Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 54
Kælið og snyrtið örlítið ofan af
hverjum botni til að jafna þá áður en
þið setjið kökuna saman.
Karamellusósa (fyrir krem og dripp)
300 g sykur
130 g smjör við stofuhita
180 ml rjómi
1 tsk. salt
Hafið öll hráefnin tilbúin í upphafi
þar sem hræra þarf stanslaust í
blöndunni.
Setjið sykurinn í pott og hitið á
meðalháum hita þar til hann er bráð-
inn og hrærið stanslaust í með sleif á
meðan (þetta tekur um 6-8 mínútur).
Setjið smjörið saman við sykurinn
(það mun krauma aðeins og það er
allt í lagi) og hrærið vel þar til bland-
að.
Blandið rjómanum þá út í pottinn
og hrærið vel þar til blandað. Hér
kraumar aftur og það má hækka hit-
ann í 1-2 mínútur á því stigi og síðan
taka af hellunni og setja saltið saman
við.
Gott er að hella karamellunni í aðra
skál (ég setti strax 100 ml í mæliglas
fyrir kremið og restina í aðra skál
fyrir drippið).
Karamellan þarf að ná stofuhita og
þá má nota hana í kremgerð og dripp.
Ef hún verður of þykk áður en þið
gerið drippið þá má setja hana 10-15
sek. á meðalhita í örbylgjuofninn og
hræra upp aftur (hún má samt vera
frekar þykk þar sem hún lekur
Súkkulaðikaka með karamellukremi
Botnar
1 x Betty Crocker Devils Food Cake mix
4 egg
125 ml ljós matarolía
250 ml vatn
3 msk. bökunarkakó
1 pk. súkkulaði Royal-búðingur (duftið)
Hrærið saman eggjum, olíu og
vatni.
Bætið kökudufti og bökunarkakó
saman við og hrærið vel, skafið niður
á milli.
Að lokum fer Royal-búðingurinn
saman við og hrært er lítillega þar til
hann hefur samlagast deiginu.
Spreyið 3 x 15 cm kökuform með
matarolíuspreyi og skiptið deiginu
jafnt niður á milli þeirra.
Bakið við 160°C í um 25 mínútur
eða þar til prjónn kemur hreinn út.
merkilega vel niður þó hún sé þann-
ig).
Karamellukrem
180 g smjör við stofuhita
450 g flórsykur
2 tsk. vanilludropar
100 ml karamellusósa (sjá uppskrift að
ofan)
Þeytið smjörið þar til létt og ljóst.
Bætið flórsykrinum saman við í
nokkrum skömmtum.
Setjið vanilludropana og kara-
mellusósuna saman við og blandið
vel.
Smyrjið jöfnu magni á milli lag-
anna og grunnhjúpið kökuna með
þunnu lagi þannig að botnarnir sjáist
samt í gegn. Á toppnum má þó vera
um ½ cm þykkt lag.
Restin af kreminu má þá fara í
sprautupoka með 2D eða 1M stút frá
Wilton og bíða þar til dripp er komið
á.
Dripp og skreyting
Gott er að kæla kökuna í að
minnsta kosti 15 mínútur í ísskáp áð-
ur en drippið er sett yfir hana.
Þegar hún er orðin köld má hella
þunnu lagi af karamellunni sem eftir
stendur yfir og láta leka niður hlið-
arnar. Þegar karamellan hefur aðeins
tekið sig (fínt að setja aftur í ísskáp í
um 15 mínútur) má sprauta krem-
toppa með restinni af kreminu og
setja Maltesers-kúlur eða annað álíka
ofan á hvern topp.
Súkkulaðikaka með karamellukremi
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ómótstæðileg súkkulaðisæla Kara-
mellukrem passar einstaklega vel með
súkkulaðiköku, enda oft talað um
súkkulaði og karamellu sem hina heil-
ögu tvennu kökugerðarlistarinnar.
Það er fátt sem toppar
fallega köku og þá sjaldan
maður bakar er eins gott
að gera það almennilega.
Hér kemur ógnarfögur
kaka úr smiðju Berglindar
Hreiðars á Gotteri.is sem
ætti að slá í gegn á hverju
heimili.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fullt af nýjungum í grænmetis-
og vegan vörulínunni okkar
Kynntu þér málið hjá söludeild okkar
Veisluþjónustur
Skólar • Mötuneyti
Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Viðhorf almennings til líf-rænna matvæla eru æðimisjöfn og oft byggð á mis-
skilningi. Margir halda að hinn
lífræni lífsstíll gangi út á það að
borða baunir og grænmeti, aðrir
halda að lífrænt sé sykurlaust og
enn aðrir standa í þeirri mein-
ingu að lífrænt sé nýleg tísku-
bylgja sem erfitt sé að tileinka
sér.
En út á hvað gengur þá líf-
rænn lífsstíll ef það eru ekki
þessir þættir?
Upphafið að lífrænum lífsstíl
má rekja til aldamótanna 1900
sem andsvar við þeim breyt-
ingum sem urðu á landbúnaði í
kjölfar fyrstu iðnbyltingarinnar.
Strax í upphafi hennar sáu
nokkrir hugsjónamenn fyrir í
hvað stefndi og í framhaldi var
búin til umgjörð um gömlu gildin
sem í dag kallast lífræn ræktun.
Með seinni iðnbyltingunni í
kringum 1960 verður lífræn
ræktun enn fastmótaðra hugtak
því á þeim tíma þurftu margir
ræktendur og framleiðendur að
velja hvaða leið þeir vildu fara,
þ.e. magnframleiðsla eða gamla
hefðbunda aðferðin að viðbættum
tækninýjungum. Flestir völdu
magnframleiðsluna því hún var
talin gefa meira af sér fjárhags-
lega. Í framhaldi hefur sú aðferð
orðið „hefðbundin aðferð “ í hug-
um fólks.
Lífræn ræktun er því engin
nýlunda heldur eru þetta ald-
argamlar aðferðir sem hafa feng-
ið nýtt nafn til að geta aðgreint
sig frá þeim breytingum sem
hafa átt sér stað síðastliðin 60-70
ár.
En hvaða breytingar eru
þetta? Helstu breytingar má
rekja til eiturefna- og áburð-
arnotkunar. Svo ber að nefna
GMO eða erfðabreytt matvæli.
Eiturefnanotkun í nútíma rækt-
un felst í notkun á skordýra-, ill-
gresis- og sveppaeitri en þessi
efni safnast upp í matvælum og
berast í okkur þegar við neytum
þeirra. Rannsóknir á þvagi
barna og fullorðinna hafa sýnt
fram á að leifar af þessum efn-
um séu til staðar þegar neytt er
ólífrænna matvæla. Eitur er
engum gott að innbyrða sama
hversu litlir skammtarnir eru.
En eitrið stoppar ekki hjá okkur
því þvagið fer svo í sjóinn þar
sem uppsöfnun eiturefna heldur
áfram og því er spurningin
hversu lengi getur hafið tekið
við. Varðandi erfðabreytt mat-
væli þá er verið að blanda saman
ólíkum þáttum, sem dæmi má
nefna eiturefnið Round-up sem
er innræktað í maís sem veldur
því að maísplantan þolir eitrið á
meðan aðrar plöntur drepast.
Round-up er talið skemma mið-
taugakerfið og hafa sumar þjóðir
bannað þetta eitur. Reglur um
innihaldslýsingu ná ekki yfir
erfðabreytt matvæli og fólk hef-
ur því í raun og veru ekki hug-
mynd um hvað matvaran inni-
heldur.
Út frá þessum staðreyndum
er það nokkuð ljóst að lífrænn
lífsstíll felst m.a. í því að lifa í
sátt og samlyndi við náttúruna,
nýta ekki landið meira en það
þolir, stunda sjálfbæra ræktun/
skiptiræktun og passa upp á að
auðlindir okkar spillist ekki af
skammtímagróða-hugsjónum.
Ef þetta er tekið saman þá
felur lífræn ræktun m.a. í sér:
Ræktun án eiturefna eins og
skordýra-, illgresis- og sveppa-
eiturs
Ræktun án tilbúins áburðar
Ræktun á erfðabreyttum
plöntum, GMO
Matvæli framleidd án ónátt-
úrulegra aukaefna
Dýravelferð, m.a. náttúrulegt
fóður og án hormóna og sýkla-
lyfja
Veljum lífrænt umhverfinu okk-
ar til heilla.
Kveðja, Kaja.
Hvað þýðir lífræn ræktun?
Heilsuhorn
Kaju
Við sem veltum því mikið fyrir okkur hvað þykir
smart höfum ítrekað rekist á ægifagurt steypujárns-
form sem dúkkar upp á ólíklegustu stöðum – þó að-
allega hjá einstaklega smekklegum áhrifavöldum
sem elda almennt mun fallegri mat en við hin.
Þetta fat er svo fallegt að orð ná vart yfir það. Eft-
ir töluverða rannsóknarvinnu fundum við það í
versluninni Kokku á Laugavegi og erum snarlega
búin að fjárfesta í einu slíku.
Formin eru til í þremur stærðum og kosta 4.980-
7.500 krónur.
Ljósmynd/Lodge
Vekur athygli Steypujárnsformið fagra hefur vakið heims-
athygli og má sjá víða, bæði hér á landi sem erlendis.
Steypujárnsmótið sem
áhrifavaldarnir elska