Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
BÍLAMERKINGAR
Vel merktur bíll er
ódýrasta auglýsingin
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
„OBBOSSÍ – ÞETTA ER GREINILEGA
EKKI MINN DAGUR.”
„LILJA, HVAÐ KOSTUÐU AFTUR HATTARNIR
FYRIR BÝFLUGNABÆNDURNA?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fljúga heim til þín.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
JEBBS, ÉG ER SÁ
LAGLEGI
VÖRU-
SKIL
ÞAÐ ERU FORLÖG
OKKAR AÐ
GIFTAST!
ÞÚ GETUR
EKKI
FULLYRT
ÞAÐ!
VÍST GET
ÉG ÞAÐ!
NEI, ÞAÐ
GETUR ÞÚ
EKKI!
AÐ HEYRA Í OKKUR RÍFAST
SVONA! VIÐ ERUM SVO
GOTT SEM GIFT NÚ ÞEGAR!
ráðgjafi og Eggert Bjarni Thorlacius
tölvunarfræðingur; 2) Hildur
Bjarnadóttir, f. 13.8. 1938, stjórn-
málafræðingur og fyrrverandi
fréttamaður á RÚV. Börn hennar:
Bjarni Þorbergsson stjórnmálafræð-
ingur, Bergþóra Guðrún Þorbergs-
dóttir landfræðingur og Gunnlaugur
Brjánn Þorbergsson jarðfræðingur;
3) Gunnlaugur Bjarni Bjarnason, f.
17.11. 1941, d. 12.8. 1954.
Foreldrar Steinu voru Bjarni
Guðmundsson, f. 27.8. 1908, d. 28.1.
1975, blaðafulltrúi og deildarstjóri í
utanríkisráðuneytinu, og Gunnlaug
Briem, f. 13.12. 1902, d. 19.6. 1970,
forstjóri Söfnunarsjóðs Íslands. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Steina
Vasulka
Jórunn Hannesdóttir
húsfreyja í Valadal, f. á Syðri-Mælifellsá
Pétur Pálmason
bóndi í Valadal á Skörðum,
Skag. f. í Syðra-Vallholti
Steinunn Pétursdóttir
kaupmaður og kennari í Rvík
Gunnlaug Briem
kaupmaður og frkvstj. Söfnunarsjóðs Íslands
Hannes Pétursson b. á
Skíðastöðum í Skagafi rði
Pétur Hannesson
sparisjóðsstj. á Sauðárkróki
Hannes Pétursson
skáld í Garðabæ
Jóhanna Briem
prestsfrú í
Reykholti
Ingibjörg Eyfells
kennari og
kaupmaður í Rvík
Jóhann Eyfells
myndlistarmaður
í BNA
Vilhjálmur Briem
prestur og frkvstj. Söfnunarsjóðs Ísl.
Ingibjörg Sverrisdóttir
húsfreyja og 19 barna móðir,
f. í Mávahlíð í Fróðárhr., Snæf.
Eggert Briem
sýslumaður,
lengst í Skagafi rði,
f. á Kjarna í
Eyjafi rði
Ólafur Briem
alþingismaður
Þorsteinn Briem alþm.,
ráðherra og prófastur
í Borgarfi rði, sonur
Halldóru Pétursdóttur
ömmusystur Steinu
Vasulka
Valgerður
Briem
myndlistar-
maður
Herdís Pétursdóttir prestsfrú á SauðárkrókiHelgi Hálfdanarson þýðandi
Eggert Briem verkfræðingur
Unnur Briem teiknikennari og listamaður
Sigríður Guðmundsdóttir starfsm. Orðabókar HÍ
Ásthildur Kjartansdóttir
kvikmyndagerðarmaður
Kjartan
Guðmundsson
tannlæknir
Guðni Guðmundsson rektor MR
Gunnar Guðmundsson frkvstj.
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Guðmundur Helgi Guðnason
gullsmiður í Reykjavík
Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja í Rvík, f. í
Bjarnabæ í Þingholtum
Guðni Símonarson
gullsmiður í Rvík, f. í Gröf í Mosfellssveit
Úr frændgarði Steinu Vasulka
Sigríður Jafetsdóttir
húsfreyja í Pálsbæ og Litla-Seli, f. í Rvík
Sigurður Einarsson
útvegsbóndi í Pálsbæ á
Seltjarnarnesi og Litla-Seli í
Rvík, f. á Bollagörðum
Nikolína Hildur Sigurðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Bjarni Guðmundsson
blaðafulltrúi og deildarstjóri í
utanríkis ráðuneytinu
Í Vísnahorni á þriðjudag féll nið-ur höfundarnafn síðustu vís-
unnar, en það var Ingólfur Ómar
Ármannsson og biðst ég velvirð-
ingar á því. Hann gaf þessa skýr-
ingu á vísunni: „Það hafa verið
miklir umhleypingar í veðrinu und-
anfarna daga og á eflaust eftir að
verða áfram svo en það þýðir ekki
að maður þurfi að láta það neitt á
sig fá frekar en annað“:
Þó að hret og húmið svart
herji á um vetur.
Láttu ætíð ljósið bjart
lýsa sálartetur.
Ingólfur Ómar gaukaði þessari
vísu að mér á þriðjudag með þeirri
skýringu, að nú sé sólin farin að
skína og veðrið fallegt þótt hvítt sé
yfir öllu. Er á meðan er:
Veðurblíðan vekur lýð
verma þýðar stundir.
Sólin víða sindrar fríð
signir hlíð og grundir.
Og þann hinn sama dag skrifar
hann í Leirinn að ekki sé hægt að
segja annað en að veðrið leiki við
okkur hér syðra. Það komi einn og
einn góður dagur með bjartviðri.
Frónið þó sé fannahvítt
fegurð skartar sinni.
Sól í heiði brosir blítt
bætir sálarkynni.
Garðar Gíslason sendi mér tölvu-
póst sem ég þakka fyrir: „Ekki er
von að kötturinn andmæli. Á bls.
114 í bók Björns Th. um Mugg er
blýantsteikning hans af því þegar
skrattinn fór að skapa mann og
þegar Sankti-Pétur lauk verkinu.
Enda minnir mig að ég hafi lært
vísuna svona“:
Skrattinn fór að skapa mann,
skinnlaus skepna varð úr því.
Sankti-Pétur hjálpa vann,
húðina færði dýrið í.
Dagbjartur Dagbjartsson yrkir á
Boðnarmiði:
Mér er skallinn mesta fár
margoft hæðið þið ’ann
enda þótt ég hafi hár
hinumegin við ’ann.
Þessu svaraði Arndís Þorvalds-
dóttir að bragði: „Gamli skólabróð-
ir. Það rifjaðist upp fyrir mér vísa“:
Þú ert Dísa þokkafljóð
þú ert vísast kona.
Þetta er vísa, þetta er ljóð
það hefur grísast svona.
Ingólfur Ómar Ármannsson
bætti við:
Óðarsnilli efla kann
ólgar fjör í blóði.
þó að skalla hafi hann
Hrísarbóndinn góði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um veðrið vont og gott