticals Resveratrol B E og hún hafi þolað það mjög vel og það henti öllum húðgerðum. Nýja stjarnan í húðumhirðu? Mikið er rætt um eiginleika andoxunarefnisins resveratróls til að hægja á öldrun húðarinnar og hafa húðvörur sem búa yfir efninu notið gífurlegra vinsælda undanfarið. Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlæknastöðinni, segir resveratról vænlegan kost til að örva náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar. Virkar vel SkinCeuti- cals Resver- atrol B E hefur notið gríðarlegra vinsælda upp á síðkastið. Sérfræðingurinn Jenna Huld Eysteins- dóttir, húðlæknir á Húðlæknastöðinni. Ljósmynd/Colorbox Æskuljóminn eftirsótti Margir sækjast eftir því að reyna að líta sem best út!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.