Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Vísindi og myndlist eru oft eins og
galdrar – við lítum stundum á það
sem vissar andstæður en ég held að
vísindamenn og listamenn vinni oft á
svipaðan hátt. Það eru þessi ástríða,
þekkingarleit og forvitni sem drífa
okkur öll áfram,“ segir Selma Hregg-
viðsdóttir þar sem við erum á mynd-
listarsýningu þeirra Sirru Sigrúnar
Sigurðardóttur í galleríinu BERG
Contemporary á Klapparstíg 16.
Sýninguna kalla þær Ljósvaka/
Æther en viðfangsefni verkanna
hverfast um hina víðfrægu steind silf-
urberg. Heiti sýningarinnar má með-
al annars rekja til kenninga um hið
ímyndaða frumefni ljósvaka sem átti
að fylla út í himingeiminn og bar ljós
gegnum tíma og rúm. Sú hugmynd
var síðar afsönnuð með afstæðis-
kenningu Einsteins.
Fram yfir 1900 hafði aðeins fundist
hér á Íslandi fullkomlega tært kalsít
sem fékk heitið silfurberg og hafði
frá 18. öld vakið mikla athygli og bor-
ist til safna og víssindamanna víða
um lönd. Átti steindin eftir að leika
lykilhlutverk í þróun eðlisfræði, bæði
ljóss og kristallaðra efna, í tvær og
hálfa öld.
Hið töfrakennda augnablik þegar
horft er gegnum kristallinn og heim-
urinn tvöfaldast gegnum ljósbrotið er
uppspretta verkanna á sýningunni. Á
veggjum eru raðir stórra ljósmynda
af kristöllum sem þær Sirra Sigrún
og Selma hafa ræktað. Önnur ljós-
myndapör sýna skannaðar steindir,
annars vegar með skautuðu ljósi silf-
urbergs en hins vegar óskautuðu. Þá
eru á sýningunni þrjú myndbands-
verk listakvennanna, þar sem þær
leika sér meðal annars með sýningar-
rýmið og silfurberg á athyglisverðan
hátt. Og fyrir miðju er einstök silfur-
bergskúla sem Náttúrufræðistofnun
Íslands á og var slípuð og formuð af
Bjarna Ólafssyni frá Brimnesgerði til
að sýna á heimssýningunni í Chicago
árið 1892, en náði þó aldrei þangað.
Silfurbergið kom allt úr Helga-
staðanámunni í Eskifirði. Selma seg-
ist vera fædd þar og uppalin og hafa
sem barn oft leikið sér að því að leita
regnboga í steinum úr námunni. Þær
Sirra Sigrún eru saman í stjórn Kling
& Bang og fyrir nokkrum árum voru
þær saman á Eskifirði og heimsóttu
þá silfurbergsnámuna þekktu. „Út
frá því fengum við þá hugmynd að
vinna verkefni út frá silfurbergi,“
segir Selma. „Nokkur ár liðu en síð-
asta sumar settum við svo upp litla
sýningu í Dhalshúsi á Eskifirði. Við
unnum þar í mánuð og hófum krist-
allaræktun í eldhúsi móður minnar,“
en myndir af afrakstrinum má ein-
mitt sjá í verkunum.
Sirra bendir á að menn hafi öðlast
skilning á ljósi út frá silfurberginu og
það sé hornsteinn þess hvernig við
sjáum veruleikann. Selma bætir við
að silfurberg tvöfaldi allt sem horft er
á gegnum það og það hafi þótt
óskiljanlegir töfrar sem vísindamenn
glímdu við að skilja. „Þessi sjónræni
þáttur varð kveikjan að því sem við
síðan rannsökuðum fyrir þessi verk.“
Kristallarnir svífa í myndum
þeirra í eins konar portrettum og
þær segja líka að sér finnist sem hver
og einn þeirra sé eins og sjálfstæður
karakter. „Það er viss upphafning á
náttúrunni og vísindum að gera
portrettmyndir af hverjum og ein-
um,“ segir Selma.
Og þær segja þessa sýningu ekki
vera endastöð rannsóknar sinnar á
kristöllum. „Nei, nei, við erum þegar
komnar með sýningar á dagskrá, í
Sófíu í Búlgaríu og í Den Haag í Hol-
landi, hugsanlega í Aþenu líka. Þetta
heldur áfram og við munum spinna út
frá efniviðnum. Við erum algjörlega
hugfangnar af þessu.“
„Við erum algjörlega
hugfangnar af þessu“
Kristallar Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur og Selmu Hreggviðsdóttur í BERG
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristallaportrett Sirra Sigrún og Selma segja sýninguna í BERG Contemporary enga endastöð í kristallaskoðun.
Eins og síðustu ár stóð listráð Hafn-
arborgar fyrir samkeppni um hug-
mynd að haustsýningu. Að þessu
sinni varð fyrir valinu hugmyndin
Villiblómið sem verður haustsýning
ársins 2020. Í tilkynningu segir að
hún hafi verið valin „úr fjölda frá-
bærra tillagna sem bárust undir lok
síðasta árs en vinningstillagan var
send inn af sýningarstjórunum
Becky Forsythe og Penelope Smart.
Villiblómið beinir nýstárlegri linsu –
næmri og leitandi – að vilja okkar til
að kanna náttúruna. Í gegnum þessa
linsu fá áhorfendur tækifæri til að
virkja sæg flókinna tilfinninga og
dýpka vitund sína um hinn viðkvæma
heim okkar og stöðu okkar í honum.
Ásamt listamönnum frá Íslandi og
Kanada búa sýningarstjórarnir til
nýtt rými fyrir kraftmikinn samruna
umhverfisaktívisma, femínisma og
handiðnar í samtímalist. Með því að
blása lífi í hefð- og staðbundin efni
umbreyta listamennirnir marmara,
við, plöntulit, blómum og málmi í nýj-
ar útgáfur af textíl, skúlptúr, mál-
verkum og steindum glerbrynjum.“
Becky Forsythe er sýningarstjóri
og rithöfundur. Hún útskrifaðist með
MA-gráðu frá University of Manitoba
(2011) og viðbótardiplóma í safna-
fræðum frá Georgian College (2014).
Frá 2015-2018 gegndi hún stöðu
safneignarfulltrúa Nýlistasafnsins,
þar sem hún stýrði mörgum verk-
efnum.
Penelope Smart er sýningarstjóri
og rithöfundur. Hún útskrifaðist með
MFA í gagnrýnni sýningarstjórnun
frá OCADU (2013), þar sem hún
hlaut sérstaka viðurkenningu. Pene-
lope hefur gegnt stöðu sýningar-
stjóra hjá The Art Gallery of Ontario,
MULHERIN-galleríunum (Toronto
og New York) og Eastern Edge Gall-
ery (St. John‘s, Nýfundnalandi og
Labrador).
Villiblómið verður
næsta haustsýn-
ing Hafnarborgar
Becky Forsythe Penelope Smart
Hátíðin Dagar serbneskrar menn-
ingar verður haldin í þriðja sinn
hér á landi frá morgundeginum til
2. febrúar. Aðalskipuleggjandi há-
tíðarinnar er Serbnesk menningar-
miðstöð á Íslandi í samvinnu við
utanríkisráðuneyti Serbíu, Menn-
ingarmiðstöð Kópavogs og
Hannesarholt. Í ár eru dagarnir til-
einkaðir serbneskri tónlist og verð-
ur flutt tónlist á rótgróin hljóðfæri
serbnesku þjóðarinnar, þ.á m.
trompet, flautu, sekkjapípu og tvö-
falda flautu. Á hátíðinni verður
einnig boðið upp á fyrirlestur um
serbneska tónlist og hljóðfæri,
flautusmíði auk tónleika með serb-
neskri þjóðartónlist, skv. tilkynn-
ingu. Hátíðin verður sett annað
kvöld kl. 19.30 í Salnum í Kópavogi.
Dagskrána má finna á facebooksíðu
Serbneskrar menningarmiðstöðvar
á Íslandi.
Serbnesk Ónefnd kona á kynningar-
ljósmynd fyrir serbnesku hátíðina.
Dagar serbneskrar
menningar hefjast
Þekktar íslenskar og
rússneskar söngperlur
hljóma á hádegistón-
leikum í Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag kl. 12, en
tónleikarnir eru hluti af
tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum. Flytjendur eru
Nathalía D. Halldórs-
dóttir mezzósópran og
Hjörtur Ingvi Jóhanns-
son píanóleikari. „Það er
eitthvað sammerkt með
mörgum þeim söngvum
sem þessar þjóðir syngja
sér til ánægju og yndis-
auka,“ segir í tilkynningu frá flytj-
endum. Nathalía lauk prófi frá
Nýja Tónlistarskólanum og hefur
sótt söngtíma í Rúss-
landi, Danmörku og
Bandaríkjunum. Hún
hefur tekið þátt í óperu-
uppfærslum m.a. á veg-
um Sumaróperunnar og
Íslensku óperunnar
ásamt því að syngja ein-
söng með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Hjörtur lauk burtfarar-
prófi í klassískum píanó-
leik frá Tónlistarskóla
FÍH 2010 og BM-gráðu í
djasspíanóleik frá Kons-
ervatoríinu í Amster-
dam. Hann er hljómborðsleikari
hljómsveitarinnar Hjaltalín og er
virkur í tónlistarlífi landsins.
Þekktar söngperlur í hádeginu í dag
Söngkona Nathalía D.
Halldórsdóttir.