Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@k100.is
Reynsluboltinn Matti Matt stígur á svið í keppninni í ár en hann
þarf vart að kynna, þekktur fyrir sterka rödd og sviðssjarma,
hvort sem er með hljómsveitunum Reggae on Ice eða Pöpum eða
einn.
Lagið heitir Dreyma og er eftir tvo unga lagahöfunda sem
hafa verið ötulir að dæla frá sér ljúfum smellum undanfarin ár,
þá Birgi Stein Stefánsson, sem einnig hefur getið sér gott orð
sem söngvari, og Ragnar Má Jónsson.
„Ég tók síðast þátt með tvö lög árið 2011; Eyjafjallajökullinn
margfrægi og svo fór ég út með Vinum Sjonna það ár. Það var
náttúrlega stórkostleg skemmtun,“ segir Matti Matt þegar hann
er spurður hvenær hann tók síðast þátt í keppninni. „Ég var bú-
inn að ákveða að taka aldrei aftur þátt í henni en svo hringdu
þeir Birgir Steinn og Ragnar Már í mig og spurðu hvort þeir
mættu senda á mig lag, sem þeir svo gerðu og ég féll fyrir laginu
við fyrstu hlustun,“ segir Matti, sem samdi textann við lagið og
segir hann persónulegan. „Pæling var um hvort ég hefði ennþá
eitthvert erindi því það hafa orðið ákveðin kynslóðaskipti í
þessu.“
Lagið verður síðast á svið í seinni undankeppninni hinn 15.
febrúar.
Lenti í ævintýri eftir skilaboð á instagram
Nafn Aarons Ísaks eða Kid Isak eins og hann kallar sig þekkja
ekki margir. Einhverjir kannast kannski við hann frá því í fyrra
þegar hann söng nýja útgáfu af „Ég er eins og ég er“ fyrir
Reykjavík Pride.
Aaron hafði ekki stefnt að því að taka þátt í keppninni þegar
hann fékk skilaboð frá Kristni Óla, eða Króla, einum þekktasta
tónlistarmanni landsins, á Instagram. Hann samdi lagið „Æv-
intýri“ ásamt félaga sínum JóaPé og Þormóði Eiríkssyni, sem er
einn atkvæðamesti lagahöfundur landsins um þessar mundir.
„Kiddi heyrði í mér á Instagram og bað um númerið mitt. Ég
bara úúúh er þetta eitthvert deit eða,“ sagði Aaron og skellti upp
úr þegar hann sagði frá aðdraganda þess að hann tók þátt í
keppninni. Hann var farinn að syngja „demó“ af laginu innan við
klukkutíma eftir skilaboðin á Instagram og áttu þeir eftir að vera
í stúdíóinu í 12 tíma. Útkoman varð sú að Aaron mun mæta fyrst-
ur á svið fyrra undankvöldið í söngvakeppinni hinn 8. febrúar.
Finna sig óvænt í Söngvakeppninni
Síðdegisþátturinn á K100 ræddi við tvo ólíka söngvara í vikunni sem eiga það sameiginlegt að hafa fundið sig
óvænt í söngvakeppninni. Annar er reynslubolti sem hafði ákveðið að taka ekki aftur þátt í henni og hinn er rétt
að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni og fékk upp úr þurru skilaboð á Instagram um hvort hann vildi vera með.
Ævintýri Kid Isak
flytur lagið Ævintýri í
Söngvakeppninni 2020.
Dreyma Matti Matt
flytur lagið Dreyma í
Söngvakeppninni 2020.
Þættina Sönn íslensk sakamál
þekkja flestir, en þeir nutu mikilla
vinsælda í Sjónvarpinu í kringum
aldamótin. Þættirnir sneru svo aftur
á Skjá Einn árið 2014. En nú kveður
við nýjan tón því þættirnir hafa ver-
ið endurvaktir sem sambland af
hlaðvarpi og hljóðbók. Verða þeir
aðgengilegir í gegnum Storytel Ís-
land. Það er Sigursteinn Máson sem
er, eins og áður, þulur en hann hefur
einnig veg og vanda af dagskrár-
gerðinni. Sigursteinn var gestur
Loga og Sigga í Síðdegisþættinum á
K100.
Stundum er talað um að gullöld
hljóðsins sé núna og hafa sambæri-
leg hlaðvörp notið mikilla vinsælda
erlendis. Ég er svo gamaldags. Mér
finnst stundum þessi hlaðvörp svo
losaraleg, ég er aðeins meira fyrir að
hafa skýrt handrit, upphaf, endi og
allt það, segir Sigursteinn þegar
þetta var rætt við hann í þættinum.
Þegar hann var spurður um hvaða
mál hefði vakið hvað mesta athygli á
sínum tíma þegar þættirnir voru í
Sjónvarpinu
sagði hann að
málið um morðið
á leigubílstjór-
anum á mótum
Sundlaugavegar
og Laugalækjar
árið 1968 hefði
vakið gríðarlega
athygli en það er
einmitt fyrsta
umfjöllunarefni
nýju þáttanna. Það mun spanna yfir
tvo þætti, en í raun og veru fjóra því
það tengist inn í önnur mál, segir
hann en í fyrsta þættinum sem kom
út á sl. mánudag er talað um að ný
gögn hafi komið fram sem geti jafn-
vel búið til ástæðu um að málið verði
tekið upp aftur. Nýr þáttur kemur
út í hverri viku, á mánudögum, og
verður greinilega spennandi að
fylgjast með.
Hlustaðu á áhugavert viðtal við
Sigurstein á k100.is þar sem hann
ræðir einnig Guðmundar- og Geir-
finnsmálið.
Sönn íslensk saka-
mál lifna aftur við
Sigursteinn
Máson
fasteignir